22.9.2025 | 00:25
Með fækkun bónda og sauðkinda eru íslenzkir (ó)ráðamenn að gera landið háðara útlöndum
Sauðfé fækkar og sauðfjárbóndum. Það kom fram í fréttum sjónvarps í gær. Framsókn nær sér kannski ekki aftur á strik. Ný heimsmynd blasir við ef Viðreisn og Samfylking eru þeir flokkar sem fólkið telur vinna fyrir sig.
Viðurkenning fleiri Evrópuríkja á Palestínuríki þýðir enn meiri klofning á milli Evrópu og Bandaríkjanna. (Ef demókratar komast ekki til valda á næstunni).
Annars er eitt áhugavert í þessu sem maður hefur ekki heyrt neinn fjalla um. Þessir svokölluðu hægriöfgaflokkar í Evrópu, styðja þeir Palestínu eða Ísrael? Ég tel að margir þeirra séu á Trumplínunni, að styðja Ísrael, því þeir eru ekki rasistaflokkar heldur kristnikredduflokkar. Þó er það einföldun, og átök innan þeirra eru þekkt svo fólk er alls ekki sammála innan þeirra.
Ef Evrópa mun fara sömu leið og Bandaríkin, sem allt stefnir í, þá verður uppgjör.
Það er skrýtið hvernig íslenzk stjórnvöld velja úrelta leið, að veikla landbúnað og bændur. Það hefur komið fram hjá sérfræðingum að heimurinn er miklu óöruggari eftir innrás Rússa í Úkraínu og meira af hryllilegum atburðum á Gazasvæðinu. Við höfum verið hvött af útlendum sérfræðingum, sem ég tek mark á, að stefna á meiri sjálfbærni.
Nei, Viðreisn og Samfylking vilja gera okkur háð ESB og á spena þar.
![]() |
Þorgerður Katrín endurkjörin formaður Viðreisnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 22. september 2025
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Með fækkun bónda og sauðkinda eru íslenzkir (ó)ráðamenn að ge...
- Eru dægurlög úrelt um málefni líðandi stundar sem eru orðin m...
- Til að losna við wókið þarf MJÖG mikla hægriritskoðun. Wókið ...
- Verða þínar vélar farnar? Ljóð frá 20. nóvember 2015.
- Það er nauðsynlegt að líta 30 ár til baka til að skilja breyt...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 17
- Sl. sólarhring: 66
- Sl. viku: 695
- Frá upphafi: 158918
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 487
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar