9.10.2021 | 07:38
Biden berst fyrir pólitísku lífi sínu - DV frétt 7. 10. 21
Donald Trump er ekki búinn að vera. Á meðan vinsældir Bidens dvína vaknar aftur traustið á Donald Trump sem lét hjól atvinnulífsins fara að snúast sem aldrei fyrr. Lenti hann í ógurlegri holskeflu hatursáróðurs frá vinstraliðinu, enda hræðist það ekkert eins og sterka hægrileiðtoga, og er Sigmundur Davíð einn af þeim, sem hefur þolað moldviðrið einnig.
Eftir brotthvarf hersins frá Afganistan fór stuðningur við Biden niður fyrir 50 prósent. Einnig kom í ljós að hann tæklaði heimsfaraldurinn varla skár en Donald Trump, þrátt fyrir öll loforðin um annað. Vaxandi verðbólga setur einnig strik í reikninginn.
Joe Biden er klókur, en merkilegt er það að Donald Trump náði ótrúlegum árangri á mörgum sviðum þrátt fyrir allt sem á móti honum blés, og kannski er hann einn merkilegasti forseti Bandaríkjanna lengi.
Margt fólk er Donald Trump þakklátt fyrir að hafa bætt efnahaginn í Bandaríkjunum þegar hann var við völd.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 20
- Sl. sólarhring: 78
- Sl. viku: 724
- Frá upphafi: 145047
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 433
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þeir hræðast Sigmund enda sá eini sem hefur afrekað að ná peningum úr banka sem tiheyrði þjóðinni.Það er ekkert gott að vera bullandi heitur í sjálfstæðisbaráttu ÍSl. og skynja svo hvernig áróðursmaskínurnar leika vini og suma fam.
Að stórnmálamenn okkar séu svona andvaralausir að sjá ekki hvað er/var í gangi.
Það er búið að hleypa þeim alltof langt.
Helga Kristjánsdóttir, 10.10.2021 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.