Einmitt þegar álit mitt á Agli Helgasyni er í lægstu dölum vegna fýlu hans útí blómstrandi fjölmiðla annarsstaðar en á vinstriakrinum (RSK eins og Páll Vilhjálmsson orðar þetta, Ríkisútvarpið, Stundin og Kjarninn - ætti að vera RH núna, Ríkisútvarpið, Heimildin) kemur hann með góðan Silfursþátt, 7. maí 2023, í gær.
Að minnsta kosti var farið djúpt ofaní viðfangsefnin og fjölbreytilegt fólk fengið til að rökræða eins og á blómaskeiði Silfurs Egils. Þegar Egill nennir sýnir hann meiri reynslu og hæfni en þeir sem hafa hlaupið í skarðið í þættinum eða stjórnað þættinum með honum.
Tvennt stendur uppúr. Annarsvegar að Viðar Eggertsson talaði vel fyrir Samfylkinguna, þannig að maður skilur hversvegna Samfylkingin er orðin stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Maður trúir manni eins og honum, sem er ellilífeyrisþegi og kvartar undan því jafnvel af meiri myndugleika en Inga Sæland og hennar flokksfólks.
Í öðru lagi var mikið talað um gervigreind og virkilega kafað ofaní það mál. Jú, ekki er það björt framtíðarmynd að vélmenni verða klárari en fólk á öllum sviðum áður en árið er liðið og varla það! Listamenn verða óþarfir því vélmennin verða betri í listum, vélmenni og tölvur sem gervigreind munu að sjálfsögðu gera þingmennina úrelta, eins og Ómar Ragnarsson samdi um í laginu "Árið 2012", og þannig fer um fleiri störf, samkvæmt þessu.
Hvernig á maður að trúa því að hægt verði að stöðva þessa þróun eða hemja hana? Núna síðast í dag var ég að lesa grein á Vísi þar sem því er lýst hvernig búið er að rýma svæðið í Úkraínu þar sem stærsta kjarnorkuverið er. Ekki kemur fram í þeirri frétt hvort búið er að sjá kjarnorkuverinu fyrir fleiri raforkulínum en neyðarlínunni, og ekki kemur þar fram að kjarnorkuverinu hafi verið lokað. Heldur kemur þar fram að ástandið þar verður sífellt ótryggara eftir árásir Úkraínumanna sem reyna að ná því af Rússum! Skelfilegt ástand!
Fólki er ekki sjálfrátt. Svona fréttir frá Úkraínu og kjarnorkuverinu sem ekki er látið í friði láta manni finnast eins og 7 ára krakkar séu að slást út af leikföngum en ekki fullþroskaðar þjóðir að berjast um landsvæði eða svonefnt sjálfstæði, hvað sem það nú er á okkar dögum, þegar allir eru ameríkanaseraðir, Pax Americana, ekki Pax Romana.
Ég hef lagt á það áherzlu að það er ekki lengur til neitt fyrirbæri sem heitir sjálfstæði í dag. Rússar eru jafn mikið undir bandarísku áhrifavaldi og aðrar þjóðir, og þessvegna fjölgar þeim ekki heldur fækkar. Það er femínisminn og jafnaðarstefnan sem er allsstaðar við lýði, þannig að fólki fækkar. Það er Pax Americana. Úkraínustríðið er þessvegna fullkomlega geðveikt og fáránlegt. Selenskí er 100% úr takti við veruleikann að segja að Úkraínumenn séu að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Það er ekkert sjálfstæði neinsstaðar til á jörðinni lengur, allir eru undir áhrifavaldi Nató, ESB og Bandaríkjanna. Alþjóðastofnanir ráða öllu, Klaus Schwab, George Soros og Bill Gates, auðrónar sem þeir og fleiri til.
Ef Úkraínumenn eða Íslendingar eða aðrar þjóðir myndu vilja berjast fyrir sjálfstæði sínu myndu þeir styðja Rússa en ekki berjast gegn þeim, því jafnvel þótt Rússar séu eitraðir af jafnaðarstefnunni, Pax Americana og ESB, þá er frelsisvonin og lífsvonin frekar hjá Rússum, þótt þeir séu stórgallaðir, og Pútín ekki síður.
En hvað gerist er kjarnorkuverið í Zaporize springur? Það yrði miklu verra kjarnorkuslys en í Chernobyl 1986. Líklegt er að geislunin næði um alla jörðina með stóraukinni fjölgun krabbameinstilfella, sem þó fer stöðugt fjölgandi af öðrum ástæðum, en aukinni mengun ekki sízt.
Ef þetta kjarnorkuver springur þá hefur það áhrif á Evrópu og Rússland einna helzt. Pútín sem stendur veikt fyrir mun pottþétt verða steypt af stóli, eða því flýtt, sem er í bígerð víða í Rússlandi nú þegar hjá andstæðingum hans.
Ef þetta kjarnorkuver springur má jafnvel fullyrða að Rússland muni aldrei að eilífu bera þess bætur. Það myndi mjög líklega verða sá atburður sem myndi steypa Rússlandi í eilífa borgarastyrjöld og klofning, sem búið er að spá af hatursmönnum Rússa og Rússlands svosem áður, og ekki sízt í DV.
Afleiðingarnar yrðu enn hrikalegri jafnvel. Mannfjöldi innlendra Rússa myndi hrapa svo mjög, að þeir myndu verða að treysta á innflutning á fólki frá Afríku, Afganistan, Venezúela og öðrum svæðum þar sem nóg er af fólki sem er á flótta.
Reiði almennings á Vesturlöndum yrði líka gífurleg, og svo mikil að það er varla hægt að lýsa því. Mótmælaöldurnar yrðu óstöðvandi og ríkistjórnir myndu falla eins og spilaborgir hver af annarri.
Ef þetta kjarnorkuver springur er nefnilega hægt að vera nokkuð viss um að það yrði dropinn sem myndi velta Evrópusambandinu um koll og Joe Biden í Bandaríkjunum og demókrötum.
Demókratar í Bandaríkjunum telja sig hafa engu að tapa, nú þegar það er um það bil sannað að þeir komu af stað Covid-19. Það sama má segja um Evrópusambandið, spillingin nær þangað inn.
Ef þetta kjarnorkuver springur yrðu dauðsföllin svo mörg í Evrópu og útum allan heim, að veröldin yrði ekki eins á eftir.
Ég held að þetta séu ekki ýkjur. Það er ótrúlega margt í menningunni okkar sem nú stendur svo höllum fæti að það er við það að hrynja.
Að rýma borgir nálægt kjarnorkuverum þar sem sprengjur falla á allt og alla, það er eins og að grafa höfuðið í sandinn. Það er í mannlegu valdi að stöðva styrjaldir og afstýra með öðrum hætti svona kjarnorkuslysum, með því að gefa þeim rafmagn um fleiri en eina varalínu, og sjá um viðhald.
Stjórnvöld á Íslandi eru að gera sig samsek í þessum hryllingi með því að halda hér leiðtogafund Evrópuráðsins og leggja ekki áherzlu á frið heldur áframhaldandi stríð og útrýmingu mannslífa.
Leiðtogafundur þá og nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 69
- Sl. sólarhring: 112
- Sl. viku: 734
- Frá upphafi: 127361
Annað
- Innlit í dag: 58
- Innlit sl. viku: 545
- Gestir í dag: 56
- IP-tölur í dag: 53
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nei, Ingólfur, það er ekki hægt að stöðva þessa þróun.
Guð hefur sjálfur ákveðið að enda þetta og hefja nýja sköpun.
Náðartíma mannkynsins er að ljúka. Heiminum í núverandi mynd mun Guð eyða með allri sinni illsku.
Þetta er eitt meginstefið í Heilagri ritningu, sem er endurtekið aftur og aftur með mismunandi blæbrigðum eins og í sinfóníu.
Sjá t.d. hér:
En nú hefur hann (Guð) lofað:
Enn einu sinni mun ég hræra jörðina og ekki hana eina heldur og himininn. Orðin: Enn einu sinni, sýna að það sem bifast er skapað og hverfur til þess að það standi stöðugt sem eigi bifast.
Þar sem vér því fáum ríki, sem ekki getur bifast, skulum vér þakka það og þjóna Guði, svo sem honum þóknast, með lotningu og ótta.
Því að vor Guð er eyðandi eldur. (Hebr. 12:26-28).
Stefið endurtekið:
Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til. (Op. 21:1).
Jesús sjálfur tekur til máls:
Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina, og flóðið kom og tortímdi öllum.
Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu. En daginn, sem Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum. Eins mun verða á þeim degi, er Mannssonurinn opinberast. (Lúk. 17:26-30).
En ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis. (Róm. 10:9-10).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 8.5.2023 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.