Perlur sem finnast uppteknar frá 2003 eftir mig, um inngönguna í ESB, þar sem ljóðmælandinn er hlynntur henni

Ég á slatta af lögum frá árinu 2003 þar sem ég er hlynntur inngöngu í ESB (eða ljóðmælandinn öllu heldur). Ég var að gramsa í þessu og skoða þetta til að velja lög fyrir endurútgáfu, og ég mundi ekkert eftir þessum lögum. Ég meira að segja varð að rifja upp hver var ástæðan fyrir því að ég samdi þau og söng inná demódiska.

Þá rifjaðist það upp að ég var að semja lög fyrir plötuna:"Við eigum að samstillast öll". Það er platan númer 2 í þríleiknum um Nýalsstefnuna. Sú þriðja kom aldrei út en var hljóðrituð í grunnatriðum sem demóupptökur tveimur árum seinna, eða 2005. Það er platan:"Frá stjörnunum berst lífið."

En á disk nr. 2 um þetta einbeitti ég mér að þessum ákveðnu þáttum í Nýalsstefnunni sem snúast um samstillingu, sem ég held að sé orð sem dr. Helgi Pjeturss bjó til.

En ég get ómögulega munað hvers vegna ég var að tengja Samfylkinguna við þetta og aðildina að ESB. Það eina sem ég man er að á sama ári var ég að semja lög fyrir þriðju plötuna í öðrum þríleik, um jafnréttið, sem heitir "Jafnréttið er framtíðin", og kom líka út 2003, en ekki í útgáfu sem ég er ánægður með. Upptökur frá 1998 mikið, ekki þær beztu.

Mér finnst svolítið heillandi að gefa plötuna út með þessum lögum.

Á diski sem var tekinn upp 19. janúar 2003 er lag sem heitir:"Ó Evrópa, samstilling eilífðarríkið".

Ég man ekki hvort þetta var háð eða ekki. Sennilega hef ég fundið einhverja sannfæringu fyrir þessu sem ég var að syngja um og semja um. Lagið er ágætt og í rólegri kantinum, en ég finn ekki gripin, en textann finn ég. Gripin skrifaði ég á annað blað sem finnst ekki, en ég heyri að þetta eru sjaldgæf grip sem ég kannast ekki við. Þau hef ég fundið í einhverri gítarbók og svo gleymt þeim aftur. Stundum notar maður bara grip einusinni eða tvisvar og gleymir þeim jafnóðum.

Síðan er langt og merkilegt lag frá 11. janúar 2003 sem heitir:"Af hverju ekki að ganga alla leið og ganga í Evrópusambandið?" Það tekur 13 mínútur og 52 sekúndur í flutningi, og kvæðið er 10 löng erindi eins og Desolation Row eftir Bob Dylan, og kvæðastíllinn sá sami.

Mér finnst gaman að á plötum mínum sé eitthvað sem kemur á óvart. Þetta gæti komið inngöngusinnum í ESB skemmtilega á óvart og aukið vinsældir mínar meðal þeirra, úr því að þetta er í tízku núna og allmikið fylgi þjóðarinnar við að fara í ESB, og einnig í ríkisstjórninni.

Þetta myndi þá fara á plötuna:"Við eigum að samstillast öll", endurútgefna, en boðskapurinn á henni er svolítið í þessa átt.

Hver er munurinn á demótökum og tökum sem ætlaðar eru til útgáfu?

Maður sér það á þessum upptökum mínum frá þessum tíma. Lítill metnaður og tími fer í hvert nýtt lag, lagið er samið og grunntaka gerð, svo kannski bara ein í viðbót. Þá er það algengt að spilamennskan sé mjög ófullkomin og ekki alltaf sungið beint í hljóðnemann, falskir tónar, mismæli, hóstar og ræskingar en allt látið standa.

En hinsvegar, útgáfuhæfar upptökur (sem demótökur geta verið líka stundum) þær eru gerðar með fullkomnunaráráttu. Ég hef gert 50 tökur af einu og sama laginu til að slípa og fullkomna. Dæmi um það er "Er ég ekki of gamall fyrir þig?" frá marz 2001, en á einum diski eru um 50 tökur af tveggja mínútna útgáfu þess lags.

Ekki nóg með það, ég breytti laginu margoft, til að ná fram fullkomnun. Það eru til að minnsta kosti 20 útgáfur af laginu með breyttum texta.

Dr. Gunni hjálpaði til við að gera þetta lag sæmilega þekkt á sínum tíma, á þessum fyrsta áratug aldatugsins sem nú er að líða, með því að setja það á bloggið sitt á mp3 sniði, og því var deilt og á það var hlustað af mörgum. Það kom út á hljómdisknum mínum "Fyrri byggðir", sem var gefinn út 2002 en hljóðritaður alfarið snemma árs 2001, meðfram upptökum á plötunni:"Jafnréttið er eina svarið", frá 2001.

Bæði upptökurnar fyrir "Kárahnjúkar", óútgefna plötu frá 2004 og svo demótökurnar fyrir "Við eigum að samstillast öll", frá 2003, þær eru misófullkomnar og misgallaðar, en áheyrilegar samt vissulega og geta geymt margt spennandi og öðruvísi en það sem ég gaf út.

Metnaðarleysið er greinilegt í þessum demótökum. Það er að segja, ég dríf mig að semja nokkur lög og taka upp, en eyði svo mestum tíma og plássi í lög eftir aðra! Á þessum diskum eru afleitar ábreiðir sem ég tek eftir AC/DC, Bob Dylan, Cat Stevens og marga aðra tónlistarmenn.

Síðan eru nokkur ný lög eftir mig þarna. Til dæmis upptökur frá gamlársdag 2003 og jóladag 2003, og upptökur yfir öll jólin og hátíðirnar, samt ekki endilega vandaðar.

En það eru vissulega nokkur lög frá 31. desember 2003 sem eru áheyrileg. Með löngum texta og rokktakti, eitt þeirra gæti verið fyrst á plötunni.

Þannig var að seinni hluta ársins fór ég aftur að vinna að "Við eigum að samstillast öll", þótt hún væri komin út. Ég vildi fullkomna hana og endurútgefa þá strax. Þessi fullkomnunarárátta varð samt til þess að þreyta mig og ég gafst upp á tónlistinni opinberlega á næsta ári, 2004, gaf ekkert út þá, en hélt áfram að taka upp og semja, en demó frekar en vandaðar tökur. Slíkt er þó alveg hægt að gefa út ef maður vill, og ég hef gaman af að hlusta á þetta og læra þessi lög. 


mbl.is Starfsáætlun Alþingis út um þúfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 666
  • Frá upphafi: 148294

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 564
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband