24.3.2022 | 11:51
Náttúrulegur sigur á örplasti - gleðileg frétt
Þetta er gleðileg og jákvæð frétt í öllu því sem gerir mann dapran í fréttum nútímans. Þessi frétt fjallar um sigur á mengun með náttúrulegum aðferðum, en það er hinn eini rétti sigur. Örplast er skelfileg mengun. Guð hefur yfirgefið manninn á þessari jörð og hér leika púkar lausum hala við að tæla, spilla og eyðileggja, og mannfólkið gerir sér ekki grein fyrir því að langflestir eru andsettir, því miður, eða geimverur í raun, ekki lengur mennskar verur.
Fyrrverandi umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, vann þrekvirki með plastpokabanninu, og í því ráðuneyti hefði hann haldið áfram að gera góða hluti, en er því miður í öðru ráðuneyti nú.
Margt kristið fólk veit að það á að sýna náttúrunni aðdáun og auðmýkt. Það má segja að það viðhorf sé einnig hluti af heimsmynd margra heiðinna manna, en þeir eru ekki eins á okkar tímum og þeir voru fyrr á öldum. Margur heiðinginn hefur spillzt og orðið andsetlingur vegna bágborins ástand mannkynsins allt, sem sagt tekið inní sig sál sem ekki er heiðin, en í andstöðu við skaparana og lífstefnumannkynin.
Með því að viðurkenna að púkar eru allsráðandi á jörðinni á okkar tímum erum við að færast einu skrefi nær lausninni, að læra af speki liðinna alda, trúarbrögðum og mannkynssögunni.
Slímugt grænmeti vinnur á örplasti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 33
- Sl. sólarhring: 83
- Sl. viku: 698
- Frá upphafi: 127325
Annað
- Innlit í dag: 27
- Innlit sl. viku: 514
- Gestir í dag: 27
- IP-tölur í dag: 26
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.