Rán um hábjartan dag (5. ágúst 2023) fær einnar mínútu frétt í kvöldfréttum RÚV en fjölmargar erlendar fréttir sem varða landsmenn lítið sem ekkert fá 5 mínútur.

Ég bjóst við að fréttir um Íslendinga að skemmta sér um verzlunarmannahelgina tækju allt plássið í kvöldfréttum þetta laugardagskvöld á RÚV og Stöð 2, en fréttir frá útlöndum tóku nær allt plássið. Það er eins og Ísland sé ekki lengur til þegar fréttafólk er annarsvegar.

Örstutt frétt á RÚV í miðjum kvöldfréttatímanum sem hefði áður verið fyrsta frétt á ÖLLUM fréttastofum, tímaritum, sjónvarpsstöðvum, útvarpsstöðvum. Sú frétt fjallaði um vopnað rán um hábjartan dag, ungir menn á vespu sem ógnuðu fólki með hníf og rændu af því peningum, en voru handsamaðir síðar um daginn og mestallt þýfið fannst.

Ísland var friðsamlegt land mjög lengi. Það er eitthvað nýtt að verið sé að ráðast á venjulegt fólk og ræna það peningum og ógna með hnífi eins og það sé lítið mál.

Það sem er jafnvel enn meira sláandi er áhugaleysið á RÚV og Stöð 2 yfir þessu og víðar.

Það er hvorki nýtt að vopnuð rán séu framin á Íslandi eða ofbeldisverk eins og morð eða líkamsárásir séu gerðar, en það hefur hingað til þótt svo sjaldgæft að því hefur verið slegið upp sem fyrstu frétt einatt, en ekki að þessu sinni og það kemur manni á óvart.

Hvað er að gerast með fréttamennina? Erum við orðin samdauna alþjóðlegri þróun eða hvað?

Annað er mjög sláandi við þetta og það er að þjóðerni árásarmannanna er ekki gefið upp. Það gefur ákveðnar vísbendingar og fólk fer að gruna að það sé gert af ásettu ráði.

Nú orðið er alltaf tekið fram:"Árásarmennirnir voru íslenzkir" ef árásarmennirnir eru af norrænum uppruna, en áður var alltaf tekið fram ef það var öðruvísi.

Nú þegir RÚV ef ekki er um íslenzka afbrotamenn að ræða svo geta má í eyðurnar að þögnin merki kannski minnihlutahópa.

Ef ástæðan fyrir þessu er vímuefnatengdir glæpir þá er það einnig vísbending um að helstefnan í þjóðfélaginu sé orðin meiri en áður.

Fólk setur þetta í samhengi við ástandið í Svíþjóð og víðar, þar sem alþjóðavæðingin er allsráðandi. Það er svo sem alveg vitað að Ísland fylgir svipaðri stefnu og Svíþjóð í flóttamannamálum, og í Svíþjóð hefur það valdið stórskaða og er frægt útum allan heim hvernig ástandið er orðið í því landi. Það verður þó að taka það fram að þetta eru vangaveltur vegna skorts á upplýsingum í fjölmiðlum. Þegar þögn ríkir um þjóðerni eða ástæður eða frekari lýsingar koma getgátur. Að setja þó fréttir ekki í samhengi er þó ákveðin fölsun sem er ákveðin tegund af falsfréttum.

Innfæddir menn eða ekki, það hefur verið viðurkennt af afbrotafræðingum og þeim sem starfa við þetta að óvenjumikið hefur verið um ofbeldisverk og glæpi á þessu ári.

Það er ólíkt mikilvægara fyrir landsmenn að komast að ástæðunum fyrir því heldur en að velta sér uppúr því sem ekki er hægt að breyta í útlöndum.

Ekkert er fjallað um nauðganir á þjóðhátíðum enn sem komið er. Það var fastur liður að fréttatímarnir væru fullir af slíkum fréttum fyrir nokkrum árum. Ætli Stígamót og slík samtök séu búin að kveða þá glæpi í kútinn?

En hvernig stendur á því að íslenzkar fréttir fá svona lítið pláss? Varðar okkur ekkert um hvað er að gerast á landinu?


mbl.is Ein líkamsárás og ljótt slys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já manni finnst "fréttamatið" hjá Ríkisfréttamiðlinum" meira en lítið furðulegt svo ekki sé nú fastar að orði kveðið...... undecided cool

Jóhann Elíasson, 6.8.2023 kl. 07:50

2 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

RÚV er áróðursstofnun.

Helgi Viðar Hilmarsson, 6.8.2023 kl. 12:23

3 Smámynd: Loncexter

Rúv ætti að hafa það hlutverk að vara þjóðina við alls konar vá. Sýna fréttir frá svíðþjóð og víðar sem læri mætti af.

Rúv vill sennilega bara hafa kaos í landinu, svo eitthvað bitastætt verði að vinna úr fyrir næstu kvöldfréttir.

Loncexter, 6.8.2023 kl. 18:40

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þakka ykkur innlitið og snjallar athugasemdir. 

Þeir sem eru sáttir við jafnaðarmenn í Svíþjóð og þeirra stjórn(leysi) vilja hafa þetta svona líka hér. 

Ingólfur Sigurðsson, 6.8.2023 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 665
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 487
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband