21.3.2025 | 02:11
"Sá yðar sem syndlaus er..."
Femínistar hafa sigrað feðraveldið með þeim boðskap að allir karlmenn og drengir séu í eðli sínu sóðakarlar, perrar og glæpamenn. Nú kemur í ljós að konurnar eru ekkert skárri, eða varla.
Nú eru vopn femínista farin að bíta á konurnar sjálfar. Það sem þótti eðlilegt fyrir nokkrum áratugum er það ekki lengur vegna baráttu femínista gegn perrum sem þær héldu að væru bara karlkyns.
Aldrei hefur víst nokkur ríkisstjórn lent í öðrum eins ólgusjó í upphafi stjórnartíðar sinnar, og það útaf máli sem langflestir myndu telja dæmigert spillingarmál miðaldra karlmanna sem hafa skákað í skjóli feðraveldisins. Hvort sem hún reynir að telja fólki trú um að hann (barnsfaðirinn sem þá var 15 ára, að verða 16 ára) hafi haft allan áhugann eða ekki þá er skaðinn skeður, og ríkisstjórnin er öll menguð, eins og embættið sem hún gegndi, kvenþjóðin, femínistar og Flokkur fólksins.
Flokkur fólksins bjóst aldrei við að komast í ríkisstjórn og bjóst aldrei við að fá svona miklar vinsældir. Annars hefðu þessar tvær konur, Inga Sæland og Ásthildur Lóa ekki verið í efstu sætunum, vitandi það að önnur átti sér svona leyndarmál í skápnum og hin hafði ekki sinnt skráningum flokksins sæmilega.
Flokkar með mikla reynslu eru öðruvísi. Þar er gætt að því að fólk sé með alveg hreina fortíð, ef svo má segja, jafnvel að allt sem mögulega gæti orkað tvímælis sé ekki að þvælast fyrir, og þannig fólk ekki í efstu sætunum. Samt flaskaði Sjálfstæðisflokkurinn á þessu margsinnis, með Bjarna Benediktsson og pabba hans, í sambandi við viðskipti og fleira.
Annars er ég á því að Ásthildur Lóa hafi ekkert rangt gert af sér og það sé sjálfsagt að unglingar stundi kynlíf, eignist börn með jafnöldrum eða einhverjum sem eru eldri.
Ég er að fjalla um þetta útaf öðru, út af því hvernig Metoo er skrímsli sem eyðir öllu sem fyrir er, konum og körlum.
Úr því að karlar voru hraktir frá störfum og námi út af minnsta grun um eitthvað af þessu tagi, þá er það alveg mátulegt á hitt kynið að lenda í þessu líka. Metoo fer í hringi.
Um aldamótin 2000 voru Kryddpíurnar ein vinsælasta hljómsveit í heimi. Þá var hugtakið Stelpnamáttur mikið notað (girlpower). Borgarstjórakvendin voru kölluð Kryddpíurnar, en þeim leiddist sú nafngift og því var hún látin niður falla, en það sem var líkt var andrúmsloftið sem tilheyrði Kryddpíunum, tónlistarkonunum sem slógu í gegn undir því nafni, að loksins væru konur alfarið að taka yfir án undantekninga.
Hneykslismál Flokks fólks munu fara í sögubækurnar vegna þess hversu fljótt blaðran sprakk, og mýtan um hinar fullkomnu konur sem ekkert fyndist misjafnt til að gagnrýna með.
Jafnvel þótt Kristrúnarstjórnin springi væntanlega ekki útaf þessu tiltekna máli, þá verður þetta þungur baggi að bera og einmitt vegna þess að vonbrigðin eru mikil að svona hneykslismál þurfi að vera upphafið á þessu stjórnarsamstarfi.
Hver er aðalástæðan fyrir því að þessi stjórn var mynduð, með eintómum konum?
Vinstrimenn höfðu herjað á Sjálfstæðisflokkinn árum og áratugum saman. Kenningin var sú að þar væri siðferðið verra en annarsstaðar.
Nú átti að sýna að sanna að allt væri betra þegar Sjálfstæðisflokknum væri haldið frá völdum.
Nú er búið að afsanna þessa wók-kenningu með hneykslismálunum sem elta þessa ríkisstjórn hvert fótmál.
Jafnvel án Sjálfstæðisflokksins ætla hneykslismálin allt að drepa í þessu þjóðfélagi okkar.
Þetta er "ógeðslegt þjóðfélag", það sagði Styrmir Gunnarsson, hér níðir fólk skóinn niður af náunganum og varla neitt annað.
![]() |
Frétti af framferði Ásthildar fyrir viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.3.): 29
- Sl. sólarhring: 329
- Sl. viku: 830
- Frá upphafi: 139695
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 663
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alls ekki að mæla þessu bót, en tilefnin til afsagnar ráðherra hafa nú verið mun meiri og alvarlegri í gegnum tíðina. Getur ekki bara verið að hún hafi ekki hlotið "næga" þjálfun í ósvífni og óskammfeilni??????????? En hún sýndi þó smá rökræna hugsun og iðrun, sem er meira en margir hafa gert og þar á meðal er margir ráðherra núverandi ríkisstjórnar,með þessum viðbrögðums ínum. Ég tek það fram að ég kaus EKKI Flokk Fólksins í síðustu kosningum en mér finnst að hann eigi að njóta sanngirni í umfjöllun eins og aðrir....
Jóhann Elíasson, 21.3.2025 kl. 08:10
Það er samt gaman að fylgjast með "þjóðinni" vilja hylma yfir siðleysið, enda fullkomlega siðblind.
Guðjón E. Hreinberg, 21.3.2025 kl. 21:52
Sæll Jóhann,
ég hef þennan pistil minn nægilega hlutlausan og tvíræðan til að ég reyni að leyfa henni að njóta þeirrar sanngirni sem hún á skilið. Hins vegar reyndi hún ekkert til að verja karlmennina sem lentu í Metoo hakkavélinni frekar en aðrar konur svo ég viti, svo mér finnst að sama eigi yfir konur að ganga og karla. Það var fundið að minnstu smáatriðum þegar Metoo gekk yfir, og gengur enn yfir.
En alveg eins og ég tek fram í þessum pistli skýrt, ég tel það eðlilegt að unglingar stundi kynlíf, annaðhvort með jafnöldrum eða eldra fólki, ef samþykki er fyrir hendi og vilji beggja.
"Sá yðar sem syndlaus er" er líka fyrirsögn pistilsins, þannig að ég vitna í Krist.
Það eina sem ég er að segja að konur hefðu aldrei átt að taka þátt í karlahatri, drengjahatri og Metoo. Slíkt kemur ævinlega til baka, hatur af þessu tagi.
Ég er ekki að fordæma Ásthildi Lóu fyrir neitt nema að hún mátti vita að þetta gæti komið í fjölmiðlana.
Ingólfur Sigurðsson, 21.3.2025 kl. 23:39
Sæll Guðjón,
ég var að hlusta á Útvarp Sögu í dag. Þar kemur fram að þetta er pólitík. Sjálfstæðismenn og sumir aðrir eru æstir í að halda þessu á lofti til að eyðileggja fyrir Kristrúnarstjórninni og komast sjálfir til valda.
Hinir vilja hylma yfir og gera lítið úr þessu sem telja þetta ekta kommúnistastjórn að hefna sín á íhaldinu.
Að öðru leyti er þetta barnaskapur að æsa sig yfir þessu. Ástarmál eru falleg í eðli sínu og að börn fæðist. Ekkert rangt við það, eða hvað?
En siðlaus er þjóðin fullkomlega og af öðrum ástæðum, ég er algjörlega sammála því. Til dæmis vegna þess að hún lætur erlendar mafíur slátra sér sem kalla eitur lyf við farsótt, sem sumir kalla ekki farsótt.
Ingólfur Sigurðsson, 21.3.2025 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning