21.10.2020 | 17:09
Hversu langt á óttinn við kúgarana að ganga?
Fólk ætti fyrir löngu að vera búið að gera uppreisn gegn alþjóðahyggju, femínisma og jafnaðarstefnu, og henda þeim hryllingi út í hafsauga.
Þessi viðbrögð eru svo fáránleg, svo hlægileg að það er varla hægt að fjalla um þetta, að allir skuli ekki sjá fáránleikann í þessu sannar enn einu sinni að fólk er drónar upp til hópa, ekki með meðvitund.
Hvað er betri sönnun fyrir því að við lifum í jafnaðarfasísku samfélagi en þessi viðbrögð við táknum sem almenningur túlkar ekki á þennan veg?
Fólki ætti að vera frjálst að ganga með hvaða merki sem er, hakakrossinn eða annað. Eins og kommúnisminn hafi ekki unnið mannkyninu álíka skaða eða femínisminn? Sagan sýnir það fullkomlega. Heldur betur. Þjóðverjum hefur ALDREI fækkað eins mikið og undir jafnaðarstefnunni og femínismanum, ALDREI, eða Svíum og ýmsum öðrum.
Svo er það annað, er hægt að býsnast yfir því að sóttvarnaraðgerðirnar séu fasískar og frelsisskerðing en ekki að vera bannað að bera svona tákn? Undarleg þversögn í því.
![]() |
Rasískt merki á fatnaði lögregluþjóns til skoðunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Hægt og bítandi eru hneykslismálin að grafa undan ríkisstjórn...
- Nýr erkidrúíði, páfi öðru nafni, hefur verið valinn
- Pútín ætti að læra að sigra með afþreyingu, rússneskri Hollyw...
- Eðli kommúnista er að búa til dúmur, forum, ráð og allt það, ...
- Guðinn sem er yfir og allt um kring, Taranis, og hvernig hann...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 207
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 843
- Frá upphafi: 145477
Annað
- Innlit í dag: 157
- Innlit sl. viku: 549
- Gestir í dag: 151
- IP-tölur í dag: 151
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.