23.1.2025 | 04:08
Orðalag og skynjun almennings
Í RÚV kom það fram nýlega að reiði almennings, sem leiddi til óeirða hafi byrjað vegna falsfrétta og lyga þess efnis að gerandinn væri innflytjandi eða flóttamaður.
Sannleikurinn er sá að morðinginn er afkomandi innflytjenda til Bretlands en er það ekki sjálfur, heldur kominn með brezkt ríkisfang. Það þýðir að sannleikskorn var í kjaftasögunni, falsfréttinni, lyginni. Sannleikskornið var nógu stórt til að hafa áhrif á þúsundir manna og kvenna og láta þau hefja mótmæli, eða óeirðir - það má líta á það á tvennan hátt. Margir sem mótmæltu vildu breyta pólitíkinni og voru ekki sátt við hana, og eru ekki enn.
Múgæsingin sprettur af hughrifum sem spretta út frá húðlit afbrotamannsins, sem er dökkur en ekki í anda flestra Breta, ljós. Kjaftasögur þess efnis fara af stað um að afbrotamaðurinn sé flóttamaður, og greinilegt er að reiðin er kraumandi í þjóðinni og undirliggjandi til að fjölmennar óeirðir geti hafizt, eins og gerðist í Bretlandi.
Af þessu má læra að fréttafólk getur ekki stöðvað reiði almennings með því að þegja um bakgrunn afbrotamanna, það kvisast út og verður að kjaftasögu sem verður 1000 sinnum sterkari en sannleikurinn, og meiri reiðivaldur!
Trump er jú kallaður rasisti af wókliðinu sem er líka til á Íslandi, en ef maður skoðar hans aðgerðir í þessu ljósi, að hátt hlutfall afbrotamanna kemur úr svona hópum, jafnvel úr annarri eða þriðju kynslóð fólks með framandi bakgrunn, þá er það skiljanlegt að hann vilji loka landamærunum og almenningur sé sammála honum.
Hversu mikið af pólitík síðustu áratuga er úrelt rugl?
![]() |
Játaði allt á fyrsta degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Hvers vegna gerir ekki ungt fólk á Íslandi uppreisn gegn komm...
- Ég ber hæfilegt traust til beggja kvennanna en efast líka tal...
- Leikritið heldur áfram, þar til blekkingin fellur til fulls
- Sköpunarsaga Biblíunnar, Genesis kemur frá norrænu fólki sem ...
- Fáein orð í keltnesku, gaulversku. Kennsluþáttur í útdauðu má...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.2.): 83
- Sl. sólarhring: 143
- Sl. viku: 807
- Frá upphafi: 137130
Annað
- Innlit í dag: 75
- Innlit sl. viku: 616
- Gestir í dag: 73
- IP-tölur í dag: 72
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
RÚV gerir ekkert annað en að bera út lygar, og hefur sennilega verið að stunda það síðan 1966,
Ásgrímur Hartmannsson, 23.1.2025 kl. 16:47
Takk fyrir innlitið og athugasemdina Ásgrímur. Mér fannst RÚV ágætt mjög lengi, en ömurleg er wók stefna þess hin síðari ár, og eiginlega brot á stjórnarskrá. Ríkisúvarp á að stuðla að öllu sem er þjóðlegt - sízt að fara gegn því.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 24.1.2025 kl. 03:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.