17.10.2021 | 17:00
Íslandsmeistaratitill sem gleður
Leikmaðurinn er sennilega að vitna í átakanlegar fréttir úr KSÍ, að missa forystu sem var elskuð og vel liðin af flestum, og leikmenn, vegna Öfga og Bleika fílsins og þeirrar sögu sem allir þekkja.
Þessi Íslandsmeistaratitill er mjög ljúfur í því mikla umróti sem leikið hefur um Knattspyrnuhreyfinguna útaf kvenréttindabaráttunni margnefndu, sem orðin er eitthvað undarlegt fyrirbæri á stundum.
Þetta er tilfinningaþrungið viðtal við Halldór, sem leikur fyrir Víkinga. Frábær sigur hjá þeim.
Svo vikið sé að annarri merkilegri frétt í sambandi við víkinga almennt í sögulegu samhengi, þá kom stórmerkileg frétt í vikunni á RÚV um að fundizt hefði víkingaskip, þar sem fornmenn úr heiðni voru grafnir. Staðfestir það sögurnar um að þeir hafi viljað sigla inní framlífið og vera grafnir eða brenndir á hafi úti með öllum sínum eigum, og trúðu að allar eigur þeirra færu með þeim í Valhöll. Stórmerkilegt.
En nú er það spurning, mun Vanda Sig vanda sig? Vafalaust. Mun einhver hópur vanda sig í að fella hana og mæðraveldið eins og reynt er að gera við feðraveldið?
![]() |
Hræðilegasta vika lífs míns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Að skima fyrir bönnuðum hugsunum er eins og að skima fyrir vo...
- Það hvernig Esus er guð fyrirgefningarinnar.
- Heimurinn er að stefna í æ meiri auðhringjaeinokun. Endalok S...
- Afabróðir minn sem sagði mér sögur um það þegar skáldin voru ...
- Mistök Katrínarstjórnarinnar tekur enn fylgi af þeim flokkum ...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 95
- Sl. sólarhring: 123
- Sl. viku: 486
- Frá upphafi: 148819
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 331
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.