3.6.2025 | 00:13
Ég minnist vondrar loftrćstingar og mikilla ţrengsla á Bob Dylan tónleikum í Laugardalshöll 2008.
Ég fór á báđa tónleikana sem Bob Dylan hefur haldiđ á Íslandi, 1990 og 2008. Egill Helgason kynnti í fyrra skiptiđ.
Seinni tónleikarnir voru ömurlegir en ţeir fyrri fannst mér frábćrir. Á fyrri tónleikunum spilađi hann á gítar og munnhörpu og fór nálćgt upprunalegum útsetningum og flutti mörg lög frá bezta skeiđi sínu, 1965 til dćmis.
Áriđ 2008 var hann falinn á bakviđ hljómborđ sem hann lék á og lítiđ heyrđist í. Söngurinn var svo tilţrifalítill og lágur ađ skil á milli laga heyrđust eiginlega ekki. Hann virtist svo hundleiđur á ţví sem hann gerđi ađ áhuginn var enginn og röddin nćstum ţví alveg farin líka. Flest lögin voru af nýju plötunni frá 2006, en allar útsetningar svipađar, og ţetta var ekki áhugavert.
Verst var ađ 2008 stóđu allir, nokkur ţúsund manns. Svitinn var óbćrilegur og hitinn inni og loftrćstingin ömurleg. Fólk fór út en ég man ekki eftir neinu hléi ţá. Upplifunin var ţrúgandi og óskemmtileg.
Loftrćstingu skorti ţá 100% í Laugardalshöllina. Ef hlé hefđi veriđ gert ţá má búast viđ svona trođningi og lýst er í ţessari frétt.
Áriđ 1990 minnir mig ađ gestir hafi setiđ. Ţá var meistarinn í miklu betra formi, og mađur heyrđi hann hrćkja útúr sér orđunum af fyrirlitningu eins og hans er vandi ţegar hann er í stuđi.
Samt heyrđist lágt í honum líka í sumum lögum 1990. En ég man eftir mjög góđum lögum, međ skýrum áherzlum og áhuga meistarans á ađ flytja ţau. Einnig minntist hann á víkinga í kynningu á einu laganna.
Masters of War var mjög flott og hratt rokklag 1990, virkilega vel gert hjá honum og undirleikurunum.
Subterranean Homesick Blues fannst mér einnig gott ţá, og Everything is broken.
Mér finnst ađ á sumrin eigi ađ halda tónleika úti ţegar veđur leyfir.
Sjálfur hef ég alltaf viljađ verđa rokkstjarna. En markađurinn er lítill á Íslandi. Í ćvisögu Keith Richards lýsir hann ţví hvernig tilfinningin er ađ vera rokkstjarna á sviđi, ţađ er eins og ađ vera hylltur sem guđ eđa hálfguđ, dásamleg tilfinning fyrir egóiđ, en líka ábyrgđ ađ standa sig og ađ valda ekki áheyrendum vonbrigđum. Mikiđ sukk fylgir oft.
Ég sćtti mig ekki lengur viđ ađ vera trúbador og ţessvegna mun ég ekki koma fram á tónleikum aftur eđa gefa út fleiri plötur nema ég fái veglega hvatningu og almennilega greitt fyrir. Auk ţess vil ég verđa rokkstjarna, ég er ekki nógu góđur gítarleikari til ađ vera trúbador, og ţađ hentar ekki lögum mínum, sem sum eru í ţungarokksstílnum en flest í venjulegum rokkstíl eđa poppstíl, en einnig í ţjóđlagastíl mörg, en undirleikur annarra myndi bćta ţau einnig.
![]() |
Fjöldastjórnun í molum: Mildi ađ enginn lést |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfćrslur 3. júní 2025
Um bloggiđ
Ingólfur Sigurðsson
Fćrsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 25
- Sl. sólarhring: 102
- Sl. viku: 711
- Frá upphafi: 147961
Annađ
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 555
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar