Ég ætlaði mér að verða vinsæll tónlistarmaður, en til þess þarf pólitíkin að vera rétt

Það hefur sýnt sig að það þýðir ekki að gagnrýna konum í nútímanum. Þeir sem gagnrýna konur eru ógeðslegir og gamaldags, karlrembusvín og risaeðlur.

Það er ekki hlustað á slíkt, fyrr en eftir á, í fyrsta lagi, en betra er að finna karlkyns blóraböggla og það ættu að finnast alltaf einhver ráð með það.

Ennþá er það svo að minn helzti draumur er að slá í gegn sem tónlistarmaður og lifa af listinni. Ég hef samið ýmis lög sem eru hlynnt femínismanum og var einlægur í því. En það skrýtna er að ég man ekkert eftir því að hafa samið þessi lög, eins og ég hafi verið fullur.

Eina gilda ástæðan fyrir því að ég fór að blogga hérna var að ég vildi aflétta slaufun minni sem tónlistarmaður, og sýna að ég væri femínisti. Síðan kemur það fyrir að allskonar bull er í gangi sem maður fer sjálfur að bulla um. Það er bara truflun frá því að vera tónlistarmaður. Maður á ekki að vera pólitískur ef maður vill vera listamaður.

Ég er ánægður með þessa ríkisstjórn og ég er ánægður með þessa borgarstjórn. Ég er ánægður með þessar konur við völd.

Engir meiriháttar skandalar hafa komið enn fram svo hvað er fólk að kvarta?

Ég er ánægður með konur við völd. Hægt er að búast við að allar þessar konur geri góða hluti í borgarstjórn og ríkisstjórn. Vonandi.

Ég nenni ekki að vera nöldrari.


mbl.is Vill skýra atvinnustefnu á Íslandi og boðar nýtt ráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Til að verða vinsæll í Helvíti, þarf fyrst að selja sálina, helst frítt.

Guðjón E. Hreinberg, 8.3.2025 kl. 12:28

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þær hafa stundum spáð í þetta sama stelpurnar, og fyrir þeim virðist þetta ekki vera svo flókið, -jafnvel komnar með tvær billjóna áhorfa á youtube.

https://www.youtube.com/watch?v=6NXnxTNIWkc

Magnús Sigurðsson, 8.3.2025 kl. 19:21

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Alveg rétt Guðjón. Nákvæmlega. Maður verður óendanlega þreyttur á skorti á viðbrögðum og viðurkenningu, eða launum fyrir það sem maður kallar vinnu, andlega eða líkamlega. Þess í stað er maður kallaður auli og aumingi ef maður er ekki sammála fjöldanum.

Ingólfur Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 06:44

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Snjall ertu Magnús. Ég hafði ekki hlustað á þetta lag í þessu samhengi. Textinn er líka óvenju skýr þarna og með texta. En maður skilur ekki þennan vinkil nema maður þekki sársaukann og spyrji sig heimspekilegra spurninga. Gerðu þessar stelpur það eða er þetta lag eftir aðra en þær?

 

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 06:46

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þegar stórt er spurt verður fátt um svör.

Magnús Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.3.): 80
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 840
  • Frá upphafi: 138380

Annað

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 591
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband