Hvar sálin dvelur kyrr, ljóð frá 23. október 1991.

Margar magna seið,

maður er sem dauður, frosin sál.

Ljós er hennar leið,

löngun svo til staðar...

Hún vill kannski Herjans bál,

en harmur dregur mann frá...

Eins og auðvelt sé

að æða í drykkju, týna sér?

Frekar fæ mér hlé

og flý á vængjum andans bara hér.

Margar þó glettnar, glaðar,

geta mig tælt, en varla er þar nægileg þrá.

 

Bauð mér brennivín,

á ball mig vildi fá.

Ef hún bara væri vinkona mín,

veitztu... talaði á daginn

við mig, þannig kannski... þá...

en þetta er ekki rétt.

Ef ég bara gæti gleymt

gellunni sem ég elska mest.

Hefði heimt

hana en engan brest.

Sniðugur snaginn,

snuddan sem hver þarf, en býður annan klett...

 

Heldur kannski hún

að holdfýsn leið sé rétt?

Gæti ég freistazt glaðri af brún?

Glötunin víða, freistingar nýjar.

Berglind verður bara mett

af bræðrum sem það skilja í dag.

En sál mín hrópar samt á annað fljóð,

sjáðu, bara Herdís náði mér...

Ei var alveg góð,

en einhvernveginn burt ei fer...

Fýsnin mig fríar,

en fæstar reynast draumur, aðeins týndist lag...

 

Þú elskar ekki fyrr

en andinn talar með,

og sýnir þér hvar sálin dvelur kyrr.

Sameiginlegt... skilurðu, nenni?

Hvað getur annars skynrænt skeð?

Ó skylduræknin, námið, sinni því...

Hér ekki er ljóst hvað annars vil,

ætti ég að mæta og kannski byrja strax

með henni, skugga skil...

skaðinn fram til næsta dags?

Erum aðeins brenni?

Eins og vafinn kremji mig, ó skil ei mig á ný!

 

Mér líkar hana líka við,

ei ljóshærð kannski en snotur þó.

Kannski getur fært mér frið,

finnst mér rétt að kíkja á ballið?

En ákvörðun tekin, innar smó,

aldrei hverfur, þú lifir með henni síðar, já...

Hún ætlar að negla mig, það allvel finn,

og ekki vil ég hlýða, byrja henni með...

Hvort geri ég mistök mjúka skinn?

Mun ég reiðast? Getur eitthvað betra skeð?

Skyndikynlíf, skrallið...

skil ei hvort ég vil það, bara gredda? - Dýpri þrá?

 

Ef ég aðeins traust

eitthvað fyndi, get ei talizt vél...

Nú er Heljar haust,

hafsins dætur bjóðast, samt er meiddur...

Ef þú hikar ertu bara skel,

andinn grætur, kallar blíðu á...

Félagslífið fátæklegt,

finnst ég þurfa sjálfstraust meira í dag.

Þeirra þrá, margt undarlegt,

þú munt ekki koma sorg í lag...

Samt í dansinn seiddur,

sannarlega vill mig hella fullan skvísan, hika, dauf er þrá...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 152
  • Sl. sólarhring: 198
  • Sl. viku: 710
  • Frá upphafi: 119664

Annað

  • Innlit í dag: 134
  • Innlit sl. viku: 573
  • Gestir í dag: 125
  • IP-tölur í dag: 122

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband