14.2.2021 | 17:17
Ekki sama hvað bóluefni er notað.
Skyndilega er slökkt á dómgreind fólks þegar ákveðið yfirvald gefur grænt ljós, hvort sem það er á bóluefni eða annað. Svona grunnt er nú á órökvísinni. Eina afsökunin er að ekkert annað sé í boði - eða hvað? Jú, mörg bóluefni eru á tilraunastigi og í framleiðslu, nú er vitað að rússneska bóluefnið Spútnik 5 er sennilega hættuminnst og virkast, og hví er þá Rússum ekki hjálpað að framleiða meira? Hættum þessum gamaldags skærum við Rússa sem eru úreltar, hvort sem þeir vilja hafa sína sérstöku útfærslu á lýðræði eða ekki sem jaðrar við einræði og ólígarkisma (auðjöfrahyggju). Þannig er lýðræðið í Evrópu, Bandaríkjunum og hér hvort sem er líka. Hvað kemur það okkur við hvort aðrar þjóðir stundi mannréttindabrot eða dansi á þeirri línu? Við stjórnum ekki heiminum, og það er jafn rangt að ætla sér að stjórna heiminum með siðferðisboðskap og höftum leiddum af honum eins og einhverju öðru.
Þetta útblásna siðferðisblæti er komið út yfir öll mörk, og birtist helzt hjá vinstriflokkunum.
Svo er annað í þessu sem margir hafa bent á. Þessi pest er ekki eins banvæn og til dæmis Spænska veikin. Langflestir komast óskaddaðir frá þessum veikindum að mestu, og hver er þá þörfin á bólusetningum, sem gætu haft enn verri afleiðingar?
Meira um aukaverkanir en búist var við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, ...
- Líta femínistar í eigin barm? Er ástæða fyrir bakslaginu?
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 188
- Sl. viku: 665
- Frá upphafi: 127208
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 508
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fólk dó mikið úr vosbúð í spönsku eikinni. Afi minn Ágúst átti kol og rauðkynti húsið í Hellusundi 3 þegar öll fjölskyldan lá sem veikust og bannaði þeim að fara fram úr. Þau risu öll up heil úr pestinni meðan nágrannar dóu unnvörpum hjálparlausir.
Halldór Jónsson, 16.2.2021 kl. 05:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.