Almenningur á að berjast gegn samfélagsmiðlum, með því að eyða sem minnstum tíma á Fésbók og hafna áreiti auglýsinga á Netinu. Þannig eflast innlendir fjölmiðlar aftur.

Það er mjög skrýtið að ekki sé nú þegar búið að jafna samkeppnisstöðu fjölmiðla með því að leggja niður auglýsingar á RÚV svo aðrar stöðvar fái þær einar og tekjur af þeim. Allavega, það er einnig skrýtið að frjálshyggjufólk sem var svo ánægt með samkeppnina geri ekkert raunhæft í þessu. RÚV er ofdekrað og spillt kvikindi sem spreðar fjármunum í ömurlega dagskrárgerð og innrætingu sem er Fjandanum einum til gleði.

Einhversstaðar las ég að það væri ráðgert að leggja Stöð 2 undir ríkið líka, að einhverjir sameiginlegir sjóði ættu að fara í að styrkja hana.

Þetta er bara ekki rétta leiðin. Í góðum pistli nýlega sem ég er sammála nefndi Birgir Loftsson fréttastofur Rúv og Stöðvar 2 síamstvíbura, og ég kalla þessar sjónarsstöðvar tvíhöfða þurs, því það er sama og enginn munur á þeim.

Sama fólkið valsar inn og út á milli Rúv og Stöðvar 2. Það prófar, allir þekkja alla.

Sjónvarpsstöðin sem Sigmundur Ernir var með og fór á hausinn, hún var pínulítið öðruvísi, en náði ekki að blómstra og þroskast, dó of snemma.

Sama með Cirkus, sem var nokkuð góð sjónvarpsstöð og fersk. Dæmin eru fleiri.

Það er alltaf sama sagan, það eru ekki beztu fréttaveiturnar sem lifa af eða fjölmiðlarnir beztu.

Ef ríkið ætti að styðja eitthvað, þá ætti það að vera sjónvarpsstöðvar sem eru nýjar og allir eða flestir eru sammála um að beri með sér frjóanga nýjunga og ferskleika, ekki úldnar og rotnar stöðvar sem eru svo steinrunnar og staðnaðar að þær minna á hrímþursa eða tröll sem hafa dagað uppi.

Sami sjónvarpsstjórinn á RÚV árum saman, sama stefnan áratugum saman, sama starfsfólkið áratugum saman, sami kommúnisminn rótgróinn og Reuters-dýrkunin. Falsfréttir? Vissulega.

Til að koma alvöru lífi í fjölmiðla þarf að greiða netrisum banahögg, hvorki meira né minna.

Ég er þeirrar skoðunar að fólk hafi hvorki alvöru gagn af Netinu né hollt af því.

Tökum dæmi:

Þegar Miðbæjarradíó starfaði þá pantaði Einar þar fyrir mann varahluti í hljómtæki víða að úr heiminum.

Í dag er ekkert fyrirtæki jafn öflugt og Miðbæjarradíó til með varahluti fyrir hljómtæki. Fólk þarf að leita á Netið.

En til hvers? Er ekki betra að vera með sérhæfðar verzlanir sem þjónusta fólk heldur en að almenningur þurfi að sækja á Netið?

Svo eru það samfélagsmiðlarnir.

Til hvers er Fésbókin til, eða X-ið, Twitter og allt hitt?

Er þetta alvöru vinskapur? Nei. Er þetta kunningsskapur? Kannski.

Verst er að svona samfélagsmiðlar eru gróðrastía fyrir snobb og hunzun og allskyns leiðindi sem vantþroska fólk en þroska það ekki, sem ekki stuðla að kærleika heldur hatri og firringu, allir eru í sínu horni frekar en að sameinast og eiga persónuleg samskipti maður á mann.

Við sem erum fólkið í landinu, við eigum að kjósa með fótunum, með því að breyta lífi okkar á þann hátt að við höfnum tækninýjungum.

Í síðustu viku gerði ég uppreisn gegn póstboxum. Ég neitaði að sækja pakka í póstbox og að greiða af honum á Netinu. Ég sagði að annaðhvort færi hann á pósthúsið eða ég vildi hann ekki. Stúlkan var góð sem afgreiddi mig og reddaði þessu með einu símtali. Ég er á móti tækni sem gerir fólk óþarft, og helvítis póstboxin eru hluti af því einsog sjálfsafgreiðslukassar.

Ég verð svo reiður yfir þessu að ég geri uppreisn, hvorki meira né minna. Ég hef óbeit á svona kjaftæði sem er ranglega kallað framfarir.

Ennfremur eyði ég sífellt minni tíma á Fésbókinni. Það er líka uppreisn gegn nútímanum og nútímatækninni. Alvöru vini eða maka eignast maður annarsstaðar.

Það er staðreynd að Netið er að drepa sjónvarpsstöðvar og jafnvel tímarit þótt enn lifi margar útvarpsstöðvar góðu lífi.

Netið er einnig að drepa verzlanir. Netið er jafnvel að drepa kynlífið, því gervigreind og klám tekur yfir kaffihús, pöbba, sveitaböll og helgarsukk og kynlíf þar.

Þetta er ekki í lagi.

Það eina sem hægt er að gera, það er að eyða tíma sínum í annað.

Sem dæmi má enn taka, að ég er að hætta að nenna að horfa á ömurlegt sjónvarpið.

Nýlega hef ég gert við hljómtæki sem gefa mismunandi hljóm, segulbandstæki nánar tiltekið. Ég hef verið að bera saman bassaríka upptökuna í Crown segulböndum og hátónaríka upptökuna í Pioneer segulböndum.

Að hlusta á gamlar hljómplötur, það er oft meira gefandi en Net eða sjónvarp, eða að lesa góða bók.

Eða að gramsa í gömlum upptökum eftir mig, platan gegn Kárahnjúkavirkjun er óútgefin eftir mig, en var tekin upp í aprílmánuði 2004, örlítið aðra mánuði.

Lengi vel fannst mér mjög hallærislegt að hlusta á þessi lög mín óútgefnu, því ég var tapari í þessu, mótmælin báru ekki árangur.

Samt er sjarmi í þessari tónlist. Þetta rifjar upp alvöru hugsjónir, alvöru réttlætismál, eitthvað sem á rétt á sér ennþá og er sígilt, að standa með landinu.


mbl.is Tjáir sig ekki um orðróm um að Stöð 2 verði aflögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 45
  • Sl. sólarhring: 55
  • Sl. viku: 693
  • Frá upphafi: 148276

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 589
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband