26.9.2020 | 15:17
Samsæriskenningar um of hörð viðbrögð
Það er skrýtið hvernig málin leggjast í flokkslínur og sóttvarnarmálin ekki síður, en ég hallast nokkuð á sveif með Ómari Geirssyni um að meiri varfærni sé þörf. Hans pistlar eru ágætt mótvægi við alla þá sem eru ósammála honum. Þó er ég á móti bólusetningum og tel að náttúruleg leið til ónæmis virki ein, nema um ónáttúrulegar pestir sé að ræða, en kannski er kóvíð þannig, búin til af mannavöldum, hver veit. Um það fjalla ýmsar merkilegar samsæriskenningar, sem kannski eru réttar.
Raunar er ein samsæriskenning orðin nokkuð útbreidd og jafnvel svo útbreidd að sóttvarnarlæknir virðist taka mark á henni, en það er kenningin um það að þetta sé svo saklaus veira að í gangi sé samsæri um að ná heimsyfirráðum með því að valda efnahagskreppu, að viðbrögðin séu hættulegri en veiran sjálf, og ýmsar útfærslur af þessari samsæriskenningu eru settar fram. Svo eru menn ekki sammála um það hvort vinstriöfl eða hægriöfl ætli að hagnast á þessu samsæri og heimskreppu, en algengt er að tengja Illumati, George Soros og Bill Gates við þessar samsæriskenningar.
Samsæriskenningar verða fjölskrúðugri og flóknari með hverjum deginum sem líður. Að ætla að banna þær eða einhverjar skoðanir á netinu virkar ekki. Ef áhuginn er fyrir hendi lifa þær af og dafna sem aldrei fyrr. Einhverjar þeirra hljóta að vera sannar, en ekki allar.
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Þegar konur stjórna, þá er móðursýki og klikkun afleiðingin
- Aðeins kærleiksrík vera gat keppt við Krist um vinsældir, ekk...
- Ástandið á Gasa sem ekki er bara Hamas að kenna er undirrót s...
- Svaraverðir menn, þeir sem styðja lífstefnu en ekki helstefnu
- Sókn er bezta vörnin - það er sú stefna sem hjálpar mest ísle...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.10.): 117
- Sl. sólarhring: 135
- Sl. viku: 702
- Frá upphafi: 159991
Annað
- Innlit í dag: 64
- Innlit sl. viku: 528
- Gestir í dag: 61
- IP-tölur í dag: 61
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.