Það eru mestu friðarins menn sem eiga á hættu að vera ráðnir af dögum, eða voru drepnir. Banatilræðin við Donald Trump sýna hversu mikil tímamót felast í honum sem forseta

Þetta er annað banatilræðu við Donald Trump á skömmum tíma. Þetta afsannar þá tilgátu að Trump skipti engu máli, sé heimskt smámenni og þeir sem eru fylgjendur hans.  Þetta sýnir ennfremur fram á að hann er raunveruleg ógn við spillingu og vonda einstaklinga af báðum, (eða maður á víst að segja öllum) kynjum.

Stórmenni eins og John Lennon og John F. Kennedy, Martin Luther King og Robert Kennedy voru drepin á þennan hátt.

Allir vita að þessir einstaklingar breyttu mannkynssögunni. Það gerði Donald Trump líka, en ef hann verður kosinn aftur verður hann mikil ógn fyrir helstefnuöflin í heiminum, vopnaframleiðendur, stríðsæsingafólk, eiturlyfjaframleiðendur og marga slíka miður ágæta einstaklinga.

En ég er ekki of viss um að Trump verði forseti í annað sinn, en sjáum til, það getur svo sem verið. Ég held að það sé rétt hjá Trumpistum að Bandaríkin verði aftur leiðandi í menningunni ef hann verður aftur forseti.

Framfarir yrðu það ef Vesturlönd stigju til baka og frá þeim vinstriöfgum og jafnaðaröfgum sem hafa ríkt á okkar svæði. Það er ekki kvenhatur eða rasismi, það er samkvæmt trúarbrögðum sem geyma dýrmætari boðskap en mannasetningar þótt komnar séu í alþjóðalög.

Jöfnuður er ónáttúrulegur, og jafnaðarstefnan er satanísk. Hún gengur ekki upp í náttúrunni þar sem stéttskipting ríkir.

Það sem drífur áfram lífsviljann og náttúruvalið, það er breytileikinn, ekki aðeins milli tegunda heldur einstaklinga. Jafnaðarstefnan er því glæpur gegn mannkyninu.

Sumir kalla það kannski framfarir að fá Kamölu Harris sem forseta, en það er nú sama stefnan sem hún hefur og ESB, þar sem samdráttur ríkir, og Evrópa er eiginlega fallin undir þeim stjórnmálum jafnaðarfasismans. Stríðsæsingastefna femínista er líka ljós, í ESB og meðal demókrata Bandaríkjanna, og hluta repúblikana.

Mér er sama hvort hún er indversk, eða blönduð, svört eða eitthvað annað. Þótt Trumpisminn séu öfgar að sumra áliti, eða að einhverju leyti, þá er wókisminn hennar Kamölu Harris það líka, og mér finnst skárri kostur að rétta sig af og fara í kristilegra þjóðfélag eins og Trump vill.

Að elska konur og alla kynþætti felst í frelsinu, og að fara eftir hefðum sem gera ráð fyrir að konur séu heimavinnandi og landslög og alþjóðalög endurspegli það.

Einnig er það eðlilegt að fólk sem þróaðist á heitum svæðum eigi þar kjörlendi og fólk sem þróaðist á köldum svæðum eigi þar kjörlendi.


mbl.is Trump virðist hafa verið sýnt banatilræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mennirnir á bakvið tjöldin eru lafandi hræddir við hann.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.9.2024 kl. 15:37

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já vissulega. Þetta gerir kosningabaráttuna enn meira spennandi og hún var spennandi fyrir. 

Ingólfur Sigurðsson, 16.9.2024 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 101
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 785
  • Frá upphafi: 129900

Annað

  • Innlit í dag: 90
  • Innlit sl. viku: 601
  • Gestir í dag: 83
  • IP-tölur í dag: 80

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband