14.12.2023 | 13:47
Afsláttur af trúnni
Ég var að hlusta á viðtal við Dagbjörtu Rúriksdóttur tónlistarkonu á Fókus. Hún hefur gefið út kristilegt rapp sem hefur vakið talsverða athygli. Sérstaklega er áhugavert í viðtalinu hvernig hún setur sig upp á móti þeirri útbreiddu skoðun kristinna einstaklinga að samkynhneigð sé synd. Enda er fyrirsögn fréttarinnar að hún telji marga innan kirkjunnar muni fordæma sig fyrir þetta (frjálslyndi).
Orðið fordómar er mikið notað í nútímanum og oftast ranglega. Til dæmis eru þau "frjálslyndu" með fordóma gegn öllu því fólki sem það slaufar, útskúfar, hættir að hafa samskipti við, útilokar frá vinnu, osfv. Það kynnir sér ekki málflutning annarra, dæmir fyrirfram til að vera í tízku og efst í fæðupíramídanum, vinsældarlega séð, glamúrliðið, glysfólkið.
Tal hennar um narsisista er einnig tízkutal. Hverjir eru narsisistar (ofursjálfhverflar) ef ekki liðið sem hún vill tilheyra? Er það ekki glamúrliðið aðallega, glysfólkið?
Eins og Gunnar í Krossinum sagði og margir innan kristninnar: "Hatið syndina en elskið syndarann."
Eru það fordómar að telja ákveðið líferni rangt sem fordæmt er í Biblíunni? Á hún ekki að heita Guðs orð?
Rétt er það hjá henni að Jesús bannaði ekki persónulega hinseginleikann, en hann sagði samt að aldrei félli stafkrókur úr Lögmálinu úr gildi (Tórunni) á meðan himinn og jörð væru til. Í Gamla testamentinu eru jú kaflarnir sem banna húðflúr og samkynhneigð og fyrst Jesús sagði að þeir myndu aldrei falla úr gildi er ekki hægt að segja að hann hafi verið að andmæla þeim boðskap. Hann talaði samt um mildi og kærleika, að sjá útfyrir reglurnar og að fyrirgefa þrátt fyrir reglur, boð og bönn.
Við erum öll syndug en bætum lítið með því að ráðast sífellt á náungann, - eða ekkert.
Eða eins og Bob Dylan söng um á plötunni "Slow Train Coming", trúin felst ekki síður í að læra um Lögmálið.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Eins manns rusl er annarra manna fjársjóðskista
- Gamanvísur, ljóð frá 14. apríl 1983 - æskuverk - dægurlagatexti
- Gróðahyggjan hefur náð til Kína og þar er hún komin á stera. ...
- Eitt glæsilegasta afrek Bjarna Benediktssonar var að leyfa hv...
- Finnst mér Rembrandt leynast víða, ljóð frá 8. febrúar 1988
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.1.): 17
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 431
- Frá upphafi: 132488
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 328
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fann þetta hjá mér og set það hér.
Nú semjum við frið með skilmálunum, lögunum sem Kallinn með skeggið gaf okkur.
Skilmálarnir, lögin voru, tönn fyrir tönn og auga fyrir auga.
Jesú sagði ég er kominn til að uppfylla lögmálið, ekki einn stafkrókur fellur úr gildi.
(skoða, þetta er eftir minni).
Þá skoðum við, sá sem fyrirgefur öllum allt, verður fyrirgefið allt.
Þú skalt ekki halda að þú getir framið óhæfuverk í trausti þess að þú getir á eftir sagt,
ég fyrirgef öllum allt, eins og að fá aflátsbréf.
Hér verðum við að hugsa, með leitun (þá) kemur lausn.
Egilsstaðir, 14.12.2023 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 14.12.2023 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.