Örlítið meira um guðinn Cernunnos

Guðinn Cernunnos er vinsæll meðal Wicca-norna og í alþjóðasamfélaginu, kannski vegna þess að hann lítur út eins og Satan kristninnar, hyrndur, og kannski var Satan kristninnar byggður á honum, þótt reynt hafi verið að þagga tilvist hans niður með því að skrifa aldrei um hann og brenna ritin um hann sem voru til, á meðan trúin á hann var upprunaleg, fyrstu aldirnar eftir að kristnin var lögtekin.

Þarna er þversögnin, að flest eða allt bendir til þess að hann hafi verið geysivinsæll meðal alþýðunnar, og svo ógnarvinsæll að hann hafi ógnað Kristi í vinsældum og guði Biblíunnar, en engu að síður finnst ekkert um hann skrifað, rétt eins og það hafi allt verið þaggað niður og því eytt, og það er sennilega rétt, að þannig var þetta, að til voru um hann bókmenntir, en þeim var eytt, vegna þess að þær ógnuðu kristnininni, trúnni, og persónunni Jesús Kristur og jafnvel persónunni Guð, Jahve.

Áróðurinn þekkja flestir, en síður þeir sem eru yngri en ég og fæddir á tölvuöld. Áróðurinn er sá að Satan sé vondur en Guð góður (Biblíunnar). Þó má segja að uppreisnin gegn þessari boðun kristninnar sé búin að vera massív í langan tíma en misjafnvel opinber og opinská. Í þungarokkinu hefur andstaðan gegn kristninni verið mjög augljós en þótt að kvennaguðfræðingar viðurkenni ekki satanisma sinn er hann þar augljós líka, taki maður eigingirnina sem merki um slíkt, að elska eigið kyn og upphefja það.

Cernunnos er aðeins einn af mörgum guðum sem ég hef áhuga á, og hef einbeitt mér að lengi.

Það hlýtur að vera svo að jafnvel guðfræðingar kristnir eins og margir aðrir sem af einlægni aðhyllast kristna trú hafi áhuga á að vita hver Cernunnos er, ef Satan var byggður á honum. Það er sagt að nauðsynlegt sé að þekkja andstæðinginn og að hafa óvini sína jafnvel nær sér en vini sína, til að skilja þá og varast þá.

Þannig að ef kristnir menn eða forvígismenn kirkjunnar hér áður fyrr eyddu þessum gögnum um keltnesku guðina og gyðjurnar, þá var það tvíeggjað sverð og kann að hafa skaðað þeirra eigin möguleika, í andlega heiminum og þessari nútíð okkar, sem var þeirra framtíð. En ég er reyndar nokkurnveginn viss um að Júlíus Sesar var sá fyrsti sem bar ábyrgð á þessari massífu eyðileggingu gagna, enda bar Sesar ábyrgð á rústun bókasafnsins í Alexandríu, eftir því sem heimildir segja frá, en einnig bar hann ábyrgð á fjöldamorðum á drúíðum og öðrum keltum.

Þó má alveg fullyrða að kristnir forvígismenn eyðilögðu margt og mikið í góðri trú, þótt ekki geti maður verið sáttur við þeirra gjörðir frekar en gjörðir illmennisins Sesars.

Wicca-nornir túlka Cernunnos sem guð árstíða og endurnýjunar. Margir opinberir satanistar nútímans túlka hann vissulega sem tákn grimmdar og greddu, eða andstæðu við kristilegan boðskap fyrri alda um skírlífi, náungakærleika og fórnfýsi. Bafómet er einnig tignaður sem gredduguð og græðgiguð, einskonar réttlæting á lifnaðarháttum nútímafólks eiginlega.

En hvað hafa mínar rannsóknir leitt í ljós?

Ástæðan fyrir því að Cernunnos ógnaði kristninni var EKKI vegna þess að hann væri tákngervingur frumstæðra lifnaðarhátta og eigingirni, heldur þvert á móti vegna þess að hann á margt sameiginlegt með kristninni og Kristi sjálfum, að því er bezt verður séð.

Það er mín staðfasta fullvissa eftir að hafa rannsakað þetta lengi að saga um Cernunnos hafi helzt varðveizt sem saga um Dearg Corra, í írskri goðafræði og gelískri.

Eftir nánari athugun er ég þó viss um að Cernunnos á sér vítishlið eins og Taranos, Esus og Teutates. Það er með öðrum orðum þannig að guðir af þessu tagi eru eina hjálpin í Helvíti eins og okkar jörð. Bæn, iðrun, vitnisburður og fyrirgefning, slíkt þarf að heimfæra uppá þessa guði líka, ef maður trúir á þá einlæglega eða önnur heiðin goðmögn.

Sagan um Dearg Corra er vissulega alheiðin, en hún sýnir þó guð sem er ekkert nema kærleikur. Það er vissulega erfitt að ráða í þessar rúnir og fylla uppí þessa mynd, sérstaklega þegar það virðist vera sem margir guðir gegni svipuðu hlutverki, og þá er erfitt að vita með vissu hver sérkenni hvers guð eru.

Það er þó nokkuð sem maður verður að komast að.

Gyðjan Syn hefur hjálpað mér mikið og vitneskjan um hana.

Tarotspil 11 er táknið fyrir gyðjuna Syn. Nafn hennar merkir sannleikur og réttvísi.

Ýmislegt hafa menn ekki skilið um sannleika og réttlæti. Sumir halda að slíkt séu fyrirbæri án þess neikvæða, en svo er ekki.

Um Syn er það vitað að hún gekk í gegnum nauðganir, hafnanir, útskúfun og neikvæða upplifun í bernsku. Þessvegna var leið hennar þyrnum stráð. Það er ákveðinn leyndardómur hversvegna henni er treyst fyrir embætti dómara og löggjafagyðju innan Ásatrúarinnar, en það bendir þó til þess að hún hafi öðlazt svo yfirnáttúrulegan þroska að hún hafi fullkomið vald á reiði sinni og öðrum neikvæðum hneigðum, sem er mjög merkilegt.

Á sama hátt þá gefur þetta manni vitneskju um Cernunnos, því tengsl eru á milli þeirra.

Sumir halda því fram að Cernunnos sé tákn fyrir hina fullkomnu sköpun, eins og Heimdallur.

Ég er nokkurnveginn viss um að hreindýrshorn hans hafa verið misskilin.

Þau eru í raun tákn um tengsl hans við náttúruna og okkur á jörðinni, frekar en að þau séu tákn um að hann sé villidýr í eðli sínu og frumstæðari en ófullkomið mannkynið, sem að sjálfsögðu er hin mesta firra, og þannig eru villigötur þeirra sem kunna ekki að lesa rétt í táknin helgu.

En ein af stóru spurningunum snýst um það hvor er meiri guð refsinga og hefndar, Cernunnos, eða Dearg Corra öðru nafni, eða Donn öðru nafni, eða Esus.

Þetta mun nú kannski snúast um hverskonar refsingu og hefnd maður hefur í huga og sækist eftir. Samkvæmt vísbendingum sem eru þó augljósar og skýrar þrátt fyrir allt þá er talsverður munur á Esusi og Cernunnosi hvað þetta varðar.

Esus er Ginnungur eða Ginnungagap öðru nafni, en Cernunnos snýst meira um hið andlega, sálarlíf og svo um persónulegan guð, persónulega upplifun, einkavin, trúnaðarvin, einsog kristnir menn leita til Krists og biðja til hans á persónulegan máta.

Svo virðist vera sem Cernunnos hafi eins og Syn gengið í gegnum erfiða reynslu áður en hann varð guð og var maður, eða ef þær kenningar eru réttar sem lýsa honum þannig og guðdómi hans.

Þetta aftur opnar dyr og hlið að neikvæðum hliðum hans, hatri, refsingu og slíku. Guðdómurinn er svona, sérstaklega þessir keltnesku guðir, og þetta er ein af ástæðunum fyrir því að þessi trú var bæld niður, hún var of máttug og of mikil valdefling fyrir almenning, þegar kirkjunnar menn vildu einir hafa völd, og Júlíus Sesar þar áður.

Þannig mun Cernunnos undir ákveðnum kringumstæðum leyfa fólki að komast að atriðum sem öðrum eru hulin og ekki á allra færi eða sem leitast er við að halda frá.

Það verður séð og skilið þegar staða hans er skoðuð, viðurkennd.

Hann sem guð lækninga og endurvaxtar er þá einnig guð sjúkdóma og dauða.

Esus hinsvegar er eins og Shiva.

Þó er það merkilegt að til eru heimildir á öðrum stjörnum sem eru fremur misvísandi en merkilegar. Þar kemur fram að Cernunnos hafi verið til á undan Esusi, sem er ákveðin þversögn miðað við viðurkennda þekkingu. Það virðist þó benda til þekkingar í stjörnufræði sem ekki er komin til okkar mannkyns, okkar jarðar, og hallast ég að því að hún sé rétt, en hvaða fyrirbæri Cernunnos er í því sambandi, það veit ég ekki.

Meira er það í samræmi við indverskan hindúisma sem geymir samhljóm, að Cernunnos sé sköpun Esusar og jafnvel allra meginguðanna þriggja.

En að virkja guð sem tengist persónulegu lífi og félagslífi, það getur verið snúið.

Þá er maður enn kominn að Teutatosi.

Þótt hann sé tákn félagsfærni þá er öfuga myndin jafnan virkust á okkar jörð og auðvitað alveg sérstaklega á okkar helstefnutímum sem eyðileggja allt gott, snúa það niður og snúa því yfir í andhverfuna.

Teutates er tákn vatnsins og vökvans eins og ég hef fjallað um áður. Líkami mannsins er mest vatn og jörð okkar jafnvel líka.

Svo gæti virzt þar af leiðandi að Teutates hafi því fremur vald yfir efnisheiminum en andaheiminum, en slíkt er mesta firra og einföldun.

Teutates sem Niflhel(ur) og Niflungaheimur gefur svo aðra tengingu.

En hér er reyndar komið að sömu tengingu og með Krist, að tenging hans við guðdóminn er fyrsta skrefið, og þessvegna er það boðað þannig. Cernunnos er á sama hátt tengiliðurinn við aðra guði í mörgum tilfellum fyrir nýnemana.

Annars snýst þetta um jafnvægi eins og um náttúrulögmálin. Þetta snýst ekki um einstaklinginn. Það er undirstaða að skilja þetta. Fyrst þarf einstaklingurinn að leita jafnvægis og þá er réttlætið séð sem hluti af vilja guðanna, og Vili er þar mikill og öflugur.

Þar sem ekkert okkar er saklaust eða fullkomið þá er hægt að skilja að þetta er þannig, og okkar einstaklingsbundni vilji ræður ekki miklu.

Þetta er svipað og þegar sagt er innan kristilegra safnaða að vegna þess að við erum öll syndug þurfum við náð Guðs og fyrirgefningu.

Reiðin er nauðsynleg fyrir réttlætið og hefndin. Þessvegna má spyrja hvort ekki sé rétt að leita beint til Esusar sem guðs eyðileggingar. Þetta er þó auðvitað ekki svo einfalt. Sú fyrirgefning sem Cernunnos veitir getur verið nauðsynlegt fyrir mannlegt samfélag og til við sem einstaklingar þrífumst betur, vegna þess að réttlát meðferð mála getur þurft að bíða, vegna þess að önnur alheimslögmál vega þyngra þá stundina og eru ofar í tíðarandanum, ef svo má segja.

Það er sagt að allt bíði og ekkert gleymist í guðanna ríki og þessvegna komi réttlætið alltaf að lokum, hvort sem það er persónulegt eða á stærri grundvelli.

Þetta er ástæðan fyrir því að Cernunnos var svona vinsæll meðal Kelta. Hann veitir enn persónulega úrlausn.

Hann lætur sér annt um alla, og kærleikur hans er sérlega ljós þegar hann leikur sér meðal dýra og liggur á jörðinni og hjúkrar dýrum.

Þetta er það sem vantar mikið í nútímann.

Svo gæti virzt sem honum hafi verið alveg úthýst, því tegundum fækkar og mengun eykst, en auðvitað er þetta ekki þannig. Efnið lýtur andanum, og þar sem andinn forhindrar, þar spillist efnið.

Wicca nornirnar hafa skilið Cernunnos rétt, en aldrei er ausið úr öllum þekkingabrunnum þegar um guði er að ræða, að vísu, eða allar gjafir gefnar sem til staðar eru, hvort sem þær eru kærleikur og umburðarlyndi eða eitthvað annað.


Bloggfærslur 28. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 19
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 820
  • Frá upphafi: 150298

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 606
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband