Umhverfisvernd VERÐUR að hafa meiri áhrif, stöðva hamfarahlýnun!

Getur þrjózkt Trump-liðið afneitað sínum eigin syndum og sekt sinni, ábyrgð á því að hafa hækkað hitastigið á jörðinni?

Ég hef aldrei gengizt inná það að hunza boðskapinn um hamfarahlýnun eða afneita áhrifum okkar tegundar á umhverfið. Umhverfisverndarsinninn í mér vaknar þegar ákveðnar fréttir berast sem tengjast hamfarahlýnun og mengun.

Um þá hörmulegu atburði sem gerast í Los Angeles verður manni orðs vant. Nokkrar tilvitnanir hér fyrir neðan eru úr athugsemdakerfi DV, en einn af þeim held ég að búi þarna á svæðinu, því hann kemur með sláandi upplýsingar sem telja má innanbúðarupplýsingar, sem aðeins sá sem býr þarna getur vitað um. Þær upplýsingar gefa skýringar sem ekki koma fram í RÚV eða Stöð 2:

"Californíu ríki brennur núna sem mesta sjálfskapar-víti sem sögur fara af. Fjárlög slökkviliðsins hafa verið skorin niður. Búnaður hefur verið seldur burt. Starfsloka samningar hafa verið gerðir við mestu reynsluboltana af því þeir voru "of hvítir". Í stað þess hefur verið ráðið hinseginfólk sem veldur ekki starfinu. Uppistöðulón eru tóm því að vatninu hefur verið veitt í burtu. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessar hörmungar, en þetta er það sem kjósendur vildu... og núna neyðast þau til að horfa í augu við afleiðingarnar!" (Valtýr Kári).

"Mun bara versna með loftslagsbreytingum" (Viðar Pétursson).

"Vísindamenn hafa áratugum saman varað við því að auknir skógareldar yrði afleiðingar hlýnunarinnar. Því miður hefur lítið verið hlustað á þessar viðvaranir". (Sigmundur Guðmunsson).

"Eignaeigendur gætu þurft að óttast um tryggingabætur, því tryggingafélögin gætu lýst sig gjaldþrota, því þetta eru meðal dýrustu eigna í L. A." (Sævar Albertsson).

Ef það er satt og rétt sem kemur fram í máli Valtýs Kára hér á undan þá er það stórmál og gagnrýni sem þarf að taka mark á. Ég held að boðskapur af þessu tagi geti ekki verið skáldaður, því þessu er lýst í smáatriðum af þeim sem til þekkir, bæði til stjórnmála, atvika og staðhátta þarna.

Ef þetta fær ekki stjórnmálamenn og almenning til að snúa við og minnka mengun, þá hvað?


mbl.is Borgarstjóri LA virti blaðamenn að vettugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Hvort sem trúað er á hamfarahlýnun eða ekki þá hafa þessir eldar í L.A. ekkert með það að gera. Það var búið að vara við því í mörg ár að byggt væri of nærri skógum, rafveitukerfi væri illa viðhaldið og eldfim og svo auðvitað það versta mynd, sem gerðist núna, að einhver kveiki eld.

Það eru fá ár síðan brunnu heilu þorpin í Kaliforníu út af þessu og þá var að auki minnst á grisjun skóga.

Ekkert að ofantöldum ráðum hefur breyst undanfarin ár og því kemur upp versta sviðsmyndin. Hamfarahlýnun kom bara ekkert nærri.

Rúnar Már Bragason, 11.1.2025 kl. 17:01

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Jú, að minnsta kosti að einu leyti. Þurrkar höfðu verið á svæðinu í marga mánuði, ekki rignt í marga mánuði. Auk þess hærra hitastig á jörðinni allri í fyrra en mælingar hafa nokkrusinni sýnt - en ég veit að mælingar ná ekki mjög langt aftur að vísu.

En rétt er það að púðurtunnan var fyrir hendi sem tundrið náði í. Púðurtunnar var af mannavöldum eins og þú lýsir í þinni athugasemd og ég fjalla um í pistlinum, vitna þar í aðra.

Ég veit að hamfarahlýnun er hugtak sem ekki eru allir sammála um. Þó eru fleiri málsmetandi vísindamenn sem taka undir þetta en mótmæla þessu. 

Hamfarahlýnun kom nærri að þessu tvennu leyti sem skiptir sköpum: Aðstæður fyrir manngerðu púðurtunnuna voru allar fyrir hendi. Þurrkar, hátt hitastig. Meiri líkur en minni að mengun af mannavöldum hafi þar ekki gert betra ástand heldur verra. Þó er það rétt að eldfjöll og ýmis atriði sem ekkert koma við manninum geta líka haft mikil áhrif.

Manngerða púðurtunnan er það atriði sem hægt er að hafa áhrif á, og líka að minnka hamfarahlýnun.

Með manngerðu púðurtunnunni á ég við uppsögn reyndra slökkviliðsmanna, að hafa ekki grisjað trjágróður, kannski að taka ekki nógu hart á brennivörgum, ef það er rétt að þeir hafi verið að verki, og að hætta niðurskurði á mikilvægum innviðum.

Það er bara eðlisfræði að gróðurhúsaáhrif eru staðreynd.

En öllum velkomið að koma með athugasemdir, takk fyrir innlitið.

Ingólfur Sigurðsson, 11.1.2025 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.2.): 5
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 533
  • Frá upphafi: 135399

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 461
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband