14.2.2025 | 02:05
Er það ekki augljóst að ætlunin er að sigra Rússa, ekki að friðmælast? Okkar stjórnvöld vilja útrýma heiminum
Á maður að trúa áróðursvélum Vesturlanda? Hér er því haldið fram að ef friður komist á muni Rússland fara útí styrjöld við Vesturlönd innan fimm ára, kannski.
Er ekki þessi stórstyrjöld hafin nú þegar með aðkomu okkar eigin leiðtoga?
Þarf ekki aðrar aðferðir til að bakka útúr þessu og koma á friði en okkar ástsælu leiðtogar boða af endalausri vizku sinni og kærleika?
Þessar sömu gerónýtu fréttaveitur héldu því fram að almenningur í Rússlandi myndi gera uppreisn nokkrum vikum eða mánuðum eftir að Rússar réðust á Úkraínu, Pútín væri alveg fársjúkur, að stríðinu lyki með sigri Úkraínu strax og margt fleira. Ekkert af því rættist. Síðan var því spáð að efnahagsþvinganirnar myndu gera Rússa gjaldþrota, að þeir hefðu skorið á línurnar til Evrópu, að þeir væru með úrelt og ónýt vopn, að vopnin þeirra væru að klárast. Ekkert af því rættist heldur, og kom í ljós að Úkraínumenn skáru á sæstrenginn, sennilega, samkvæmt evrópskri rannsókn.
Á maður að trúa þessum fréttaveitum okkar heimshluta núna sem halda því fram að stríðið verði að halda áfram, annars geri Rússar árás á Natólönd innan fimm ára?
Það er áhugavert að velta einu fyrir sér með fréttaflutningurinn sem er samræmdur úr RÚV og öðrum fréttaveitum.
Nú er kominn hræðsluáróður í stað hæðninnar um það hversu miklir vesalingar Rússar væru og ófærir um allt.
Það dettur engum í hug af þessum fæðingarhálfvitum að semja frið við Rússa eða BRICS löndin, einfaldlega vegna þess að svona fréttir koma frá Elítunni sem hefur það á stefnuskránni að nota Úkraínu sem brú inní Rússland, og að sigra Rússland og halda áfram nýlendustefnunni gömlu þannig, undir yfirskini fjölmenningar og alþjóðavæðingarinnar, en gróðinn rennur allur í vasa elítunnar, þessa 1% sem á 99% af öllum peningum mannkynsins. Þessa arðránsstefnu styðja vinstrimenn og jafnaðarmenn Evrópu eins og demókratar í Bandaríkjunum, enda eru þeir mestu nýfrjálshyggjukapítalistar nútímans.
Í þessari frétt er það viðurkennt að Rússland er stærsta herveldið á norðurslóðum.
Það sem vantar í þessa frétt að Úkraínustríðið snýst um evrópska pólitík, og um djöflakapítalisma og fjölmenningu. Úkraínustríðið snýst um að verja flokkana í Þýzkalandi sem hata afD og almenning í Þýzkalandi, demókrata í Bandaríkjunum sem hata almenning þar, kvennaveldið á Íslandi sem er í ríkisstjórn og fær nú sennilega líka borgarstjórastólinn í Reykjavík.
Úkraínustríðið hefur ALDREI snúizt um sjálfstæði Úkraínu eða hagsmuni fólksins sem þar býr.
Sjálfstæði er löngu úrelt orð, og það er alveg jafn úrelt í Úkraínu eins og annarsstaðar.
Úkraínustríðið snýst um að ef Rússar sigra þá hafa þeir fleiri og stærri tækifæri til að styðja þjóðernissinnuð öfl á Vesturlöndum, og þá verður töpuð staða jafnaðarfasistanna ennþá vonlausari.
Hvað sagði Albert Einstein? Bezta dæmið um klikkun er að endurtaka það sama þótt það beri engan árangur, eitthvað á þá leið.
Sumir líkja Pútín við Hitler. Þeirra rök eru á þá leið að Pútín ráðist á Evrópu ef hann sé ekki stöðvaður með hervaldi strax, og þetta sé eins og þegar seinni heimsstyrjöldin hófst.
Ætli sannleikurinn sé ekki sá að seinni heimsstyrjöldina var ekki hægt að stöðva.
Ef Bretar hefðu reynt að ráðast á Þýzkaland í forvarnarskyni, þá er erfitt að spá fyrir um hvernig það hefði endað. Þeir sem þannig túlka söguna gleyma að margir voru sammála Þjóðverjum á þeim tíma og studdu rasisma og stefnu þeirra ljóst og leynt, þannig að fráleitt er að leggja okkar gildismat á stöðu mála árið 1939, eða halda að allar þjóðir hafi hatað Þjóðverja þá og nazistana.
Innkoma sumra þjóða í seinni heimsstyrjöldina byggðist á varnarviðbrögðum, og þannig var þetta með Bandaríkjamenn. Eftir árásina á Pearl Harbor neyddust þeir til að taka afstöðu gegn öxulveldunum og með bandamönnum, en höfðu verið hlutlausir fram að því, enda hafði fjármagn þeirra streymt til Þýzkalands ekki síður og til nazistanna þar. Gyðingar vissu um hættuna sem steðjaði að þeirra eigin trúbræðrum þar, en gróðafíknin varð ofaná.
Innkoma Rússa gegn öxulveldunum var einnig varnarviðbragð eftir að Hitler rauf sáttmálann við Stalín með því að ráðast inní Austur-Pólland 22. júní 1941.
Þannig að heimskulegt er að bera saman Úkraínustríðið og seinni heimsstyrjöldina. Aðstæður eru þverólíkar.
Strax í upphafi árásarinnar á Úkraínu stóðu öll Vesturlönd gegn Rússlandi, en allt kom fyrir ekki. Pútín ætlar sér ekki heimsyfirráð heldur að endurheimta stærð Rússlands.
Hvaða tvískinnungur ríkir á Vesturlöndum?
Var það ekki alltaf ætlunin í stríðshaukunum hér og Rússahöturunum að smyrja stríðsvélina og auka gróða elítunnar, eigenda mannkynsins?
Trúir nokkur þeirra fagurgala um mannréttindi og sigur Úkraínumanna?
Er það ekki jafn mikil firra að hægt sé að snúa klukkunni til baka til tíma Angelu Merkel og Evrópufriðarins fyrir 20 árum og sú firra að hægt sé að gera Rússland jafn víðlent og Sovétríkin voru?
Þessi bannsetti helstefnustríðsáróður er gegnsær eins og skólpið úr klósettunum hjá okkur, eins og Bob Dylan söng um í "Masters of War". Hann líkti stríðsáróðrinum í Vesturlöndum og öðrum við skólp og drullu í ræsum, sem það er. ("Like I see through the water that runs through my drain"). (Masters of Wars, 1963).
Eina leiðin til að tryggja varanlegan frið er að hagsmunir beggja ríkjanna sem áður börðust fari saman algerlega, að menningarleg samskipti og önnur aukist svo mjög að enginn sjái sér hag í árásum og stríði. Vopnaskak hefur aldrei treyst neinn frið nema eitthvað ógnarjafnvægi í stutta stund.
Þeir sem hata Hitler eða Pútín verða líka að sætta sig við það að til eru nágrannar frá Helvíti sem þarf að lifa með, eða börn frá Helvíti, foreldrar frá Helvíti, makar frá Helvíti, og svo framvegis.
Allt hefur verið gert til að stöðva Pútín, nú er sagt að hann sé sterkari en nokkrusinni fyrr. Er ekkert bogið við áróður og stefnuna í okkar heimshluta?
Það er ekki nóg með að fréttirnar séu skólp og úrgangur, fólkið er það líka, femínistarnir og aðrir.
Við almenningur á Vesturlöndum höfum gert okkur að aumingjum, andlegum aumingjum og hugleysingjum, fávitum, óvinum lífsins og Guðs. Við kjósum yfir okkur óvini okkar.
Við krjúpum fyrir Satan, það sem Jesús Kristur gerði ekki.
Hér í fréttinni er það viðurkennt að Rússum hefur tekizt að auka verulega hergagnaframleiðslu og uppfæra vopnabúnað sinn.
Með öðrum orðum, Rússar er ekki smáríki sem hægt er að traðka á og ræna öllu af.
Hægt er að virða almenning í Bandaríkjunum meira en almenning á Íslandi. Rúmlega helmingur fólks í Bandaríkjunum fyrirlítur Elítuna og lætur ekki múta sér.
Það bezta sem stjórnvöld gætu gert er að viðurkenna mistök fortíðarinnar. Að viðurkenna hvað gera Rússar rétt og önnur BRICS ríki.
Til dæmis, hvað gera Kínverjar rétt. Af hverju er meiri hagvöxtur þar en annars staðar?
Síðan í kjölfarinu er hægt að friðmælast við Rússa.
Fleiri en þeir hafa framið fjöldamorð.
Ég minni á það sem ég skrifaði nýlega.
Þjóðernishreinsanir duga bezt ef notaðar eru vestrænar aðferðir, mannréttindi, getnaðarvarnir, femínismi og slíkt. Það eru þjóðernishreinsanir sem duga í raun og veru.
Við höfum framið fjöldamorð á OKKAR þegnum með þessum aðferðum.
Ég fordæmi drápin á Rússum og Úkraínumönnum.
En þau dráp og ástæður fyrir Úkraínustríðinu, það á sér aðdraganda.
Forsaga stríða skiptir ALLTAF máli. ÞAR eru ástæðurnar.
Ég fordæmi Úkraínustríðið, en Rússar og Úkraínumenn eru fórnarlömb Jahves, guðs Biblíunnar, sem er að fækka fólki og vill koma á heimsendi.
![]() |
Gætu hafið stórstyrjöld innan fimm ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.2.): 113
- Sl. sólarhring: 124
- Sl. viku: 714
- Frá upphafi: 136531
Annað
- Innlit í dag: 84
- Innlit sl. viku: 592
- Gestir í dag: 79
- IP-tölur í dag: 79
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góð eldmessa Ingólfur, -leiðtogar vesturlanda sitja nú uppi með Svarta Pétur og reyna að ljúga honum upp á almenning landa sinna.
Og ekki er eldri konan í kúlu barnanna best, -virðist hafa lítið lært á lífsleiðinni.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 14.2.2025 kl. 06:27
Arthur Neville Chamberlain veifaði friðaplaggi 1938 og tilkynnti um frið um ókomna tíð. Þá höfðu þjóðverjar verið að sölsa undir sig þýskumælandi héruð af nágrannaríkinu. Þjóðverjarnir nældu sér í ársfrest fyrir vopnaframðleiðslu sína. Friðarsamningurinn við Rússa 31 ágúst 1939, var lykillinn að innrás Þjóðverja á Pólland. Sláandi líkindi eru með Úkraníu stríðinu og innlimunar stríði Þjóðverja fyrir seinna stríð, nema Úkraníumenn hafa þumbaðst við í þrjú ár, með aðstoð, en hún var ekki fyri hendi fyrir 1939.
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 14.2.2025 kl. 08:48
Takk fyrir þetta Magnús. Já Þorgerður Katrín er alveg eins og Þórdís Kolbrún. Sömu upphafsstafir. Natódýrkun, þannig er nú það.
Ingólfur Sigurðsson, 14.2.2025 kl. 19:58
Takk fyrir ágætt innleg Hallgrímur Hrafn. Jú þú kemur með ágætar röksemdir. En voru Rússar búnir að bíta í önnur lönd eins og Þýzkaland? Tsjetsjeníu að vísu, en Rússar halda því fram að Vesturveldin hafi ráðizt á þá með því að gera vestræna samninga við Úkraínu. Þó hefur alþýðan í Úkraínu verið bláfátæk þrátt fyrir þessa samninga við Vesturlönd, nema elítan þar hefur orðið rík. Spillingin er gífurleg í Úkraínu, þetta er ekki einfalt mál.
Takk samt fyrir þennan fróðleiksmola.
Ingólfur Sigurðsson, 14.2.2025 kl. 20:01
Sæll Ingólfur. Hin þýskumælandi Sudeta héruðin voru innlimun í Þýskaland, Vesturveldin létu það afskiptalaust,þá bætti Hitler allri Tékkóslóvakíu við í mars 1939, enn yftu vesturveldin öxlum. Plútin innlimað rússneskumælandi Krímskagann og Donbas án teljandi afskipta vesturveldanna sem yptu öxlum rétt eins og 1939. Því taldi hann óhætt að hrifsa til sín afganginn af Úkraínu átta árum seinna, Hefði leiftur hermaðurinn heppnast á fyrstu tveim vikunum væri Úkranía rússneskt hérað og vesturveldin yppa öxlum rétt eins og í mars 1938..Úkranía hefur þumbast við í þrjú ár með aðstoð. Rússar börðust í fjögur ár við þjóðverja með aðstoð.
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 15.2.2025 kl. 09:05
Sæll Hallgrímur. Þetta hefur þú vel rökstutt og má taka undir það. Þarna eru líkindi. Samt er Pútín að reyna að ná aftur svæðum sem tilheyrðu Sovétríkjunum, útþenslustefna Hitlers var útlistuð nokkuð vel í Mín barátta, Mein Kampf. Svona hefur hernaður verið í gegnum tíðina, sérstaklega í fortíðinni, í hinum eilífu stríðum í Evrópu fyrr á öldum þegar landamæri fóru fram og til baka.
Þau rök hafa ekki verið hrakin að Evrópa og Bandaríkin sjá sér hag í því að nota Úkraínu sem stökkpall inní Rússland. Evrópusambandið með sín kvenréttindi og wókstefnu er í trúboði fyrir slíkar skoðanir og andkristilegan lífsstíl, auk þess sem Evrópa og Bandaríkin vilja ná í auðævi í Úkraínu, sem nóg er af, málmar, korn og fleira.
Annars held ég að Pútín hafi loksins ákveðið að reyna að taka Úkraínu yfir þegar bandaríski herinn yfirgaf Afganistan og Talíbanar unnu auðveldan sigur án mótspyrnu fólksins. Það gerðist strax á eftir, að Pútín hóf innrás sína.
Hann hefur haldið að Úkraínumenn tækju sér fagnandi og að allur heimurinn myndi ekki skipta sér af þessu. Þar feilreiknaði hann sig.
Já ég vil taka því fagnandi þegar menn leiðrétta mig. Enginn hefur víst rétt fyrir sér alltaf.
Takk fyrir.
Ingólfur Sigurðsson, 21.2.2025 kl. 02:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning