Sony TC K1A og Pioneer CT 760

Þessi tæki sameinaði ég í eitt á verkstæðinu hjá afa fyrir mörgum árum. Ástæðan er sú að Pioneer tækið hefur frá framleiðanda gangverk sem ekki er gott, en Sony tækið er með ágætt gangverk, en magnarinn í því er ekki neitt sérstakur.

Þar sem skrúfstykki var til staðar, borvél, sagir og hvaðeina þá sameinaði ég mörg svona tæki þegar ég bjó að Digranesheiði 8 og notaði verkstæðið. Þessi tæki keypti ég oftast í Sportmarkaðnum.

Pioneer CT 760 eru algeng tæki sem seldust mjög vel frá 1985-1986. Margir eiga svona tæki enn. Þau voru á hagstæðu verði og hljómuðu vel. Enda var þetta eitt vinsælasta merkið um langt árabil.

Kúplingin fyrir hægra hjólið er drifin áfram með tannhjólum sem ekki ganga á ská heldur beint. Þeir sem þekkja vélfræði vita hvað það þýðir, að titringur kemst í tannhjól sem bítast hvert í annað beint en ekki á ská. Það er einmitt eitt af stóru vandamálunum við þetta Pioneer módel.

Vélbúnaður og drifkerfi voru alltaf veiki hlekkurinn við Pioneer tækin, sérstaklega 1981-1988, og jafnvel lengur. Fyrirtækið fór að kaupa stöðluð vélkerfi og drifkerfi meira eftir það frá öðrum fyrirtækjum, þar sem minna var um vandamál. Það gerðu önnur fyrirtæki einnig. Á sama tíma var Kórea farin að framleiða mikið af raftækjum, og Japanir notuðu sér þeirra þjónustu, og framleiðsla var komin til annarra landa líka. Fram til 1980 og ögn lengur framleiddu Japanir allt sjálfir, en hljómtæki voru yfirleitt framleidd í Japan á 6. og 7. áratugnum og lengur, unz þetta varð mjög alþjóðlegt, hlutir framleiddir í mörgum löndum. Til dæmis var algengt að plötuspilarar væru framleiddir í Bretlandi í hljómtækjastæður franskra og þýzkra hljómtækjamerkja um 1985. Í dag er þetta mikið til framleitt í Kína eins og margur annar varningur.

Annars lenti ég í því að prentari varð ónýtur, gamall Epson prentari, Stylus Color 860, en prenthausinn gaf sig, sem er algengasta bilunin í þessum prenturum.

Loftgöt eru allan hringinn, og ef dísur eða núzzlur eru stíflaðar þá endar það með því að blekið sogast þá leið, en þá prentast nákvæmlega ekki neitt, því þá fer það alveg framhjá núzzlunum.

Seinna leiðrétti Epson fyrirtækið þetta, það var um 2001, en þá voru prenthausarnir orðnir erfiðari, og með tölvukubb, þannig að utanaðkomandi fyrirtæki áttu erfiðara með að selja ódýrari blekhylki, en það olli minnkandi sölu á þessum Epson prenturum. Þetta er dæmi um tækni sem átti að auka gróða en varð til að minnka hann, einokun á blekhylkjum.

En Sony segulbandstækin eiga það til að vera með galla líka. Einn galli er að vinstra spóluhjólið er of þungt í snúningi, og þá verður afspilun fölsk.

Í gær eyddi ég tíma í að taka þetta í sundur og fjarlægja gorm, þá varð þetta nokkurnveginn í lagi.

Annars er annað í þessum tækjum sem veldur vanda. Ferrite tónhausarnir þola ekki sum ný tónbönd, viðnámið er of mikið. Þá kemur einnig felskja.

Þannig að það eru eilíf vandræði með þessi hljómtæki, en maður getur lagað þetta yfirleitt, maður þarf bara þolinmæði, varahluti og smá þekkingu og reynslu.

Ég er nokkuð stoltur af því hversu vel mér tókst að sameina þessi tæki. Jafnvel svo að sleðinn virkar fyrir upptöku og afspilun. Það tókst mér með því að setja innvolsið úr Pioneer tækinu á nákvæmlega réttan stað með tillit til afstöðu stangarinnar sem dregur sleðann til og frá til að byrja upptöku.

Þá varð ég einnig að festa allt mjög rammlega með skrúfum og það gerði ég. Skrúfstykkin voru góð á verkstæðinu hjá afa og ég var búinn að fá reynslu, hafði lagað svona tæki lengi.

Hinsvegar hefur verið sambandsleysi í Dolby B og C tökkum. Ég lóðaði því rofana fasta á Dolby C sem ég nota mest. Það er tryggara en að nota hreinsifeiti eða hreinsiúða, því slík viðgerð endist ekki nema í nokkra mánuði eða ár. Ef maður lóðar rofa fasta á annarri hvorri stillingunni endist það næstum endalaust, þótt það kosti færri möguleika. Tækið verður traustara á eftir hinsvegar og það er kostur.

Annað Pioneer tæki er með bilaðar rafrásir og ég hef ekki gefið mér tíma í að líta á það. Svo er Akai tæki með ónýta þétta, orðið enda mjög gamalt, framleitt 1975.

Hinsvegar á ég Crown tæki frá sama tíma sem er í fullkomnu lagi, sem sýnir hversu góð Crown tækin voru og eru, þótt oft hafi þau verið talin léleg, vegna smávægilegra bilana eins og urgs í tökkum sem má laga með hreinsivökva.

Fleiri ættu að sameina svona tæki, nota gangverk úr einu og rafrásir úr öðru. Það kostar þó að borga og festa á ný, og huga að því að rafrásir skemmist ekki á meðan eða tengingar.

Einnig þarf að rýma til fyrir eldri takkaplötu, sem er þá mixuð við, með því að bora og saga hitt úr að hluta, og festa uppá nýtt með skrúfum og löngum róm, og skarpar brúnir álplatna sorfnar frá sem geta sært fingur.

Já þetta kostar að snyrta plasthluti og málmhluti og færa í samt lag aftur eins og hægt er.

Hljómurinn verður þó góður á eftir, því magnarinn í Pioneer tækinu er góður. Einnig breytti ég viðnámum og þéttum, til að fá betri hljóm.

Slíkt þoldi ekki Akai tækið, sem sýnir hversu lélegri þau voru og eru.

Annars notaði ég þetta segulbandstæki til að prófa upptökur á hljómplötum sem gefnar voru út 1972 og 1977. Sú sem var hljóðrituð 1972 hljómaði miklu betur en sú sem var tekin upp 1977.

Vilhjálmur Vilhjálmsson söng inná plötuna frá 1972, var hún tekin upp í Ríkisútvarpinu af Pétri Steingrímssyni, eða Tannlæknasalnum að Síðumúla þó sennilega frekar.

Sigurður Árnason tók upp í Tóntækni við Ármúla. Hljómblöndun hans finnst mér oft ekki nógu góð á plötum, vanta bassa og vera of mikið um miðjutóna og jafnvel hátíðni stundum. Þetta er þó vissulega smekksatriði, hvernig hljóðblöndun er unnin.

En það er merkilegt að fjögurra rása eða tveggja rása tækin í Ríkisútvarpinu voru ótrúlega góð um 1972, og þær hljómplötur hljóma jafn vel og úr útlendum hljóðverum. Því er skrýtið að ekki hafi meira komið út og verið hljóðritað þar, en kannski var plötuútgáfa dýrari þá.

 


Bloggfærslur 26. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 34
  • Sl. sólarhring: 159
  • Sl. viku: 834
  • Frá upphafi: 150188

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 620
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband