Trúin á sjálfstæði Íslands gæti verið að hverfa frá fólki, og sjálfstraust, í staðinn gæti verið að koma ótti við vald stofnana. Eða hefur eðli þjóðarinnar alltaf verið þannig?

Í þessum pistli ætla ég að benda á það hversu miklar líkur eru á því að núverandi ríkisstjórn komi okkur inní ESB, og ég held að andstaðan við það fari minnkandi hjá þjóðinni.

Í upphafi vil ég benda á tvennt sem sýnir hversu lélegur Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið, tvö atriði sem varða ESB áherzlur Sjálfstæðisflokksins í seinni tíð, ekki sízt undir stjórn kvenna innan hans.

Fyrra atriðið kom fram á fundinum á mánudaginn um Bókun 35. Þar kom fram að Áslaug Arna hafi stutt það mál og sett á dagskrá. Seinna atriðið kom fram í fréttatíma í vikunni, þar sem kom fram hörð gagnrýni á leigubílakerfið sem Áslaug Arna kom á einmitt líka á síðasta kjörtímabili.

Athugum það að tvær útlendar konur sem höfðu ferðazt til flestra landa í heiminum sögðust aldrei hafa lent á eins lélegum leigubílstjórum og á Íslandi, og það var eins vond landkynning og mögulegt var. Þetta er auðvitað á ábyrgð þess ráðherra sem breytti leigubílakerfinu.

Þessar tvær konur höfðu verið keyrðar uppí Bláfjöll og rukkaðar um margfalt hærri upphæð af bílstjóranum eftir að hann skildi þær ekki eða keyrði þangað af eigin frumkvæði, og þær fylgdust með á Google-map en gátu ekki stöðvað þessa vitleysu.

Ég verð nú hreinlega að vitna í Ómar Geirsson, sem skrifaði um börn á ráðherrastóli og átti við Áslaugu held ég, það er eins og lagfæra þurfi ótalmargt eftir síðustu ríkisstjórn!

Þegar ESB pólitík Viðreisnar og öfgafemínismi ráða ríkjum, þá er maður sammála Guðjóni Hreinberg og Guðmundi Erni, að maður þurfi að biðja til Guðs, því þá er réttlæti mannlegt á þrotum.

Svo maður haldi áfram með ESB daður Sjálfstæðisflokksins, þá sagði Diljá Mist í hlaðvarpi Ólafs Arnarssonar að hún væri Evrópusinni, DV sagði frá því nýlega.

Tvennt hefur skaðað Sjálfstæðisflokkinn mikið: Að sitja í stjórn tvö kjörtímabil með flokki lengst til vinstri og svo að skipa lítt þroskaðar og ungar konur til að gegna þar háum embættum og gjörbreyta ásýnd flokksins og stefnumálum, og færa hann ekki bara á miðjuna heldur rækilega til vinstri og að ESB-krata-pólitík eins og tíðkast í Viðreisn og Samfylkingunni.

Sjálfstæðisflokkurinn er semsagt laskaður og ekki lengur sá flokkur sem hann var.

Þrennt varð mér ljóst - og fleira raunar - þegar ég hlustaði á þær ræður sem voru fluttar síðasta mánudag á fundinum um Bókun 35.

1) Það ríkir ótti á Íslandi við valdið.

2) Það vald birtist í konum sem hafa völd.

3) Sá ótti er ótti við ESB og erlendar stofnanir sem hér eru farnar að setja lög.

Þetta ályktaði ég af þessu:

A) Ég skynjaði að þöggun ríkir um Bókun 35.

B) Ég skynjaði að almenningur telur að sjálfstæðissinnar fari sífellt halloka, tapi á Alþingi og annarsstaðar. Það má til dæmis dæma af því hvernig Þriðji orkupakkinn fór í gegn.

C) Nú ályktar almenningur þannig: Úr því ekki tókst að stoppa Orkupakka 3, þá þýðir ekkert að reyna að stöðva Bókun 35.

Niðurstaðan er þessi, að það ríkir vaxandi kúgun hér á Vesturlöndum.

Hvað er til ráða?


mbl.is Segir ákvörðunina varhugaverða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Alveg merkilegt hvað margir halda að setja sig undir kúgunina sé frelsi eins og ESB sinnar halda fram.

Rúnar Már Bragason, 15.5.2025 kl. 12:19

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta hefur lítið að gera með sjálfstraust fólks, frelsisást eða þjóðrækni. Stjórnmálin eru orðin aumkunarverð samsuða eins og þú kemur vel inn á í þessum pistli.

Það kemur t.d. engin stjórnmálaflokkur fram með þá kosti sem skiptir mestu máli. Það að segja upp EES samningnum, ganga úr NATO og hætta með Schengen.

Af því að þú minnist á Guðjón Hreinberg, þá er rétt að minna á þá sem hann kallar antivistana. Þeir raða sér hér á bloggið og dæla út daglega andstöðu sinni við 35 án þess að minnast nokkurntíma á það sem skiptir mestu máli.

Þessi aðferðafræði stelur umræðunni. Hún er dauð og fólk er orðið hundleitt á því að þurfa að setja sig inn í einhverjar pólitískar flækjur til að taka afstöðu með eða móti kostum sem engan heilla.

Magnús Sigurðsson, 15.5.2025 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 50
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 675
  • Frá upphafi: 145790

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 517
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband