30.5.2025 | 02:06
Konur halda áfram hryðjuverkum og niðurrifi unz ekkert er eftir
Snemma dags í gær ætlaði ég að segja mig úr Þjóðkirkjunni loksins, en svo nennti ég því ekki. Ástæðan fyrir þessari mjög svo knýjandi þörf að segja mig úr Þjóðkirkjunni var að í gær var í Digraneskirkju fjallað um einhverja bók sem er í smíðum fyrir presta þar sem reynt er að gera kvenkyns guð meira áberandi. Kvennakirkjan hefur að mér skilizt fengið rými innan Þjóðkirkjunnar, en verið þó olnbogabarn, fyrr en nú með með kvenkyns biskupum.
Góður vinur minn er frábær íslenzkumaður og hann fer yfir málfar oft á bókum eða bæklingum innan kirkjunnar. Hann er að fara yfir þetta handrit.
Þetta er ekki í fréttum almennt, en ég veit þetta því ég þekki eitthvað til um þetta. Mér skilst að íhaldssamt fólk innan Þjóðkirkjunnar sé að reyna að hindra þetta, en verði ekki nóg ágengt. Það er valdabarátta innan kirkjunnar eins og sést á biskupskjörum nýlegum, þar sem konur hafa orðið biskupar sem eru lengst í hinseginstuðningsáttina og kvennaguðfræðiáttina, sem hefur valdið ómældri gremju og reiði meðal þeirra íhaldssamari innan kirkjunnar og utan hennar jafnvel líka.
Mér var boðið að mæta á þennan fund í gær því fólk vildi að ég tjáði mig og styddi þá íhaldssamari, en ég tók dræmt í það, vegna þess að ég sagði að þetta yrði ekki stöðvað ef sjálf biskupan stæði á bakvið þetta sem mér skildist að væri raunin.
Þó var ég alveg til í að tala og tjá mig um þetta ef vinur minn hefði mætt, en hann tók ennþá dræmar í þetta en ég, til að rugga engum bátum.
Síðan fór ég á Bókasafnið í Kópavogi og þar hitti ég Votta Jehóva sem að venju létu mig fá bæklinga og spjölluðu við mig. Ég sagði þeim frá þessu og ánægjulegt að segja frá því að þau voru öll sammála mér um að Þjóðkirkjan væri á villigötum með kvenbiskup sem styður heiminn og mannréttindi Satans, eins og var skilningur þeirra.
Fólkið frá Vottum Jehóva sagði að fréttirnar um kvennakirkjudaðrið væri einmitt sönnun og staðfesting á mikilvægi þeirra sjálfra og annarra sértrúarsafnaða þar sem enn væri fólk andsnúið svona guðlasti.
Kvenkyns guð innan kristinnar eða gyðinglegrar kirkju er marklaust fyrirbæri og það geta allir sagt sér sjálfir. Það er gyðja, því kvenkyns guð er gyðja samkvæmt íslenzkri skilgreiningu og alþjóðlegri, "goddess instead of a god."
Það vill nú þannig til að kynferði Jehóva, eins og þau kusu að orða þetta, en ekki Jahve, það er óvenju vel skjalfest og tryggt í sögunni, í bókum, myndum og styttum.
Þó tek ég það fram að þau töluðu mikið um að skurðgoð og myndir af Guði væru ekki þóknanlegar honum.
Theos á grísku er með karlkynsendingunni -os þannig að þetta fer nákvæmlega ekkert á milli mála.
Auk þess er hefðin öll á þennan veg.
Hinsvegar átti Baal konu, Asheru, og ég ræddi um þetta við þau. Sumir fræðingar telja að Jahve hafi einnig átt þessa sömu konu, Asheru, en hún hafi verið látin hverfa af rabbínum og valdhöfum Hebrea eftir herleiðinguna, þegar trúin og sjálfsmyndin var í kreppu hjá þeim. En þau vildu ekki kannast við þessar fræðilegu kenningar um að Jahvedýrkunin hafi sprottið uppúr Baaldýrkuninni heldur sögðu þau að Guð hefði opinberað sig.
En þau voru öll mjög hörð á því og sammála að annaðhvort er Guð kynlaus andi eða karlkyns, en alls ekki kvenkyns, það er guðlast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 30. maí 2025
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 32
- Sl. sólarhring: 194
- Sl. viku: 690
- Frá upphafi: 147498
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 524
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar