Að kjósa að vera tapari trúarinnar vegna

Sagan um Galdra-Loft eða Mefistóteles eða Fást, hún á við um nútímann og Vesturlönd.

Fæstir eru mennskir á Vesturlöndum. Vélmenni og geimverur, það er það sem við erum upp til hópa, af vítisgerðinni. Umbreyting hefur átt sér stað. Fólki er ekki sjálfrátt á okkar tímum.

Það er fólk á öðrum hnöttum sem ýtir á takka á tölvum sínum og lætur fólk á Vesturlöndum hlýða, bókstaflega.

Það er mjög auðvelt að segja að ég sé rugludallur með samsæriskenningar. Þar skiljast sauðirnir frá höfrunum. Sumir af þeim sem kallaðir eru klikkaðir eru langt á undan sinni samtíð og snillingar eins og ég og fleiri. Ég segi bara eins og Sherlock Holmes: Sá snillingur sem veit ekki af verðleikum sínum og viðurkennir þá er að vantmeta sjálfan sig og það er eins mikil heimska og margt annað.

Fyrir þessa örfáu sem ekki eru fífl og viðurkenna að ég sé snillingur vil ég benda á þetta: Mínar kenningar eru í samræmi við tækniþróun undanfarinna áratuga. Málsmetandi vísindamenn eru að tala um að mannkynið verði vélvætt í framtíðinni.

Tökum bara nanótæknina og RDNA tæknina sem var notuð í Covid-19 fárinu og haldið er fram að sé mikil búbót og útrými sjúkdómum síðar.

Sú tækni var bara í vísindaskáldsögum fyrir nokkrum áratugum. Þegar ég segi að fólk sé ekki mennskt lengur styðst ég við alvöru upplýsingar og greiningu á ástandinu.

Þegar ég samdi lagið "Húðflúr er frá Helvíti" 20. nóvember 1996 grunaði mig ekki hvernig framtíðin yrði í smáatriðum, en spásagnirnar hafa þó komið fram í þeim merkilega texta.

Það er ekki tilviljun að sennilega meira en helmingur fólks ber einhverskonar húðflúr nú til dags, á ákveðnum aldri. Það er heldur ekki tilviljun að óskynsamleg hegðun er orðin mjög algeng og múgæsing sem lýtur fjarlægum stjórnendum. Fólki er fjarstýrt á Vesturlöndum, sem er ein aðalástæðan fyrir því að ég hef óbeit á Vesturlöndum, þau eru afsönnun á öllu sem þau áttu að standa fyrir, mannréttindi og lýðræði.

Kynhvöt kvenna og karla hefur verið að minnka mikið frá því að Bubbi Morthens varð vinsæll á Íslandi upp úr 1980. Sérstaklega eftir 2000, en X-2000 stýriefnið sem berst inní líkamana bæði með lokkum, göddum og húðflúri, það heitir eftir ártalinu 2000. Geimverurnar sem stjórna Vesturlöndum miðuðu við þetta ártal og gerðu áætlanir sem gengu fullkomlega eftir, og áætlanirnar gengu útá að húðflúrstízkan yrði svo algeng árið 2000 að þar yrðu skil í mannkynssögunni, frá frelsi yfir í helsi.

Sumt fólk hefur myndað ónæmi fyrir stýriefninu X-2000 eða er með náttúrulegt ónæmi fyrir því. Það þýðir að sama hversu húðflúrað það verður heldur það skertri rökhyggju og sjálfstæðri hugsun. Þetta er ekki ósvipað því að til er náttúrulegt ónæmi fyrir smitsjúkdómum og öðrum sjúkdómum. Ég gæti trúað að Björk Guðmundsdóttir og einn snjall bloggari hér sé meðal þeirra sem eru ónæm fyrir X-2000.

Enn fremur: Hvert flýr maður úr svona ómenningu sem maður tilheyrir?

Jú, við lifum í andlegum heimi frekar en efniskenndum eða líkamlegum.

Þar af leiðandi: MAÐUR FLÝR INNÍ AÐRAR VÍDDIR!

Fólk lifir hér í sama efnisheimi, en andarnir eru víðs fjarri. Það sem gerist er að efnisheimurinn er að klofna með brotthvarfi einstaklinganna í meðvitund eða meðvitundarleysi sínu og dofa vökunnar.

Þú flýrð með vitnisburðinum. Bænin er sérhver hreyfing þín í daglega lífinu, en heiðinn maður þarf ekki að biðja á annan hátt en að vera staðfastur í trú sinni á goðin. Sú tilvera er bæn í sjálfu sér, því hún er bón um að öll sú viðleitni skili árangri, sem mun gerast.

Vitnisburðurinn er þannig að þú sýnir heiminum vísifingurinn og þar með veit Guð að þú ert verðugur og ekki fífl. Það getur kostað mann ýmislegt, en í heimi þar sem allt er öfugt borgar það sig auðvitað.

Maður sættir sig við tapið. Þar kemur hin ágæta auðmýkt inn sem er nauðsynleg. Að kjósa að vera eilífur tapari í þessum heimi.


mbl.is Heilsuspillandi efni langt yfir mörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að taka eða taka ekki þátt í stríðsátökum

Pálmi Gunnarsson sem mér finnst þjóðardýrlingur, svo góður söngvari er hann, og spilaði með Megasi á Drögum að sjálfsmorði, segir að það að RÚV taki þátt í Eurovision að ári minni hann á setninguna "að selja skrattanum sálu sína".

Söngvarinn Friðrik Ómar er ósammála.

Að þessu sinni finn ég varla neitt skárra að blogga um en þetta.

Ég er að verða æ meira sammála Pálma Gunnarssyni. Ekki sízt vegna þess að þessi keppni er orðin allt annað en hún átti að vera upprunalega. Alþjóðavæðingin og wók hefur gert hana að djóki, en ekki keppni meðal Evrópuþjóðanna. Nú er þetta keppni í dyggðaflöggun og búningum en ekki söng eða tónlist.

Og þó er ljóst að hringekjan heldur áfram, RÚV tekur þátt og fólk reynir að skemmta sér yfir þessu sem er bara circus núna.

Minnir okkur á það að við stjórnum ekki lífi okkar hér í helvítis "lýðræðinu", afskræmislýðræðinu, með hringinn í nefinu eins og asnarnir, teymd áfram til verri víta.

Nei, það er ekki geðslegt að skemmta skrattanum með þessum hætti og kætast á meðan ein af þjóðunum í keppninni hagar sér svona.

Ég skil Pálma Gunnarsson og er að miklu leyti sammála honum.

Ég á þó vini sem eru mjög uppá Biblíuhöndina og þeir segja að Ísraelsmenn séu í fullum rétti sama hvað þeir gera.

Ég hef samið lög og texta á mínum ferli sem ríma alveg við skoðanir góða fólksins, eins og lagið "Flóttabörnum fögnum bara", frá 2001, og kannski vil ég gefa það út.

Ég styð þá tillögu að taka þátt í Júróvisjón, en mótmæla að þessu sinni bæði þátttökunni og einnig yfirstjórn RÚV á götum úti og fyrir framan RÚV bygginguna.

Síðan þarf að búa til Nordicvision eða Real Eurovision eða New Eurovision, því þessi gamla er alveg farin í hundana, þannig séð.

Styð ég þá tillögu sem margir bloggarar hér eru hlynntir, að ný stjórn verði fengin á RÚV og lýðræðisleg, einhvernveginn ekki alltaf sama pólitíska liðið til vinstri.

Mótmæli eru bæði holl fólki og lýðræðinu. Með mjög kröftugum mótmælum finnur fólk styrk sinn og lýðræðið vaknar í verki.

Ef svo stór hluti þjóðarinnar mótmælir að RÚV yfirstjórnin fer frá og önnur RÚV yfirstjórn stofnar nýja svona Eurovision keppni, eða tekur ekki þátt í þessari, þá er árangrinum náð, og fólk hefur fundið styrk hjá sér.

 


mbl.is Segir uppreisnarmenn Húta munu fá að gjalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. september 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 20
  • Sl. sólarhring: 229
  • Sl. viku: 759
  • Frá upphafi: 119753

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 612
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband