Sköpunarsaga Biblíunnar, Genesis kemur frá norrænu fólki sem var til fyrir 8000 árum, Biblían, menning gyðinga stórmerkileg þar með einnig. Við getum því hætt að hafa minnimáttarkennd

Fræðimaðurinn sem býr til þessi myndbönd er fjölfróður og mark er á honum takandi. Með víðtækum samanburði kemst hann að þessari niðurstöðu. Of oft hefur okkur verið sagt að við eigum þeim allt að þakka sem færðu okkur Biblíuna, en vísbendingar benda til að þessu sé þveröfugt farið, að for-indó-evrópska menningin fyrir 8000 árum í Rússlandi sé móðurmenning Egypta, Súmera, Gyðinga, Babýloníumanna og allra annarra sem á eftir komu, Grikkir, Rómverjar og fleiri.

Genesis (and its Indo European origins) the Creation Myth of the Bible - YouTube

https://www.youtube.com/watch?v=xKPMeIojJVk

Nokkrir einfaldir þættir virðast grunnur, sem fela í sér naut og tvo menn, og öðrum er fórnað, líkt og Ými forðum. Manus og Yemo eru þeir kallaðir, en beljan ýmislegt eftir þjóðum.

Yemo, Ýmir er tvíkynja vera hverri er fórnað og heimurinn verður úr þeirri veru. Þetta kann að minna á hán hugtakið og hin fjölmörgu kyn nútímans. En ekki er gott að líkja sér við þetta, því þetta eru jötnar eða verur og skrímsli sem teljast utan þess eðlilega, og þjóna aðeins því hlutverki að vera efniviður þess sem á eftir kemur.

Fólk með norrænt útlit kom einnig frá þessu svæði fyrir 8000 árum. Því er menning og ætterni samofið samkvæmt þessu, og hámenning sú sem komst á vegna þessa fólks sem kom frá þessu svæði 6000 fyrir Krist.

Nú má enn deila um hvort kærleikurinn sé meiri í gyðingatrú og kristni og islam en þessum heiðnu trúarbrögðum forfeðra okkar og formæðra fyrir 8000 árum, og því er enn hægt að deila um hvað er hámenning og hvað ekki og hvort kristnin hafi ekki verið framfaraskref. Vissulega er þessi menning fyrir 8000 árum ekki til skrásett á sama hátt og menning Hebrea eða kristinna manna, hún er samansett af vísindamönnum sem setja saman púsluspil og fá þessa stórmerkilegu niðurstöðu.

Munurinn á Biblíunni og heiðnum trúarbrögðum er framsetningin, markaðssetningin, sem er meira sannfærandi í Biblíunni, og búið að fjarlægja atriði sem benda á marga guði og slíkt.

Ef Elohim og Adonai, nöfn yfir Drottin, eru tekin bókstaflega sem fleirtöluorð þá kemur vel í ljós að uppruni Biblíunnar er í fjölgyðistrúarbrögðum nágrannaþjóðanna eins og búið er að sýna fram á með óyggjandi hætti og vissu.

Þessi nöfn yfir Drottin eru túlkuð sem virðingarheiti, en upphafleg merking hefur þó verið þessi: Guðirnir, drottnarnir, leiðtogarnir.

Djúpið sem er svo þýtt í nútíma Biblíunni á sér rætur í eldra orði sem var Tiamat, dreki sem var drepinn í babýlónískum goðsögnum, fyrirmyndum Genesis. Sá dreki átti sér fyrirmynd í Ými, hinni tvíkynja veru sem var drepin, eða Yemo, en þannig voru trúarbrögð for-indó-evrópumanna fyrir 8000 árum.

Enn fremur, orðið Guð í Biblíunni átti sér eldri fyrirmynd, sem var Marduk í eldri trúarbrögðum, og vindurinn sem þýddur er sem andi guðs, var upphaflega vindur stormguðsins, sem þekkist meðal eiginlegra allra þjóða. Nöfn hans eru Þór, Taranis, Júpíter, Jahve, Zeus, Týr og margt fleira.

Þannig að við sjáum í allra fyrstu setningum Biblíunnar sömu sköpunarsögu og í norrænni goðafræði, en í Biblíunni er hún komin í áróðursbúning þeirra sem vildu búa til eingyðistrúarbrögð til að réttlæta stöðu konungs, og valdapíramída feðraveldisins, sem stóð á hátindi sínum fyrir 350o árum síðan víða, með hernaði og slíku.

Nema eins og komið er inná í þessu myndbandi, norræna goðafræðin er eldri, upprunalegri. Samanburður sýnir þetta.

Áróðurinn í Biblíunni er mannanna verk. Þessi eini guð er kannski ekki endilega til eða sá algóði, og almáttugi guð sem þar er haldið fram að hann sé.

Eins og kemur fram í þessu myndbandi með vísunum í Aten og Atenisma þá kemur eingyðistrúin frá Egyptalandi, trúin á sólguðinn, (guð gerir kraftaverk einn, dáist að sínu eigin verki og þarf ekki aðra guði).

En fyrir þá sem efast og halda í sína kristni þá eru rökin sterkust á þessa leið: Til eru menjar um eldri þjóðir en Hebrea eða Egypta. Þær þjóðir hafa sameiginleg gildi og trúarbrögð, þætti í trúarbrögðum. Rakið er til þess elzta sem er sameiginlegt. Það eru þrjár verur, tvíkynja vera sem er fórnað, fyrsti maðurinn, fyrsta hetjan og síðan skrímsli sem er stundum fórnað og er stundum naut eða belja eða dreki. Heilög þrenning semsagt af heiðinni tegund og upphaflegri.

Þetta passar við keltenska og gaulverska goðafræði. Taranis verður Drottinn allsherjar, hetjan með þrumufleyginn, hinn almáttugi guð. Esus er andinn, hverjum er fórnað. Teutates er vatnið sem skilur sig í tvennt, og verður sköpunin, landið, lífverurnar.

Vegna þess að til eru eldri þjóðir en Hebrear og Egyptar þá er það ljóst að útilokað er að allt sé hægt að rekja til þeirra. Við verðum því að rekja þá frá öðrum og eldri menningarskeiðum, og þessi for-indó-evrópska menning í Rússlandi fyrir 8000 árum virðist fullnægja öllum skilyrðunum um að vera fyrsta hámenningin, eða með fyrsta vísinn að henni, og þaðan komu bleiknefjar og breiddu sig út um jörðina, til Ísraels, til Norðurlandanna, til Ameríku, Bretlands, Evrópu.

Nei, ég veit að ég get ekki sannfært trúmenn sem eru sannfærðir um að sköpunarsaga Biblíunnar sé réttari en vísindalegar niðurstöður fornleifafræðinga og trúarbragðafræðinga, en samt er rétt að skoða þetta og íhuga.

Oft erum við Magnús Sigurðsson bloggari sammála. Hann hefur skrifað um það að við norðurlandabúar séum færir um að rekja ættir okkar til Gyðinga. Það má vel vera, það eru aðrar kenningar, um ættkvíslir Ísraels. Það er kannski eitthvað til í því að þannig hafi fólk dreifzt um jörðina, en þessi pistill fjallar ekki um það. Það snýst kannski frekar um menningu en um ættfræði. En jafnvel þótt einhverjir svo sunnarlega hafi komið hingað norður, eins og sumir kristnir menn halda fram, þá hefur Kári Stefánsson sýnt fram á að við Íslendingar erum Norðmenn og Írar í nokkuð jöfnum hlutföllum, en örfá prósent koma þó lengra að, jafnvel frá Ísrael eða öðrum svæðum.

Í þessu myndbandi kemur þó skýrt fram að þessi kenning virðist passa við allar niðurstöður vísindamanna, að hin for-indó-evrópska menning er sú sem dreifðist til Ísraels og útum alla heimsbyggðina, það er upprunalega trúin, sem er nær norrænni goðafræði en því sem stendur í Biblíunni í raun.

 


mbl.is Gröf Tútmóses II fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Blessaður Ingólfur, -í þessum pistli kemur þú inn á mikil mál.

Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það því að Guðs ríki er innra með yður; -ég tel að frelsarinn hafi vitað nokkuð hvað hann var að segja, þó svo að hann hafi oft mælt undir rós.

Bóndi og barnaskólakennari, Gísli Hallgrímsson á Hallfreðsstöðum í Hróarstungu, tók upp á því að skrifa bók og gefa út á gamals aldri sem hann kallaði Betur vitað og kom út 1992.

Þar skrifaði hann um atburði í sveitinni sem honum fannst rétt að væru varðveittir á prenti, og ef ég á að segja alveg eins og er, þá voru ekki liðin nema ca. 20-30 ár þar til að hann hafði fullkomlega rétt fyrri sér.

Í bókinni er einn kafli, sem ekki er saga úr sveitinni, hann heitir Íslenska tímatalið. Þar er margt í hugleiðingu Gísla sem er athyglivert, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að bók hans kemur út fyrir tíma internetsins og aðrar leiðir þurfti til að afla óhefðbundinna upplýsinga en nú á dögum nets og gervigreindar.

Gísli telur í það fyrsta að gamla íslenska tímatalið byggi ekki á gömlu norrænu tímatali (þá komnu frá menningu þeirra Norðurlanda sem við erum sagðir hafa komið frá) þessu tel ég mig hafa komist að líka með því að bera mig saman við norska vinnufélaga hvað gamla íslenska tímatalið varðar.

Gísli segir m.a. í Betur vitað, og virðist þar sammála pistli þínum:

Margt bendir til þess að tímatal, sem íslendingar tóku upp líklega þegar Alþingi var stofnað 930 hafi átt rætur sínar að rekja til Babýlon og Persíu. Ef til vill má rekja sumt í tímatalinu til finnskra þjóða, sem ríktu um mörg þúsund ára skeið í löndunum frá Finnlandi til Úralfjalla. Finnsk þjóð lagði undir sig ríki sunnan Kákasusfjalla og lærði þá menningu sem þar var. Menning frá Asíuþjóðum kom norður í Evrópu með Skýþum og svo vestur og norður að Eystrasalti með Gotum. Náskyldar þjóðir áttu vafalítið heima á þessum tíma (400-800 e. kr.)á Austur-Englandi og víða í kringum Eystrasalt. Innhöf tengdu þessar þjóðir saman.

Varðandi allar tímasetningar þá er rétt að hafa í huga að tími er ekki til nema sem mælieining, svona rétt eins og peningar eða sentímetrar. Og menn byggja ekki raunveruleg hús með peningum, né sleppa því vegna skorts á sentímetrum, -hvað þá raunverulega trú með tíma, þó svo að allt annað gildi auðvitað um trúar-brögð.

Takk fyrir áhugaverðan pistil eins og svo oft áður, satt að segja þá vissi ég ekki alveg hvert þú ætlaðir með Gaulverjunum, en það er búið að vera gaman að fá að fylgjast með því ferðalagi.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 23.2.2025 kl. 05:34

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir þetta Magnús, já, margt í þessu svari þínu er þannig að maður þarf að kynna sér það betur.

Nú vantar ekki mikið meira en að Guðjón bæti um betur, hann er nú ekki síður fjölfróður.

Þetta með Skýþa og fleiri, hef ekki alveg kynnt mér það.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 23.2.2025 kl. 06:18

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.2.): 39
  • Sl. sólarhring: 94
  • Sl. viku: 627
  • Frá upphafi: 136679

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 504
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband