1.6.2025 | 04:19
Þar til skynjum Esus og hans dans, ljóð frá 5. maí 2021.
Tekur inn og leggur þar á vonir, vinur kyssir,
vörnin trauðla þessi sýki, eitur, gjörðin...
Ef þú rífur húsið hans,
hættir framtíð sú.
Fjarri grætur fullreynd jörðin,
fjarska góðar brautir missir.
Bjáninn montinn brýtur sér af,
brúðir féllu í kös.
Blásið er loks boði þér af,
bara fyrir ös.
Gegn þér líka getur boðið dans
góður Esus, trú.
Gráar þar á brautarteinum samúð sinna ekki.
Sjá þó hvernig reglur láta táknið birta...
Þær sem lifðu í húsi hans
hafa fórnað sér.
Ekki þetta aldna, virta,
aðeins það sem lofar hlekki,
kemur þar og kálar fylgi,
kennir ekki sig.
Gullsins þókt sig gerð nú ylgi,
getur skaðað þig.
Þar til skynjum Esus og hans dans,
ekkert virkar hér.
Kemur valdið systrum frá er segja trauðla meira?
Sjálf er tízkan þannig, eitthvað nýtt og betra?
Menning er í húsi hans,
heimur sem þó féll.
Niðurrifið vill þig vetra,
veiztu að frúrnar munu ei heyra?
Held mér þó í Völu vísu,
vil því lofa nóg.
Síðar finnum Chaos, krísu,
kannski drukknun, sjó.
Meiri en Kristur, Esus og hans dans,
eftir margan skell.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 1. júní 2025
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 131
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 813
- Frá upphafi: 147759
Annað
- Innlit í dag: 117
- Innlit sl. viku: 639
- Gestir í dag: 110
- IP-tölur í dag: 108
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar