Möguleg vísbending um líf í geimnum? Erum við ein í alheiminum?

Stjörnu-Sævar er réttnefndur Efa-Sævar. Hann vill helzt trúa því að við séum ein í alheiminum og engar geimverur séu til. Jafnvel ekki við sjálf, en við jarðarbúar erum geimverur, við búum úti í geimnum, á plánetu í ballarhafi dauðu reikistjarnanna.

Þú heimsækir ekki fjarreikistjörnur eða geimverur þar með því að banka á dyrnar hjá þeim. Það er svo sem hægt að túlka allt með hætti Sævars og efast sem mest og kalla það vísindalegt, en dr. Helgi Pjeturss kallaði það ekki vísindalegt að efast heldur að nota rökvísina um hvað væri sennilegasta niðurstaðan.

Möguleg vísbending um líf? Er það orðalag sem honum finnst betra?

Ég held að það sé alveg ljóst að geimurinn er morandi af lífverum.

En helstefnan veldur því að það er bannað fyrir viti bornar lífverur að hafa samskipti við helstefnumannkyn af okkar tagi, sem eyðir sér og öðrum lífverum plánetunnar.

Dr. Helgi Pjeturss sagði fyrir um það að ef hann yrði ekki viðurkenndur sem alheimsfrelsari í stað Jesú Krists og Múhameðs og Búddah og annarra sem mest var trúað á þá myndi ekki komast á lífstefna á jörðinni og allt færi til fjandans.

Það hefur vissulega gengið eftir.

Sævar er einn af heterómóríum, prótómóríar forheimskir,  trúmennirnir sem höfnuðu dr. Helga en heterómóríar eru síðheimskir, vísindamennirnir sem höfnuðu honum af "vísindalegum" ástæðum efagirninnar.

Dr. Helgi Pjeturss bjó til grísk nýyrði eins og íslenzk.

En uppfærsla á síðasta pistli:

Samkvæmt Vísi er það ekki rétt að árásarmennirnir séu islamskrar trúar, sem ég fjallaði um í síðasta pistli, heldur munu þeir vera kristinnar trúar. Hinsvegar er ég viss um að einhver fréttamaður eða fréttakona talaði um að bæði væru gerendur spænskumælandi og múslimar annaðhvort á Stöð 2 eða RÚV.

Samkvæmt Vísi er það ekki svo, og gerendur kristnir. Breytir ekki öllu. Vandræðalegt þegar þjóðerni koma ekki skýrt fram í öllum fréttatímum þannig að slíkt breytist í kjaftasögur og ekki er rétt farið með staðreyndir.


mbl.is Uppgötvunin ekki vísbending um líf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll. Ég fékk hræðilega lélega bók eftir hann um "geimverur" en í bókinni var hann bara að reyna að afsanna líf í alheiminum eins og hann vissi eitthvað betur en við hin.

Birgir Loftsson, 25.4.2025 kl. 16:02

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Sæll Birgir. Nákvæmlega. Þú ert þá að tala um sömu bók og ég keypti fyrir nokkrum árum. Já ekki fannst mér það nógu góð bók. Maður lærði varla neitt nýtt. Hefði maður viljað kaupa bók um stjörnufræði hefði hún átt að heita Stjörnufræði en ekki Geimverur. Mig minnir að bara í síðasta kaflanum hafi hann eitthvað fjallað um geimverur og bara til að hrekja allt sem menn telja líf í geimnum eða að þær hafi verið hér. Hann er sanntrúaður efahyggjumaður eða afneitari. Ekki nógu gott.

Takk fyrir innlitið og beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 25.4.2025 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 173
  • Sl. sólarhring: 198
  • Sl. viku: 724
  • Frá upphafi: 143431

Annað

  • Innlit í dag: 133
  • Innlit sl. viku: 537
  • Gestir í dag: 122
  • IP-tölur í dag: 120

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband