15.12.2020 | 18:22
Kosningasvindl demókrata felast í fjöldamorðunum sem kallast Kínaveiran eða Covid-19 farsóttin
Tæknin í dag er orðin svo mikil að hægt er að hanna og framleiða svona dauðaveirur eins og Kínaveiruna og þannig að hún sé sérhönnuð til að ráðast á ákveðinn markhóp, kjósendahóp Trumps, sem sagt. Síðan þegar drepsóttin hefur skilað árangri og komið Trump frá völdum fær Bill Gates skyndilega samvizkubit og kemur fram með mótefnið sem alltaf var til og vill bólusetja heimsbyggðina. Guð forði okkur frá því að bóluefnið sé eitrað, eins og sumir halda fram. Nei, menn eins og Bill Gates hafa fengið svo mikil völd með gríðarlegum auði sínum að þeir fyllast af hroka og vilja vita betur en sjálfur Guð. Húmanisminn byggist á þessu og vinstristjórnmálin sem Joe Biden stendur fyrir, meðal annarra.
Einfeldningarnir sem kallaðir eru góða fólkið ætti að vita betur. Orðið hafa svo gígantískar framfarir í vísindum undanfarna áratugi að það er fullkomlega mögulegt að búa til gereyðingarvopn eins og Kínaveiruna og koma henni af stað. Þannig lít ég á að þetta sé kosningasvindl, með því að koma veirunni af stað var verið að breyta úrslitunum Joe Biden í hag. Annars hefði Trump sigrað.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, ...
- Líta femínistar í eigin barm? Er ástæða fyrir bakslaginu?
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 85
- Sl. viku: 665
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 487
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.