30.4.2025 | 01:18
"Kaos" á leigubílamarkaði, sagði María Rut í Kastljósi
Það var áhrifamikið að heyra Maríu Rut Kristinsdóttur nota orðið "kaos" um leigubílamarkaðinn í Kastljósi í gær, því allan tímann reyndi hún að kaffæra Þorstein Sæmundsson andmælanda sinn úr Miðflokknum í wók orðræðu og rökum um jöfnuð og mannúð og að láta ekki uppruna brotamanna getið. María Rut Kristinsdóttir, sem talaði við Þorstein í Kastljósinu skrifar mjög beitta wók-pistla reglulega í DV, og heldur þar uppi vörnum fyrir mannréttindi og mannúð í breiðum skilningi, og finnst sumum þar vera öfgar en öðrum ekki. Þannig að manni finnst þetta áhugaverð uppstilling, að fá hana og Þorstein Sæmundsson til að deila, en hann er rótgróinn Miðflokksmaður, og þeir eru með því íhaldssamasta sem er til á þessu landi okkar.
Þó mátti sjá glitta í efann hjá henni og ósigursmerki wók-stefnunnar, einnig hér á Íslandi, einsog þegar hún notaði orðið "kaos" um leigubílamarkaðinn eftir breytingarnar frá 2023 illræmdu og óvinsælu, sem nú er reynt að vinda ofanaf, sem betur fer.
En María þessi Rut hefur verið áberandi í hinseginumræðunni ásamt eiginkonu sinni Ingileif Friðriksdóttur, en sú síðarnefnda bjó til þætti um hinseginleikann, held ég fyrir RÚV frekar en Stöð 2, en allavega, þær eru áberandi í þjóðfélaginu og önnur komin í pólitíkina, ef ekki báðar.
Hvort sem fólk ákveður að fara inní þennan lífsstíl sjálft eða að þessar hneigðir eru því meðfæddar þá leiðir það af sjálfu sér að flokkar eins og Viðreisn hljóta að vera þeirra heimavígstöðvar frekar en Framsókn, Sjálfstæðisflokkur eða aðrir íhaldsflokkar.
Þannig að maður hlustar með nokkurri athygli hvað þetta mjög svo frjálslynda fólk segir, og áhugavert er þegar maður heyrir að sannfæringin um þessi mál getur stundum verið brothætt. Sérstaklega þegar sumir hrúga öllu á sama vagninn, samúð með útlendingum, opin landamæri, hinseginmál, kynhlutlaust mál, og fleira og fleira.
Aumingja Katrín og Vinstri grænir reyndu að draga wók vagninn í síðustu ríkisstjórn, sem var mikil óheillaríkisstjórn, fyrir alla flokkana sem að henni stóðu og fólkið í landinu líka. Vinstri grænir voru á sjálfseyðileggingarför, og eyðileggingarför almennri eins og nú er vitað og viðurkennt, eftir síðustu kosningar, þegar VG þurrkaðist nánast alveg út.
Sjálfsblekking fór saman við fjölblekkingar og alþjóðablekkingar wókmúgæsingarinnar á síðasta kjörtímabili.
Jóhannes Ragnarsson lýsir þessu mjög vel, sem hefur bloggað fyndna og merkilega pistla, að Vinstri grænir hafi frá upphafi verið vonlaus flokkur, vegna femínismans sem reið honum á slig frá upphafi. Hann vill fá ekta gamaldags kommúnistaflokk í staðinn, eða sósíalistaflokk. Já, ég er sammála honum. Þannig stéttabarátta er heiðarleg og hrein, ómenguð og á rétt á sér.
En þótt núna sé reynt að byrja á að vinda ofanaf hryllilegum verkum síðustu stjórnar á sumum sviðum, þá er eftir að koma hvalveiðum í gott gengi og herða reglur um fóstureyðingar á ný og margt fleira misjafnt sem Katrínarstjórnin skildi eftir sig.
En bæði það sem María Rut sagði og svo einnig Þorsteinn og einnig þáttastjórnandinn, þá sannfærðist maður um það að ekki eru það ýkjur sem Geir Ágústsson hefur verið að blogga um, að hópnauðgunarfaraldur sé kominn á Íslandi. Manni skildist af því sem kom fram í Kastljósþættinum að leigubílstjórar án ökuréttinda hefðu nauðgað farþegum, en maður undrast að slíkt hafi ekki orðið að forsíðufréttum í öllum fjölmiðlum!
Notað var orðalagið að bílstjórar hefðu "ráðizt á" farþega, eitthvað slíkt felst í því orðalagi eins og nauðgun, því einnig var talað um að þeir hefðu áreitt farþegana og oftar.
Enda fer maður þá að skilja hversvegna konur eru að biðja um íslenzka bílstjóra og kvenkyns bílstjóra og vilja ekki sitja í bíl með hverjum sem er. Fyrst fannst mér það bera keim af einhverju karlahatri, að þær vildu ekki karlkyns bílstjóra, en ég skil að það sé réttlætanlegt ef um nauðganir hefur verið að ræða af hendi bílstjóranna, eða eitthvað sem nálgast slíkt.
En þetta hefur farið furðulega hljótt og ekki komið í fjölmiðla fyrr en nú. Ríkir einhver þöggun í fjölmiðlum um þetta? Er það í samræmi við að þjóðerni afbrotamanna er yfirleitt aldrei gefið upp, fyrr en seint og um síðir?
Þótt reynt verði að bæta fyrir mistökin með ömurlegri lagabreytingu fyrir tveimur árum þá er ég anzi hræddur um að seint eða aldrei muni þetta verða tekið til baka að öllu leyti.
Fólk hefur í sér kynslóðaminni. Kjaftasögur fara á kreik. Hegðun fólks breytist. Fólk sem hafði ekki í sér útlendingaandúð eða kynþáttahatur getur farið að finna fyrir slíkum tilfinningum eftir annaðhvort kjaftasögur sem það heyrir miður skemmtilegar eða lífsreynslu frá eigin hendi, samkvæmt þessum lýsingum í Kastljósi í gær.
Já, Katrínarstjórnin kastar löngum skugga, ekki er hægt að segja annað. Ekki nóg með að hún hafi grafið sína eigin gröf, heldur stuðningskvenda og stuðningsmanna sinna einnig og af miklum dugnaði.
Sum verk síðustu stjórnar sem þarf að afturkalla leiða til ófrægingar á mannréttindum og mannréttindamálum almennt virðist manni. Því er vandratað meðalhófið, eins og löngum hefur verið sagt.
![]() |
Meðan á þessu fer fram er enn yppt öxlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2025 | 01:15
Við sama heygarðshornið, hatur á ríku fólki í Kveik
Í fyrsta lagi þá horfi ég (yfirleitt) EKKI á Kveik (nema í Tímaflakki, ef eitthvað vekur áhuga minn eftirá). Sama óknyttafólkið býr þar til efni og rak Sigmund Davíð úr embætti með fyrirsátinni í upphafi Wintrismálsins svonefnda, eða öfundarmálsins í hans garð og hatursins í hans garð úr ranni vinstrimanna.
Ég held að það sé rétt skoðun hjá mér að öfgavinstrifólkið sem býr til Kveik hafi lítið erindi við almenning.
En kemur það nokkrum á óvart að njósnir séu stundaðar á Íslandi?
Að vísu MJÖG slæmt fyrir þá sem verða uppvísir að þessu, fyrst þetta fer gegn reglum sem taka að sér löggæzlustörf.
En í alvöru... útlendar og innlendar glæpaklíkur stjórna lögreglunni, dómskerfinu, Alþingi og eiginlega öllum Íslendingum, í gegnum Georg Soros, Bill Gates og þannig auðjöfra.
Engum þarf að koma á óvart að peningar stjórna heiminum, og það er bara það sem kemur Donald Trump til valda, Barack Obama, Joe Biden og öðrum sem komast til valda í vestrænum "lýðræðisríkjum".
Björgúlfur Thor vill auðvitað eins og aðrir auðmenn ávaxta sitt pund og hafa áhrif fyrst peningarnir gera slíkt mögulegt, og mikill auður að auki, meiri en flestra annarra.
Já, ágætt að velta við þessum steinum, en það er margt fleira frásagnarvert og hneykslanlegt sem fæstir vita um.
![]() |
Í hálfgerðu áfalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2025 | 01:02
"Í upphafi var Kaos." "Í upphafi var Esus." "Í upphafi var Ginnungagap".
"Í upphafi var orðið, og orðið var hjá Guði, og orðið var Guð; það var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru gjörðir fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. Í því var líf, og lífið var ljós mannanna: og ljósið skín í myrkinu, og myrkrið hefir ekki tekið á móti því."
Þetta er upphaf Jóhannesarguðspjalls í Biblíunni, í útgáfunni frá 1968, sem ég á.
Þeir félagarnir Magnús og Guðjón hafa vakið áhuga minn á þessari tilvitnun enn frekar en þann áhuga sem ég hafði fyrir.
Hér eru athugasemdir sem geta útskýrt mínar skoðanir:
Ég er mjög sammála þessum pistli, hann er skrifaður af mikilli vizku. Ég trúi heldur ekki á tilviljunina. Dr. Helgi Pjeturss nefndi guð "hinn mikla verund" og "hinn mikla verðund", það er hugmyndin um að skaparinn hafi fórnað sér fyrir sköpunarverkið, að Guð felist í efni og anda samhliða og komi fram á mjög löngum tíma. Eftir margar kollsteypur eins og við verðum vitni að hér í okkar lífi.
Guð er því bæði ófullkominn og fullkominn samkvæmt þessu.
Ennfremur geri ég mér vel grein fyrir göllunum á kenningunni um manngert loftslag.
Árni Waag heitinn gekk aldrei svo langt að tala um manngert loftslag, hann kenndi mér um 1980. Hann talaði um áhrif mannsins á loftslagið.
Það eru mjög mörg atriði sem hafa áhrif á loftslagið, eins og uppgufun úr freðmýrum, eldfjöll, loftsteinahröp (þótt sjaldgæf séu), gróðureldar, maðurinn... vafalaust miklu fleira.
Í fortíðinni áttu sér kollsteypur á veðurfari. Ekki vitum við til þess að hámenning hafi þá ríkt og átt sök á því.
Nei, hvort sem maður er alveg sammála Biblíubeltinu eða ekki í Bandaríkjunum þá er þar fólk á nokkuð réttri leið. Fínstilltar tilviljanir í tuga eða hundraðatali gera okkur kleift að lifa á þessari jörð.
Enn fremur annað:
Öll atriðin sem hefði getað valdið heimsendi þau eru of mörg til að hægt sé að flokka þau sem tilviljanir. Verndandi kraftur eða guð kannski.
En allavega: Ég tel líklegt að jörðin sé tilraunastofa, við séum eins og rottur í búri sem gert er tilraunir á.
Ég stenzt ekki mátið að bæta hér við.
Af öllu í Biblíunni er varla hægt að finna grískari eða heimspekilegri texta en það sem Magnús vitnaði í "Orðið var guð..." osfv.
Logos getur þýtt lögmál, orð, fyrirætlun, skipulag, uppröðun, skynsemi (reason).
Aristóteles notaði það í vísindalegum tilgangi, í merkingunni ástæða.
Grísku heimsspekingarnir notuðu það til að tákna samræðu, rökræðu, til að komast að niðurstöðu.
Það var tengt rökræðu strax í upphafi.
Þessi setning á að merkja að Jesús Kristur hafi verið til frá upphafi og verið guð frá upphafi. Það er samt guðfræði, það er að segja túlkun á þessum orðum með sértækum hætti.
Ég er nokkuð viss um að svona texti á sér heiðinn uppruna, en ég finn það ekki á netinu. Það er sennilega eitt af því sem var viljandi eyðilagt, frumtextinn heiðni og upphaflega samhengið.
"And the word was a god" vilja sumir þýða þetta á ensku. Á íslenzku er það"Og orðið var einhver guð".
En þegar ég fór að skrifa pistilinn um orð Maríu Rutar í Kastljósi um "kaos" á leigubílamarkaði, þá fór að rifjast ýmislegt upp um tengslin á milli Esusar og Jesúsar Krists.
Esus er talinn Kaos og Ginnungagap.
Orðin í upphafi Jóhannesarguðspjalls virðast því hafa verið skrifuð um Esus en ekki Jesúm Krist. Þá hef ég fundið guðinn heiðna sem þetta var skrifað um.
En Esus er einnig talinn svipaður og Baldur og Ósíris, sólarguð og kornguð. Það útskýrir enn frekar um "líf og ljós mannanna", hver raunveruleg og upprunaleg merking er.
En ég veit að ég tala fyrir daufum eyrum. Hér eru flestir kristnir og hafa því lítinn áhuga á þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. apríl 2025
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 23
- Sl. sólarhring: 107
- Sl. viku: 682
- Frá upphafi: 143834
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 505
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar