Ísland er að verða eins og Svíþjóð, segja sumir

Ég hitti gamlan leigubílstjóra um helgina sem amma og afi þekktu, og vann hjá Hreyfli. Við ræddum saman um gamla tíma og hann þekkti ömmu og afa nokkuð vel. Enda tengdist hann nágrönnum okkar fjölskylduböndum.

Ekki ætla ég að rifja upp okkar samtal í smáatriðum, en skemmst er frá því að segja að hann kaus Sjálfstæðisflokkinn áður fyrr, en vissi að Áslaug Arna gerði breytingar á leigubílalögunum sem voru mjög til tjóns og skaða og lýsti óánægju með Sjálfstæðisflokkinn. Ég get sagt án þess að fara útí nein smáatriði að hann lýsti ömurlegum atvikum sem orðið hafa, eftir að aðrir en íslenzkir leigubílstjórar fengu að koma inná markaðinn.

Hann varð að hætta sem leigubílstjóri sem afleiðing af breytingunum sem Áslaug Arna gerði á leigubílalöggjöfinni. Já, þetta eru raunverulegar sögur frá fólkinu í landinu. 

Miðað við sögur sem fólk segir um ástandið á leigubílamarkaðnum þá er þetta þaggað niður af fjölmiðlum og fjölmiðlafólki, því það vill láta eins og allt sé í lagi í þessu íslenzka þjóðfélagi okkar, á meðan sannleikurinn er sá að það stefnir hraðbyri í að verða eins og dystópían Svíþjóð!!! Og vegna stjórnmálakvenna og stjórnmálamanna!!!

Það er hægt að skilja það 100% að Sjálfstæðisflokkurinn minnkar en stækkar ekki, þegar maður heyrir svona sögur, sem afleiðingar af Katrínarstjórninni og verkum ráðherra og ráðfrúa Sjálfstæðisflokksins.


Söguleg efni, hámenning Rómverja og fleira

Björn Jón Bragason var með áhugaverða þætti á Hringbraut um sögulega þekkingu og fleira. Nú skrifar hann í DV og oftast vekur það mína athygli sem hann skrifar.

Nýjasta greinin hans er:"Gullaldir fyrr og nú".

Eftir að hafa lesið þessa grein var ég að velta fyrir mér hvort hann væri kannski búinn að lesa mína reglulegu pistla hér á Moggablogginu um drúíða og keltnesk trúarbrögð. Það er sennilegt, því báðir höfum við mikinn áhuga á mannkynssögunni.

Hann vitnar í rit Tacitusar um Germani.

Mér finnst hann útskýra vel fall Rómarveldis. Þar eru svipuð öfl að verki og hjá okkur með vestræna ómenningu.

Sænski sagnfræðingurinn Johann Norberg, í bókinni "Peak Human" er þó greinilega að afsaka alþjóðahyggjuna, og skilur Björn Jón það eins og ég.

Aðeins eitt í grein Björns Jóns finnst mér hæpið og verð að mótmæla því.

Þegar hann fullyrðir að Germanir hafi staðið Rómverjum langt að baki í menningarefnum finnst mér það söguskilningur sem nú er farinn að þoka og yngri sagnfræðingar farnir að mótmæla þeirri viðteknu skoðun.

Þegar hann notar það sem sönnun að allar ritheimildir um þá finnast meðal rómverskra sagnaritara, þá finnst mér hann misstíga sig. Það er ekki sönnun fyrir lágu menningarstigi og getur átt sér ýmsar útskýringar.

Latínan þróaðist í Ítalíu, í rómverska heimsveldinu. Stafróf annarra var mismunandi. Ýmsar þjóðir og þjóðflokkar voru ólæsir og óskrifandi. Það á EKKI við um Gaulverja, þó suma Kelta. Ég hef mikið rannsakað gaulverska menningu. Gaulverjar kunnu latínu og gátu skrifað hana, drúíðar (prestar og veraldlegir yfirmenn þeirra) að minnsta kosti, en ekki allir alþýðumenn að vísu. Gallía var gríðarstórt landsvæði og ekki gilti það sama um alla Galla, langt frá því. Ég hef rannsakað aðrar þjóðir Germanskar einnig. Það var sameiginlegt einkenni að þessar þjóðir áttu sér mikinn menningararf sem ekki var skrifaður niður nema af utanaðkomandi aðilum.

Hernaðarsnilld Rómverja er ekki sama og menning eða hátt menningarstig.

Til eru tilvitnanir í rómverska höfunda sem sögðu um drúíða að þeir væru fróðari en nokkrir Rómverjar, og mestu spekingar alheimsins, eða í þá átt.

Sennilegt er að almenningur í Róm hafi ekki verið á hærra menningarstigi en nágrannaþjóðirnar, fyrir utan skipulag, skólplagnir og annað, sem kannski var skárra meðal sumra Rómverja, vegna yfirvaldsins sem skipulagði.

Eftir því sem ég skoða trúarbrögð drúíða og Kelta betur þá kemst ég æ betur að því að þeir stóðu á háu menningarstigi. Þarna er talað um miskunn, kærleika og margt fleira, sem að vísu einnig var til í rómversku samfélagi, en einnig var mikið um grimmd og villimennsku innan rómverska heimsveldisins.

Mín niðurstaða er sú að Róm hafi verið eins og Bandaríkin, hernaðarlegt stórveldi, en hafi í menningarefnum stolið flestu frá Grikkjum, Keltum og öðrum. Nema það að Etrúar, fyrirrennarar þeirra, gáfu þeim einnig ríka menningu, vel að merkja.

Það að Rómverjar stálu guðum sínum frá Grikkjum er reyndar sagnfræðilega viðurkennt sem staðreynd, en hitt er meira álitamál, hvaða aðrar fornþjóðir áttu menningararf myndarlegan. Ég tel að víða hafi hann verið stórmerkilegur.


Hræðsluáróður

Kvöldfréttir RÚV gáfu mér ákveðna miðju og raunsæi varðandi árásir Trumps og Netanyahu á Íran.

Ég hef vissulega oft áður lýst þeirri skoðun minni að RÚV sé vinstrisinnuð stöð og ekki allra landsmanna. Það kann að vera í ýmsum málum. En samt er það svo að maður vegur og metur hvert mál útaf fyrir sig.

Það sem vakti athygli mína við kvöldfréttir RÚV um þetta var það að Íran hefur hvorki skotvopn til að svara í sömu mynt og tvíburaveldin USA og Ísrael né viljann til þess, þeir gáfu sem sagt aðvararnir vel tímanlega til Bandaríkjanna og Katar áður en þeir gerðu árásina á bandarísku herstöðvarnar í Katar. Fréttaskýrendur sögðu að þetta hafi verið sýndarárás, til að friðþægja reiði innanlands í Íran.

Öllum fréttum ber saman um að þrátt fyrir þessar hrottalegu árásir Ísraela og Bandaríkjastjórnar sé mikill sáttartónn og friðartónn í Írönum miðað við aðstæður.

Þá má spyrja sig, er það vegna þess að þeir eru máttlausari aðilinn í þessum aðstæðum eða er það vegna þess að minni stríðsæsingur sé hjá þeim en Ísraelum og Trumpstjórninni hægrisinnuðu?

Það kemur næstum útá eitt, því það sýnir vel fram á að hér er verið að gera árásir á óljósum grunni fullyrðinga, og sýnir grimmdina í þessu hjá Ísraelum og hugsanlega MJÖG hæpnar forsendur rétt eins og þegar árásirnar á Írak fóru fram 2003, og öll sú sneyuför, Saddam Hussein átti ENGIN kjarnorkuvopn og var ENGIN ógn við heimsfriðinn.

Kristrún í Kastljósinu var líka alveg ákveðin í því að friðarleiðin væri sú rétta en ekki svona árásir. Ég skynjaði að ég hef látið undan þrýstingi manna hér á blogginu sem ekki eru hlutlausir heldur hluti af Biblíubeltinu í Bandaríkjunum, blindur stuðningur við Ísrael sem sagt.

Síðan má rifja upp það sem Jónatan Karlsson fræddi mig um á sinni síðu, ég of ungur til að muna eftir því, var ekki fæddur, að morðið á John F. Kennedy 1963 var sennilega skipulagt af bandarísku leyniþjónustunni og erlendum öflum til að Ísraelar kæmust yfir kjarnorkuvopn og ekkert yrði gert af viti til að stöðva það.

Hér verður að bæta öðru inní.

Ég hef aldrei skilið til fulls hvers vegna Bob Dylan hætti að vera mótmælasöngvari, en það gerði hann vegna morðsins á John F. Kennedy 1963. Nú er það ljóst að gyðingar, eða Zíonistar er sennilegra nákvæmara orðalag, bæði innan og utan Bandaríkjanna komu við sögu, væntanlega. Einnig vitum við að John Lennon lenti í vanda vegna pólitíkur sinnar, og Elvis Presley var rannsakaður og fleiri.

Ég fór að endurmeta samræður mínar við Jóhannes Loftsson. Hann skrifaði að ef Íran eignaðist kjarnorkuvopn myndu hryðjuverkaöfl fá þau frá þeim og jafnvel allur Arabaheimurinn. Þetta er auðvitað hræðsluáróður.

Hversvegna?

Jú: Kjarnorkuvopn eru yfirburðir. Af hverju ætti Íran að láta af slíkum yfirburðum með því að dreifa kjarnorkusprengjum sínum eins og léttvægu drasli?

Íranir myndu þurfa að gera kjarnorkutilraunir.

Þessar árásir byggjast á hræðsluáróðri í þeirra garð.

Það er auðvelt að sjá að ferlið er lengra en haldið er fram af sumum í því að verða kjarnorkuveldi.

Auk þess, ef Íran myndu þróa nothæfar kjarnorkusprengjur, þá er ekki eða varla rétt að þeir létu þær í hendurnar á hverjum sem er. Allir geta séð að samskomulagið á milli Arabaríkjanna er ekki of gott eða traustið.

Eftir því sem þessi mál eru betur skoðuð kemur betur í ljós hverjir stjórna heiminum. Eina prósentið, sem á 99%, sem kúgar okkur hin.

Þetta eina prósent er bæði hrætt um að missa yfirburði sína, völd og peninga. Þetta eina prósent er jafnvel hrætt um að einhver alþjóðalög geti náð yfir Elítuna, verði ekki gætt að því að loka fyrir slíkt.

Annað að lokum:

Vopnahlé, friðarsamningar, sérstaklega sem Trump og slíkir öfgamenn tilkynna, halda ekki, bjarga engu, eru lítils virði eða einskis virði, áfram halda málin að þróast.


mbl.is Íran skýtur eldflaugum á bandarískar herstöðvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júní 2025

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 29
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 497
  • Frá upphafi: 149711

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 401
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband