Amma og afi, pistill í tilefni af afmæli afa, fæddist 24. júlí 1916.

Afi minn Jón Agnarsson á það alveg skilið að ég minnist hans á afmælisdegi hans sem er 24. júlí. Hann fæddist 1916 en lézt 2015. Hann varð næstum 99 ára. Hann hefði sennilega lifað af hjartaþræðingu, en það var ákvörðun læknanna að fara ekki útí hana vegna þess að hann var orðinn svona aldraður, en hann var af þeirri gerðinni að hann hefði talsvert líklega lifað hana af.

Það er einmitt vegna þess að mannkostir hans eru sjaldgæfir í nútímanum sem maður minnist hans, en þeir voru mjög algengir í upphafi 20. aldarinnar og fyrr á öldum býst ég við.

Til dæmis á ég við vinnusemi og heiðarleika, sjálfstæði og stolt yfir því að vera Íslendingur. Hann vildi alltaf vinna fyrir sér og ekki þiggja hjálp eða ölmustu ef hann gat undan því komizt. Það sem gerðist í Hruninu 2008 var vegna þess að manngerðir voru þá uppi sem voru öðruvísi en þetta gamla fólk.

Húsið okkar var eins og skip sem hélzt á floti vegna hans. Hann byggði húsið sjálfur, að Digranesheiði 8, Digranesvegi 92 áður, og 46 þar áður.

Hann var trésmiður, vélvirki, járnsmiður, pípulagningamaður, uppfinningamaður, rafvirki og margt fleira, alhliða reddari sem sá um að allt væri í lagi.

Ég ætla ekki að gleyma ömmu, Sigríði Tómasdóttur. Hún var frá Snæfellsnesi. Bæði voru þau fátæk, amma ólst upp í torfbæ en afi í bóndabæ sem var steinhús en einnig að hluta til úr torfi og timbri.

Amma var ári eldri, fæddist 1915 en dó 1985.

Í gær fann ég ljóðabók í Góða hirðinum sem heitir "Kveðjubros" eftir skáldkonuna Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Melgerði. Í formálanum kemur fram að hún var frá Ströndum eins og afi, en Kollafirði og því ekki sömu slóðum, afi var frá Trékyllisvík.

En það sem heillaði mig við þessa ljóðabók er sama trúræknin og hjá ömmu, Sigríði. Skáldkonan Guðrún mætti miklu mótlæti í lífinu en varð 93 ára, en var lömuð stóran hluta ævi sinnar og rúmliggjandi. Engu að síður reiddist hún ekki Guði eða Kristi heldur bar í brjósti eilífa trúarvon og trúarhita ef marka má kvæði hennar.

Þessar gömlu konur lærðu aldrei að hata karlmenn og eignuðust mörg afkvæmi. Að missa ekki vonina er dýrmætt. Böl kulda og trúleysis læsti helköldum klóm sínum í þjóð okkar síðar, er hún var farin á vit feðra sinna og mæðra.

Hún bjó á Elliheimilinu Grund lengi eftir að maður hennar dó og orti þar á meðan heilsan leyfði. Er hún af mörgum talin kvenhetja, jafnvel nútímakonum.

En amma Sigga og Jón afi voru alltaf samhent. Bar held ég aldrei skugga á hjónaband þeirra.

Það heyrði ég frá mömmu og öðrum að amma hafi verið of nægjusöm og ekki heimtað nýjar mubblur eða annað af afa eins og hún hefði átt að gera. Um þetta má deila.

Eitt sinn spurði nágrannakona okkar mig að því sem hafði verið góð vinkona ömmu löngu eftir að amma var dáin hvort afi hafi ekki verið karlrembusvín eins og margir voru taldir af hans kynslóð, reyndar ekki með þeim orðum, en ég skynjaði að hún meinti það, en ég tók af allan vafa að svo hafi ekki verið.

Nei, málið var það að þau voru svo samstíga, að ég held að amma hafi talið það frekju af sér að krefjast of mikils af honum. Þetta var bara tíðarandinn, að bera virðingu fyrir eiginmanninum og leyfa honum að ráða.

Mér er það ljóst að afi hefði virkilega getað orðið ríkur ef hann hefði bara viljað það og haft metnað í þá átt. Það má segja að hann hafi hugsað smátt í þeim efnum, en auk þess hafði hann óbeit á peningagræðgi sem maður fann á honum.

Það var líka annað sem einkenni afa, og það var að hann hafði óbeit á því að láta á sér bera. Hann var ímynd hógværðarinnar. Hann neitaði blaðamönnum um viðtöl sem vissu að hann var einstakur uppfinningamaður. Það var ekki nema ef þeir tóku mynd af bílnum hans við bílastæði og spurðu hann spurninga án þess að taka það fram að þeir væru blaðamenn sem myndir birtust af honum í gegnum árin.

Ef afi hefði stækkað verkstæðið og fengið menn í vinnu þá hefði hann getað þénað vel. Um mjög langt árabil komust færri að en vildu.

Þegar ég var 10 ára ákvað ég að flytjast til ömmu og afa. Það var haustið 1980. Þegar húsið hans afa var rifið 2021 missti ég það æskuheimili sem veitti mér innri frið og var tákn um kærleika og frið fyrir mig. Það voru alltaf vondar minningar tengdar við Álfhólsveg 145 þar sem ég ólst upp frá 6 ára til 10 ára, því ekki var mamma í nógu friðsamlegri sambúð þar.

Kannski langar mig að gefa út ævisögu afa og ömmu sem ég hef skrifað, en ég hef ekki reynt að fara með handritið til útgefenda enn að minnsta kosti. Það er svolítið sem mig langar til að gera. Kannski læt ég verða af því, og vonandi finnst áhugi á að gefa þetta út.

Það eru svo sem til margar svipaðar ævisögur fólks frá þessum tíma, en saga hverrar ættar er sérstök og einstök út af fyrir sig, ekki er alltaf alveg sama sagan sögð.

Það eru til margar fallegar konur og stúlkur í nútímanum, en maður ber þær svolítið saman við ömmu. Hún fórnaði sér fyrir manninn sinn og börnin, fyrir heimilið. Ungar nútímakonur sem hugsa um kynlífið sem eitthvað sem eigi bara að gleðja þær og einnig sem halda að trúnaður og tryggð við sama makann sé ekki endilega sniðugt fyrirbæri þegar allir hugsa um að græða og tolla í tízkunni, þær standast ekki samanburðinn við ömmu sem ól mig upp jafnvel frekar en mamma. Eigingirni er ekki nógu gott fyrirbæri.

Einnig minnist ég þess hvernig amma og afi ræddu saman. Oft ræddu þau um pólitík áður en þau fóru að sofa og voru þá sammála. Afi var á verkstæðinu frá 8 á morgnana til kvölds. Amma tók á móti kúnnum og bauð þeim kaffi og meðlæti sem hún bakaði jafnvel sjálf  eða keypti úti í búð.

Amma talaði mikið um ættfræði. Hún spurði hverra manna fólk var og þekkti til örnefnanna á landinu og þekkti allskonar fólk hér og þar, eða kannaðist við það. Hún var eins og gagnabanki.

Amma var líka mjög lífsglöð og kát. Hún hló mikið og brosti, hún söng hárri sópranrödd þótt aldrei hefði hún lært söng. En hún mundi lög og texta sem hún heyrði í útvarpinu eða í leikhúsinu eða annarsstaðar.

Mamma var með allskonar mótþróahugmyndir. Hún byrjaði að vinna í mjólkurbúð sem unglingur og síðan við allskonar störf, sem hún hefur verið samvizkusöm að sinna.

En amma ætlaðist til að hún hjálpaði til við heimilisstörfin, en mamma var alltaf ófús til þess. Hún lá í ástarsögum daginn út og daginn inn, lét sig dreyma um draumaprinsa og fullkomna menn. Amma miðaði við kröfurnar sem hún sjálf ólst upp við.

Ég hef spurt mömmu nýlega að því hvort hún sé femínisti, en hún neitar því. Þó getur hún ekki neitað því að hún varð fyrir miklum áhrifum frá femínistum, og þótt hún neiti því að vera femínisti hafa femínistar stjórnað henni mjög mikið án þess að hún viðurkenni það.

Þessi pistill átti víst að vera um afa. En það lýsir afa líka mjög vel að fjalla um ömmu, eiginkonuna hans, og konuna sem hann elskaði alltaf.

Afi átti trúartraust en hann talaði sjaldan eða næstum aldrei um trúmál. Afi reyndar var þögull maður og talaði lítið yfirleitt.

Hinsvegar hlustaði hann vel og kom með eitt og eitt orð eða setningar sem oft gátu geymt merkilega og skemmtilega speki.

Oft hélt ég ræður um Ásatrú eða heiðni og hann hlustaði án þess að móðgast. Þá fór hann með kvæði sem hann kunni um Ásbrú, Óðin og Sleipni hestinn hans, kannski eftir Einar Benediktsson, en hann kunni mörg kvæði utanað.

Afi var opinn og frjálslyndur að mörgu leyti. Amma var sannkristin og móðgunargjörn og gat fordæmt trúleysingja eða þá sem ekki voru samkvæmt hennar stöðlum, eða kristinnar trúar almennt.

Áður en amma dó var ég kominn í uppreisn gegn henni. Kannski var það ekki fallegt af mér, en svona eru unglingar. Það var áður en ég heyrði fyrst í Sverri Stormsker. Það gerðist 1986, ári eftir að hún dó.

Uppreisn mín gegn ömmu fólst í því að ég rökræddi við hana um trúmál og efaðist, um það leyti sem ég fermdist, 1984. Það var svo margt sem ég gat ekki talið trúlegt. Amma kenndi Megasi um og vildi að ég hætti að hlusta á hann, en það gerði ég ekki, heldur varð æ ákafari aðdáandi hans eftir að við amma urðum ósáttari um trúmál.

Samt finnst mér gott að við amma sættumst alltaf. Hún áleit mig vera með unglingaveikina og fussaði bara og sveiaði og bað Guð að hjálpa mér og fyrirgefa ef ég guðlastaði eða sagði eitthvað sem hún var óánægð með.

Árið 1987 fór afi að huga að heilsunni og meðal annars með því að fara í jógatíma, Róshildur Sveinsdóttir kenndi honum jóga, en mamma var ekki hrifin af því, því mamma taldi jóga heiðið og austrænt og því ekki guði kristninnar þóknanlegt, en afi var ekki svo forhertur að láta það á sig fá og hélt áfram í jóga.

Ég held að góðir mannkostir komi oft þegar fólk elzt upp við erfiðar aðstæður. Amma mín Sigríður ólst upp við mikla stéttskiptingu. Hún bar alla tíð mikla virðingu fyrir prestum, bankastjórum og alþingismönnum.

Skólakerfi nútímans kennir jöfnuð og kommúnisma. Allir eiga að heimta sem mest fyrir sig.

Kosturinn við uppeldið sem amma fékk er að hún var auðmjúk og þakklát. Hún var ekki heimtufrek eins og kynslóðirnar sem komu á eftir.

Það er til mjög skemmtileg saga sem amma sagði og sem raunverulega gerðist.

"Eitt sinn stóð hann bara á tröppunum hjá okkur og vildi koma inn!" Amma var mjög stolt af því að hafa talað við einn ráðherra landsins, og auk þess mann sem hún hélt mikið upp á og var ein af sjálfstæðishetjum landsins að hennar mati.

Hún var að tala um einn RÁÐHERRA landsins, Hermann Jónasson, sem var pabbi Steingríms Hermannssonar. Já, hann kom víst einu sinni inn í stofu til ömmu þegar afi var ekki heima og það var víst á sunnudegi árið 1952, þegar hann var landbúnaðarráðherra.

Þessi saga er mjög merkileg. Kannski sýnir hún að Hermann Jónasson var við alþýðuskap og lét ekki undirtyllur gera allt fyrir sig.

En ég þekki ekki forsöguna, veit bara brot af þessu. Ég veit samt ástæðuna fyrir því að Hermann Jónasson kom í heimsókn.

Þegar afi var að byggja húsið að Digranesheiði 8 frá 1946 til 1950 þá var hann held ég of stoltur til að biðja um bankalán. Þá var það pabbi hans sem fór á fund einhvers bankastjóra eða ráðherra og fékk lán fyrir hann.

Finnbogi Rútur og Hannibal voru skyldir afa og það mun hafa hjálpað uppá lánið. En ég held að langafi hafi talað við Finnboga Rút eða einhvern háttsettan.

Allavega var það þannig að ég veit hvernig afi fékk efnið í þakið á húsinu. Það var bárujárn sem var sléttað og fengið úr bragga sem var verið að rífa um þetta leyti, árið 1949.

Þegar Hermann Jónsson kom var það eitthvað út af þessu, semja um eitthvað svona eða eitthvað tengt þakinu og bárujárninu sem var keypt í það og einhver ráðherrann hafði reddað held ég.

Þetta voru skrýtnir tímar. Íslendingar voru svo fáir. Það varð stundum að hafa sambamd við áhrifamikla menn og því var oft tekið vel.

Ingvar frændi, bróðir hans afa, hann erfði þennan metnað sem Agnar langafi hafði. Ingvar skrifaði í Morgunblaðið allskonar pistla, bæði um Nýalssinnamálefni og dýravernd og fleira. Ingvar bróðir hans afa vildi að Nýalsmálefnið yrði frægt um öll lönd og hafði þannig stórar hugsjónir.

Já ég man eftir fleiri smáatriðum úr þessari sögu sem amma sagði. Þetta var skömmu fyrir hádegi og hún var að elda matinn. Af einhverjum ástæðum var afi ekki heima, sennilega að sinna viðgerðum úti í bæ.

En ég vissi það líka að afi stóð í skilum og þetta varð ekkert vandamál, en í þetta eina skipti kom ráðherrann mikli í heimsókn sem amma bar mikla virðingu fyrir. Annað skipti þegar afi þurfti bankalán var 1992 til 1993, en þá voru vegirnir allir grafnir út og suður í brekkunni vegna viðgerða, og viðskiptavinirnir komust ekki. Afi fékk engar bætur fyrir það, nema malbikað planið til hálfs þegar vegurinn var malbikaður í kjölfarið árið 1993.

Já, talað var um það að Kópavogur hafi verið svefnbær þegar kommúnistarnir voru þar við völd, og göturnar ekkert malbikaðar og allt hafði staðið í stað, stöðnun á öllum sviðum.

Afi minn var alltaf vinnandi, en samt var hann ekki eins og pabbi sem sagði mér að tónlistarmenn (eins og ég) sem ekki urðu landsfrægir og gætu lifað af list sinni ættu að finna sér aðra vinnu.

Afi lifði samkvæmt því að allir væru mismunandi og ekki þýddi að reyna að breyta fólki. Þessvegna þrasaði hann eiginlega aldrei í mér, nema út af drasli og kenndi mér að vaska upp eftir sjálfan mig.

Það er margt fleira sem ég gæti skrifað um afa. Ég hef áður skrifað um það að hann var viðgerðarmaður af Guðs náð og einnig vel menntaður á því sviði.

Það var mikill missir að verkstæðið hans var rifið. Þangað sóttu margir til að gera við bílana sína, til að fá aðstöðu, jafnvel eftir að hann var dáinn. Öll verkfærin voru til staðar, og líka þessi sérsmíðuðu verkfæri og skrýtnu sem hann bjó til, en gerðu vissulega sitt gagn og biluðu aldrei.

Hann var þolinmóður og úrræðagóður. Ef eitthvað var ekki til smíðaði hann það bara sjálfur, en var ekki sáttur við þessa tölvuvæðingu í bílunum, því það var nokkuð sem hann réð ekki við, og hann hafði ekki heldur neina trú á rafbílum.

Hann hafði sennilega rétt fyrir sér að því leytinu til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Miklar þakkir fyrir þessi minningarbrot Ingólfur, þetta er svona óður til fortíðar, til þess kjarna sem byggði upp Ísland og gerði landið okkar að svona góðum stað til að búa á.

Mér líst vel á að þú ætlir að reyna að fá ævisögu afa þíns og ömmu útgefna, okkur ber skylda til að viðhalda minningu genginna, höfum við gáfu til að skrifa um hana, þá eigum við að gera það.  Höfum við til þess tök og tíma.

Eitt skyggir samt á Ingólfur, sem ég vil benda þér á. Treystu lesandanum fyrir ályktanir og samanburð við nútímann, ekki segja það fyrir hann.

Þannig er sagan sterkust, áhrifaríkust.

Eins og hún er, og hún á að vera.

Kveðja úr sumarblíðunni fyrir austan.

Ómar Geirsson, 24.7.2024 kl. 13:29

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þakka þér kærlega innlitið Ómar og góða ábendingu. Já, þú ert stílsnillingur á þinn hátt, og má af þér læra vissulega.

Takk fyrir hvatninguna

kveðjur til ykkar fyrir austan.

Ingólfur Sigurðsson, 24.7.2024 kl. 14:34

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Blessaður Ingólfur, -ég tek heilshugar undir orð Ómars og vil bæta því við að þér tekst sjaldan betur upp en þegar þú skrifar um afa þinn og ömmu.

Leifðu minningunni um þau að lifa, -þjóðarinnar vegna.

Takk fyrir pistilinn.

Magnús Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 06:40

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég þakka fyrir það hól og innlitið Magnús, en ég er mjög ósammála um hvaða pistlar mínir eru skárri eða beztir. 

Kannski er aðalástæðan fyrir því að ég fer ekki með þetta handrit að þeirra sögu til útgefanda að ég er mjög óánægður með það. Athugasemd Ómars hittir nefnilega beint í mark, ég er beztur í að draga ályktanir og verstur í að segja frá. Ég þarf að láta frænda minn (bróðir mömmu) eða mömmu koma með flestar staðreyndir í þessa bók sem ég reyndi að skrifa, og í handritinu er alltof mikið af tilfinningalýsingum, og það finnst mér vondur stíll. Ómar skilur þetta.

Það er kannski hægt að koma þessari bók saman, en ég skrifa allt betur en ævisögur.

Hér eru smámenni á blogginu eins og annarsstaðar sem viðurkenna ekki að mínir pistlar eru með þeim albeztu, og sérstaklega þegar ég fjalla um samsæriskenningar. Ég er félagslega útskúfaður sem öryrki og geðklofi og því tekur þjóðin ekki mark á mér. Sérstaklega er ég útskúfaður af íslenzku kvenfólki sem kvenhatari eftir að hafa gefið út fáein þannig lög (Kúgaðu allar konur, Aldrei skaltu elska hana, osfv). Þá er maður hunzaður alltaf og ekki metinn að verðleikum. Þjóðin tapar mest á því og fíflin sem hunza mig.

Þjóðin er dauðadæmd því hún dýrkar ekki frelsara eins og mig og nokkra fleiri. Ef ég hefði verið uppi á tímunum þegar Biblían var saman sett hefði ég verið dýrkaður sem frelsari. Ég hef komið með lausnir að vandamálum, ég hef útskýrt margt sem aðrir hafa hvorki haft kjark né vit á að skilja eða útskýra. Það er varla nokkur sem er fær um það.

Ég hef sagt sannleikann, útskýrt dauðamenningu nútímans. 

Mínir pistlar um afa og ömmu skipta engu. Auk þess voru það femínistar sem frömdu sjálfsmorð með því að rífa húsið hans afa. Hann var meiri femínisti en ég. Sá tími sem kom eftir hann var tími refsinganna. Hann stendur enn yfir.

Það hefðu aðrir átt að skrifa um ömmu og afa og leyfa húsum Ingvars og afa að standa. Sú framtíð er horfin og þjóðin eða þau sem báru ábyrgð munu taka afleiðingunum.

Ég er aðeins að minna á. 

Ég fór að búa til myndasögur aftur 2020 vegna þess að ég hef misst alla hæfileika til þess. Eins og ég útskýrði í Leyndarmáli frægðarinnar þá er það minnimáttarkenndin sem stjórnar þessari þjóð. Maður fær hrós og peninga fyrir hæfileikaleysið, fyrir draslið. 

Ingólfur Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 14:15

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Ingólfur.

Þú ert góður eins og þú ert, og við Magnús megum vera ósammála þér um hvað þú nærð að skapa minningar, og hrífa okkur með í þeim.

Fullskapað verk tekur tíma og oft margar atrennur, þar eru ábendingar góð hjálparhella.

Líf okkar, jafnt sigrar sem ósigrar, gleðin og sorgin, það að falla ekki alltaf inn líkt og Steinn benti á í kvæði sínu  um hið útskúfaða skáld á hanabjálki, eða var það kannski í herbergi uppá kvisti??, það mótar okkur, gerir okkur að því sem við erum.

Og við erum bara það sem við erum, hvorki betri eða verri.

Þú skrifar og tjáir þig, ég skrifa og tjái mig, ef enginn skrifar og tjáir sig, þá er ekkert, aðeins tómið.

Vissulega þiggur maður viðurkenninguna en hún er samt ekki drifkraftur skrifa okkar,

Sá kraftur kemur innan frá Ingólfur.

Og okkur ber að varðveita hann.

Kveðja úr rigningunni að austan.

Ómar Geirsson, 25.7.2024 kl. 16:13

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Ingólfur, afi þinn og amma eru hluti af þeirri íslensku þjóð sem kom okkur inn í nútímann, -sama hvað þér finnst um þjóðina, þá finnst mér þér takast vel upp þegar þú dregur ályktanir af því hversu mikils virði amma þín og afi voru þessari þjóð, og hef trú á að fáir geti varðveitt það betur en þú, -og hver er ekki geðklofi?

Magnús Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 17:03

7 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Blessaður Ómar, þið eruð þá búin að fá rigningu eins og við fyrir sunnan? Í dag hefur verið sólríkt á köflum og rignt inn á milli. Já svona skiptist þetta.

Já, þið takið viljann fyrir verkið. Mér finnst það gott ef það er eitthvað í þessum fremur langa texta sem þið kunnið að meta, og ég er reyndar sammála um það, að þar sem ég minnist ömmu og afa í textanum þannig að það lýsir því góða og fallega sem þau gerðu, þar finnst mér að mér takist nokkuð vel upp.

En þessi bók um þau er hvorki fugl né fiskur. Það er of mikið um endurtekningar í henni, því tilfinningarnar þegar maður fjallar um sína nánustu leiða mann inná braut endurtekningar.

Já, maður tjáir sig fyrir þessa fáu sem lesa og kunna að meta og fyrir sjálfan sig og það er nóg. Það er þó skárra en ekkert.

Mér finnst rigningin ágæt, en vona að þið fáið aftur sól fyrir austan, flestir virðast biðja um hana.

Kveðjur og þökk fyrir innlitið.

Ingólfur Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 17:28

8 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk Magnús, ég finn vissulega að þú skrifar stundum bloggpistla þar sem þú ert að fjalla um fólk af þessari kynslóð þannig að ég held að þú meinir það sem þú skrifar að þú kunnir að meta þetta, það gleður mig.

Ég er reyndar búinn að fatta það að ég er snillingur. Kerfið kann ekki að flokka snillinga. Það er bara einn stimpill. Ef ég hefði alizt upp hjá pabba hefði ég sennilega farið að vinna, en mamma "ól upp í mér letina" eins og pabbi sagði, og "fyllti mig af listamannadraumum" eins og hann sagði líka.

Já satt segir þú, að úr því að fáir muna eftir ömmu og afa betur en ég á maður ekki að búast við því að aðrir minnist þeirra betur. 

En mér sárnar að þeir pistlar sem ég legg mestan metnað í eins og um galla þjóðfélagsins fá annaðhvort lítil viðbrögð eða lestur eða hvort tveggja. Kannski er fólk orðið hrætt að tjá sig um pólitík. Þannig var það ekki fyrir nokkrum árum.

Mér sárnar líka að kvæðin mín fá lítinn lestur og athygli. Ég er kannski þjálfaðastur í kvæðagerð því þar fékk ég aðhald og kennslu frá unglingsárunum.

En ég þakka ykkur fyrir. Ég finn einlægnina í því sem þið skrifið.Ég þarf vissulega stundum hvatningu.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 17:34

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Ingólfur, svo ég komi aftur inn.

Mér sárnar líka að það sem ég hef lagt metnað minn og hugsun í, fer oft annað hvort fyrir ofan garð eða neðan, stundum bæði. Og ég viðurkenni það fúslega að það er orðið mjög sjaldgæft að ég leggi vinnu og metnað í hugsun pistla minna, sem er enginn skaði, það skilur hvort sem er hvorki hundur eða köttur, hvað þá hvítur eða svartur maður, það sem ég hugsa og sagt vildi hafa.  Ég skrifa þá og sérstaklega skrifaði þá þegar hvötin rak mig áfram, og gat yfirleitt bókað að Skáld lífsins kom inn og hvað þá góða.  Þar með vissi ég að þarna hefði enn einn pistillin farið út í kosmóið án mikilla viðbragða, en svona var það bara og er bara.

Maður breytir ekki tíðarandanum eða því að maður á sjaldnast samleið með honum.  Ég kýs samt að vera utangarðs í stað þess að falla inní hópinn, ef valið stendur á milli þess að vera ég sjálfur, að vera eins og ég er, eða aðlaga mig að því sem ég í raun hef lítinn áhuga á að aðlagast.  Munurinn er sá að ég hef lengri reynslu í þessum bransa, og ég man vel þá tíma þegar ég byrjaði og var ánægður að ná 20-40 ip tölum á dag.  Þetta breyttist með meðbyr ákveðinna mála, sem og með aukinni reynslu og tækni.

Það eru æ færri sem tjá sig í athugasemdarkerfinu, það er reynsla okkar allra sem pistla hérna á Moggablogginu, meir að segja kóngurinn með allan sinn lestur, fær fáar sem engar athugasemdir við pistla sína.  Ég til dæmis tjái mig miklu minna en þegar alls konar hitamál voru í gangi, en ég tjái mig stundum, yfirleitt vegna þess sem ég kalla yndislestur.  Eiginleiki sem ég því miður bý ekki yfir, ég held að ég eigi einn pistil í gegnum tíðina þar sem ég náði einhverjum slíkum gæðum.

Yndislestur hreifir við manni, vekur upp minningar eða tilfinningar.  Lýsing þín á afa þínum og ömmu er lýsing á svo mörgum öfum og ömmum, fólki sem er okkur svo kært í minningunni, og var okkur kært á meðan þau voru hjá okkur.  Ég var ömmustrákur, eina manneskjan sem ég var aldrei óþægur við, og sagði aldrei Nei við.

Hvernig tekst til að skrifa minningar þeirra veit aðeins tíminn, ekki ég, ekki þú, en ég kom hérna inn því þú hreyfðir við mér á annan hátt en dægurþrös samtímans, og fyrir það hef ég þakkað, og ítreka þær þakkir.

Við erum bara það sem við erum Ingólfur, en við eigum minningar sameiginlegar um genginna tíð, um fólk sem gekk þá tíð, og snerti okkur, með veru sinni, mannkostum sínum og gæsku.

Ef ég ætti eina ósk, þá óska ég þess að þessar minningar lifi, verði ávöxtur kominna kynslóða um að það sé líf fyrir utan tækni og sýnd, alvöru líf, með alvöru fólki.

Já það er kærkomin rigning fyrir kartöflur mínar, svo mun birta til, strákurinn að spila fótboltaleik á laugardaginn, hinn kom austur til að vinna í apótekinu í mánuð.  Á svoleiðis stundum gleymir maður síverkjum stoðkerfisins, finnst maður ganga götuna til góðs.

Svona er gangur lífsins, súr og sár, með sól inná milli.

Og ég þakka þeim sem ná að hreifa við tilfinningum mínum.

Það skiptir mig máli.

Kveðja úr uppstyttunni fyrir austan.

Ómar Geirsson, 25.7.2024 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 5
  • Sl. sólarhring: 195
  • Sl. viku: 664
  • Frá upphafi: 127207

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 507
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband