Víðar er þrælslundin en í yfirlýstum einræðisríkjum

Það veldur sumum undrun að Kim Jong-un einræðisherra Norður Kóreu lýsi sorg yfir falli hermanna sinna. Hér hefur Kim staðfest að hermennirnir féllu í baráttu við Evrópu og Vesturlönd, við hlið Rússa. Það ætti að vera áminning um að Þriðja heimsstyrjöldin er annaðhvort hafin, eða lítið skortir uppá að svo sé.

En talað er um að norður kóreska þjóðin sé öll heilaþvegin og sannfærð um rök og málflutning síns leiðtoga.

Á Vesturlöndum er fólk drepið fyrir fæðingu sína. Það finnst mér lúmskara og ógeðslegra en nokkur fjöldamorð þegar maður er orðinn fullorðinn og farinn að nálgast dauðans dyr af náttúrunnar völdum hvort sem er.

Á Vesturlöndum er fólk ekki aðeins drepið með getnaðarvörnum, heldur með áhugaleysi, með niðurbroti á mennsku, með niðurbroti á mannvirðingu, virðingu fyrir öðrum, ást á hinu kyninu, vinskap og öllu sem gerir okkur að manneskjum.

Tölfræðin segir allt sem segja þarf. Fæðingum fækkar stanzalaust á Íslandi og öðrum útibúum Helvítis á Vesturlöndum. Einmanaleikinn eykst einnig og óhamingjan almennt.

Er maður að hylla einræðisherra sem eru skíthælar eins og smámennin? Maður er að benda á hið augljósa. Vel má vera að maður sé dráttarhestur í Víti eins og hinir, en blöðkurnar má færa til og greina útsýnið samt.

Dráttarhestar hafa blöðkur fyrir augunum til að láta ekki ytri áreiti trufla þá. Þannig eru þrælarnir og ambáttirnar í Vestrinu. Blöðkurnar eru falsfréttir elítunnar, marxískt skólakerfi og slíkt.

Já við höfum lygina í fjölmiðlunum til að sannfæra okkur um að svart sé hvítt og að lygi sé sannleikur.


mbl.is Segir Kishida vilja funda með Kim Jong-un
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. ágúst 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.8.): 18
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 384
  • Frá upphafi: 155630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 295
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband