Stríð elur alltaf af sér meira stríð, en friður fjarlægir hætturnar. Stigmögnun er það sem leiðtogar hafa stuðlað að

Eins og kemur fram í þessari frétt er hægt að efast um árangur árásanna á Íran og RÚV hefur verið samhljóma þessari frétt og flutt þær fréttir að árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna seinki aðeins kjarnorkuáætlunum Írana um fáeina mánuði, en verði einnig til þess að mögulega muni Íranir setja meiri alvöru í að beita harðari aðgerðum. Þá eru aðgerðir Trumps og Netanyahu til einskis, eða tjóns jafnvel.

Donald Trump er jafn óáreiðanlegur um dýrð Bandaríkjanna eins og fjöldamorðinginn Júlíus Sesar um dýrð Rómarveldis og hernaðarsigra þeirra.

Auðvitað ollu árásirnar tjóni, það segir sig sjálft, en þegar þekkingin er til staðar á þróun kjarnorku og efnin, og samböndin við að útvega meira, og svo olíugróði, þá eru svona árásir aðeins gálgafestur og töf.

Guðmundur Ásgeirsson kom með einu lausnina sem virkar, sem stríðsæsingamenn Zíonista auðvitað segja nei við, en það er afvopnun, ekki aðeins Írana heldur enn frekar Ísraelsmanna, sem myndi loksins lækka spennustigið á þessum hættulegu slóðum þar sem stríð eru algeng, og að því er virðist stöðug.

Í kjölfarið þarf að fá Frakka, Kínverja, Rússa og Bandaríkjamenn og aðra til að ljúka þeirri kjarnorkuafvopnun sem var byrjuð á sínum tíma.

Árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna hafa áorkað eitt sem er dýrmætt. Þær hafa látið fólk tjá sig, sem vill að ákveðin öfl kúgi alla jarðarbúa, og þeirra málflutningur hlýtur að vekja óhug og ógeð annarra.

"Það læra börnin sem fyrir þeim er haft".

Af þessu orðtæki má læra að áhugi Írana á kjarnorkuvopnum mun ekki hverfa fyrren Zíonistar láta af ofsóknarbrjálæði sínu þess efnis að allir vilji þá feiga og afvopnist, og að þeir einir eigi rétt á að eiga kjarnorkusprengjur.

Heimsbyggðin þarf að þrýsta á ÖLL kjarnorkuríki að afvopnast.

Það er ekki hægt að láta valdagráðuga brjálæðinga leika sér með líf allra jarðarbúa aftur og enn, aftur og aftur, áratug eftir áratug! Það bara GENGUR ALLS EKKI LENGUR! AFVOPNUN ER LAUSNIN!


mbl.is Ný skýrsla grefur undan árangri árásarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 835
  • Frá upphafi: 150223

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 619
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband