Það er áhugavert að flokkur eins og aFD kemst ekki til valda í Þýzkalandi, þrátt fyrir allt. Öll rök benda til þess að slíkt afturhvarf sé nauðsynlegt, en varnaglarnir sem voru byggðir eftir WW2 forhindra það - þótt þeir séu fyrir löngu orðnir úreltir og skaðsamlegir. Þetta er ósköp svipað og á Íslandi, óvinir Sjálfstæðisflokksins eru meira áberandi en þeir sem gagnrýna spillingu vinstriflokkanna sem halda þjóðernissinnum næstum allsstaðar frá völdum, nema í Bandaríkjunum. Þó gæti ég trúað að búið sé að temja Trump og hann gæti orðið mun spakari á þessu seinna kjörtímabili - en þó sjálfum sér líkur og mörgum til ama.
Öll viðbrögð við svona atburðum eru í öllu þjóðfélaginu þýzka (og vestræna, hvaða lönd sem eru nefnd) "kvenleg", ekki reiði, heldur samúð með fórnarlömbum. Þannig fer þegar búið er að banna reiðina (slíkt kallað haturstjáning), að þjóðin öll í heild frá A-Ö verður fórnarlamb sem lætur taka sig í óæðri endann. Það á víst við um öll Vesturlönd eins og þau leggja sig.
Þannig að jafnvel þótt aFD stækki meira og komist kannski til valda, þá fá þeir engu eða litlu að stjórna. Pólitísk hrossakaup valda því að þeir þurfa að stjórna með öðrum, og þá verður ekki neitt úr neinu.
Niðurstaðan er sú að vestræn þjóðfélög eru ónýt, og slátra eigin þegnum en hjálpa öðrum að dafna.
En alþjóðalögin styðja þetta - og því fer sem fer.
En mannkynið allt deyr út, því mengunin sér um það, og kjarnorkuvopnin sem komast í hendur æ meiri öfgahópa.
![]() |
Árásarmaðurinn sagður vera geðlæknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Hægt og bítandi eru hneykslismálin að grafa undan ríkisstjórn...
- Nýr erkidrúíði, páfi öðru nafni, hefur verið valinn
- Pútín ætti að læra að sigra með afþreyingu, rússneskri Hollyw...
- Eðli kommúnista er að búa til dúmur, forum, ráð og allt það, ...
- Guðinn sem er yfir og allt um kring, Taranis, og hvernig hann...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 12
- Sl. sólarhring: 68
- Sl. viku: 648
- Frá upphafi: 145282
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 398
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.