27.5.2025 | 11:22
VG var á siglingu fyrir 4 árum, Viðreisn nú, hvenær verður spilling Viðreisnar viðurkennd?
Eitt sinn voru ESB-kratar ekki í tízku á Íslandi, og Samfylkingin varla stjórntæk og fólk hélt að Viðreisn hyrfi og kæmist aldrei í stjórn. Nú er það svo að hægri-kratar Sjálfstæðisflokksins eiga í miklum vanda og einnig yztu-kommar, Sósíalistar og Vinstri grænir. í Silfrinu í gær reyndu meðlimir þessara flokka að tæla fólk til sín, en heyra mátti að ESB-kratarnir eru allsráðandi á Íslandi í dag.
Það verð ég að segja að Kristrún Frostadóttir er sérlega góður formaður Samfylkingarinnar. Ég dáist að henni fyrir að sýna aldrei hroka, tala um verkefni sín af auðmýkt, og eins og það skipti engu máli að hún sé ein valdamesta kona landsins, að hún sé bara að fást við verkefni eins og allir aðrir. Í því felst auðmýkt sem gerir hana vinsæla og virta, elskaða jafnvel.
Einnig kunni hún að milda hneykslin í kringum Flokk fólksins fyrir nokkrum mánuðum, með einmitt sömu aðferð, með mildum og hóflegum orðum, ekki með því að dæma einn né neinn, heldur með því að segja að tíminn yrði að leiða þetta í ljós og rannsóknir á því sem gerzt hafði.
Hin síbrosandi Katrín Jakobsdóttir hafði trúverðugleika þjóðarinnar alllengi, og stjórn hennar naut góðs af því, en síðan fór bros hennar að sýnast kjánaglott og hún datt úr tízku með tímanum.
Kristrún er hinsvegar hæfilega virðuleg og það hæfir henni lengi, en allir pólitíkusar missa völd að lokum, og virðingu margir.
Þorgbjörg Sigríður er í fjósinu að moka skítinn og vinsælu fólki út og verður óvinsæl fyrir vikið. Ég spái því að Viðreisn missi vinsældir nokkuð hratt og síðan Samfylkingin, en kannski tekur það 4 ár og kannski tekur það 8 ár.
Þorgerður Katrín hefur verið í þessu lengi og hefur misst sinn kjörþokka allmikið. Eitt sinn var hún skemmtileg Sjálfstæðiskona en nú er hún steingervingur hins gamla Sjálfstæðisflokks og einhvernveginn ekki sannfærandi í stuðningi við Nató og mannréttindi, mannfall í Úkraínu og andstöðu við Ísrael.
Það koma alvöru hneykslismál á þessu landi og alvöru mál sem munu gera Viðreisn og Samfylkingu að óvinsælum flokkum, en ennþá er siglingin róleg og sjórinn tiltölulega lygn. Svínslegt er þó að bola Helga Magnúsi burt sem ætti að vera í starfi yfirmannsins sem hafði ekki samúð.
![]() |
Jódís Skúladóttir hætt í VG og talar um spillingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 54
- Sl. sólarhring: 143
- Sl. viku: 721
- Frá upphafi: 149268
Annað
- Innlit í dag: 45
- Innlit sl. viku: 521
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.