1.10.2020 | 20:46
Bill Gates, G5 kerfið, netfjölmiðlar, býr þar eitthvað að baki?
Áhugaverðar eru samsæriskenningarnar um Bill Gates. Það er grunsamlegt og skuggalegt að Facebook og fleiri veitur séu að stunda ritskoðun, það er stuðningur fyrir samsæriskenningar í raun. Um það bil 10% af íbúum flestra landa, t.d í USA og Þýzkalandi eru trúaðir á samsæriskenningar.
Ein samsæriskenningin fjallar um það að Bill Gates ætli að nota bóluefni sem hann er að þróa til að virkja enn frekari stjórnun á mannkyninu, jafnvel með aðstoð G5-netkerfisins. X-2000 stýriefnið fær greiðan leið í mannslíkamann í gegnum líkamsskrautið, og því er ekki undarlegt að lítið sé um sjálfstæða hugsun á okkar tímum, þegar slíkt er í tízku. Einnig er algengt að fjallað sé um að Bill Gates og fleiri eigi hluti í lyfjafyrirtækjum og sé að græða á þessum heimsfaraldri.
Ekki ber að taka mikið mark á greinum í dagblöðum eða fjölmiðlum eftir forríka og umdeilda menn eins og Bill Gates. Þeir gætu alveg eins verið að reyna að fegra málstað sinn þar sem þeir vita hversu umdeildir þeir eru. Glerharðar sannanir liggja þó ekki fyrir, en grunsemdir um ýmislegt, og varla er það tilviljun hversu mikið hefur verið um þetta fjallað.
Ég vil efla sjálfstæði fólks og sjálfstæðan vilja og því hef ég áhuga á þessum málum. Mér finnst það undarlegt að fólk þurfi bóluefni gegn Covid-19 ef pestin er ekki eins hættuleg og margir halda fram. Það er líka undarlegt hvernig tekizt hefur að breyta heiminum. Hitt er þó alveg ljóst að þetta er drepsótt sem líkja má við spænsku veikina, vegna fjölmargra dauðsfalla og undarlegra aukaverkana. Sannleikurinn hefur ekki enn komið fram, enn er mörgum spurningum ósvarað og fólk er forvitið að vita meira.
Tjónið af veirunni 20 billjónir dala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, ...
- Líta femínistar í eigin barm? Er ástæða fyrir bakslaginu?
- Jahve er djöfullinn og hann stendur á bakvið öll stríð, og er...
- Sjálfstæðismenn þurfa að sinna menningarmálum meira
- Vinstrimenn ættu að skammast sín, en ekki hægrimenn. Mengun e...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 79
- Sl. viku: 666
- Frá upphafi: 127293
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 488
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.