4.8.2023 | 10:32
Valdafíkn í sinni tærustu mynd
Meghan er ekki nóg að hafa nælt í Harry Bretaprins. Hún vill koma sér í mjúkinn hjá Biden Bandaríkjaforseta eða ná frama í Hollywood. Hún er af þessari kynslóð femínista og Metookvenda sem hafa lært að ÉG, ÉG, ÉG sé guð almáttugur, allt sem skipti máli.
Þetta er þveröfugt við hinar göfugu konur feðraveldisins sem fórnuðu sér fyrir fjölskylduna og föðurlandið.
Góðgerðarmál eru mál egósins, til að safna stigum í hið útblásna egó sem nær utanum jörðina, það er svo stórt. Offitan er bönnuð, ekki í tízku, en ekki hin andlega offita, egóisminn.
Fengu ekki far heim með flugvél Bandaríkjaforseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, ...
- Líta femínistar í eigin barm? Er ástæða fyrir bakslaginu?
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 47
- Sl. sólarhring: 104
- Sl. viku: 706
- Frá upphafi: 127249
Annað
- Innlit í dag: 31
- Innlit sl. viku: 534
- Gestir í dag: 27
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hér er betri útgáfa af þessu kvæði, sem var ekki skrifað rétt eftir blaðinu, hér er betri útgáfan.
Fortíð talar, ljóð frá 15. ágúst 2022.
Ef sú mikla ást var raunar
ekki þegin, veslings fólkið dæmir sig.
Upp ég vildi öllum hliðum
einmitt ljúka, gaf þar dæmin til.
Föðurland hafnar þér, heift með svo launar,
herrann þó veit og enn gefur þau skil.
Fortíð talar, dæmin dýru,
dafna fráleitt spilltu blómin, hýru.
Oft er glott hvar engin mannúð býr.
Aðeins barn á týndum miðum.
Hertu heim og þig!
Herrann æ er sterkur, nýr!
Sá er kann að sjá það gildi
sóar ekki talentunum, nýtir þær.
Svartur verður hlýðinn heimur,
hundum gegnir, veltir sér í þrá.
Gullkálfar skínandi, geð sem ei vildi,
græðgin svo spillandi, allt kann að smá.
Auður fannst, en af þeim missti,
ekki skildir, hunza vannst, sá fyrsti.
Ráðsfrú glottir, þykist lemja líf,
lukka er henni fyrir seimur!
Enn í auð sinn nær!
æ það grimma svikavíf!
Satan oft því saklaus virðist,
segist vinna reglum eftir, hjálpa þér.
Vinsæl skrípi veiða fjöldann,
verða himpigimpi, tæliblóm.
Fullyrðing verunnar frelsinu í yrðist,
fallega lífið sjálft talar fram dóm!
Fortíð vitnar, framtíð líka,
falið margt, en hræðist valdsins klíka!
Valdakvendi vilja hlekki enn.
Vissan aftur birtir skjöld þann!
Allt í bók lífs er,
ættu það að vita menn!
Ingólfur Sigurðsson, 5.8.2023 kl. 00:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.