Hin saklausu og friðsömu Norðurlönd sem aldrei valda stigmögnun eða auka hættuna á kjarnorkustríði.

Sá viðbjóðslegi verknaður að eyðileggja úkraínsk sjúkrahús gæti bent til örmögnunar og skotvopnaskorts hjá Rússum eins og Einar Björn Bjarnason stjórnmálafræðingur, Evrópufræðingur og bloggari með meiru taldi um að ræða í nýlegri grein.

Til að sýna fram á að ég er gagnrýninn á alla aðila tek ég það hér fram strax í upphafi að ég tel Rússa seka um þetta. Ég trúi því ekki fyrir fimmaura sem þeir segja, að Úkraínumenn beri ábyrgðina á þessu. Það ætti að sýna í eitt skipti fyrir öll að ég er gagnrýninn á alla og tek mína eigin afstöðu á grundvelli upplýsinga, reyni það að minnsta kosti, að hafa það fyrsta kostinn, þótt tilfinningar spili vissulega inní hjá mér eins og öllum öðrum líka.

En ég vil taka annan pól í hæðina hvað varðar þessa frétt, hættuna á að Rússar beiti efnavopnum, sýklavopnum og jafnvel kjarnorkuvopnum, þá litlum fyrst, ef þeim fer að skorta hefðbundin vopn.

Telja Evrópuþjóðirnar sig alveg geta þvegið hendur sínar á samsekt í þessu stríði? Telja öfgaþjóðir eins og Danir og Svíar að þeir beri ekki ábyrgð á úkraínsku mannfalli, eins hryllilegt og það hefur nú verið?

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er gott dæmi um Natóráðherra í þessu máli sem sér bara eina hlið málanna, og skortir alla mannlega eiginleika til diplómasíu, eða vilja til friðarumleitana eða víðsýni.

Það er eins og þetta fólk sé ekki lengur mennskt heldur vélmenni, sjái allt í svarthvítu, og ekkert komi til greina nema stríð. Staðfesta merkir stríð í munni þessa fólks.

Þórdís Kolbrún og annað Nató fólk þarf að svara ýmsum spurningum í einrúmi og opinberlega til að sanna fyrir sér og öðrum að það sé ekki stríðsæsingafólk og að Nató sé ekki árásarbandalag heldur varnarbandalag eins og það heldur fram.

1) Hvaða hræðilegu afleiðingar hefði það ef Rússar sigra Úkraínumenn? Það er brot á alþjóðalögum. En alþjóðalög eru sífellt að breytast og þau eru ekki alltaf réttmæt eða réttlát. Þau eru ekki heilög. Þau eru ekki Biblían eða Kóraninn eða Snorra Edda.

2) Hefði það þær afleiðingar að Kínverjar réðust á Taiwan?

3) Myndi Norður Kórea ráðast á Suður Kóreu?

4) Hefur ekki Ísrael nú þegar ráðizt á Gazaströndina og það þrátt fyrir "staðfestuna gegn Rússum", og tilraunir Nató til að láta þetta ekki líðast?

Rússagrýlan. Hún er nú aftur komin á stjá.

Hefur Þórdís Kolbrún Gylfadóttir svona mikla samúð með Úkraínumönnum? Hver trúir því í alvöru? Enginn?

Henni er alveg sama um ungu karlana og jafnvel ungu og fallegu femínistana af kvenkyni sem deyja vegna stuðningsins við Úkraínu frá henni og Norðurlöndunum?

Henni er sem sagt alveg sama um Úkraínumenn sem slíka, en henni er ekki sama um hugmyndina sem þeir styðja. Hvaða hugmynd er það?

Jú, það er stuðningurinn við Vesturlönd og andstaðan gegn Rússum eða rússneskum stjórnvöldum.

Úkraínskur almenningur má þessvegna deyja til að styðja við hugmyndafræði Vesturlandabúa! Mannúðlegt eða hitt þó heldur!

Hvaða andskotans Rússagrýla er þetta sem nú er komin á stjá á Vesturlöndum aftur? Natóleiðtogar blása sig út eins og blöðrur á fundum og sjá allt í einu aftur tilgang sinn og stækka Natóið sitt.

Deyjandi skrímslið Nató fær aftur lygatilgang og rennur á blóðslóðina og peningaslóðina, gróðaslóðina.

Já, Natóríkin deyjandi geta grætt á Úkraínustríðinu með því að frysta rússneskt fé og nota gegn Rússum sjálfum, svo dæmi sé tekið. Heiðvirkt, göfugmannlegt og heiðarlegt, ekki satt? Stórmennskulegt jafnvel af ESB og Nató?

Helgislepjan ræður ríkjum opinberlega.

Mestu stríðstímar síðan heimsstyrjöld númer 2 lauk og ALLT Rússum að kenna, EKKERT okkur að kenna. Við erum saklaus sem lömb. Horfið bara á Hollywoodkvikmyndirnar. Þannig er þetta í þeim, enginn áróður, bara sannleikur.

Vil minna á að ósýnilegar geimverur hafa yfirtekið jörðina, femínista, jafnaðarmenn, Vesturlandabúa nánar tiltekið. Húðflúr og lokkar, X-2000, andstaðan við Biblíuna.

Það er hægt að tapa öðruvísi en í hefðbundnum stríðum. Femínistar geta ekki útskýrt hvers vegna þeir standa með hryðjuverkamönnum eins og Hamas á móti Ísrael. Femínistar geta heldur ekki útskýrt hvers vegna þeir standa með múslimskum öfgahópum sem fá rótfestu á Vesturlöndum , til dæmis í Svíþjóð, og breyta okkar þjóðfélögum innanfrá.

Femínistar geta ekki útskýrt af hverju þeir hata innlenda karlrembu en ekki útlenda.

Er það hugleysi? Er það eitthvað göfugmannlegt sem ekki er hægt að útskýra?

Femínistar geta ekki útskýrt þessar þversagnir öðruvísi en með frösum sem eiga við um fortíðina, fyrir löngu síðan.


mbl.is „Stríðsglæpur að skjóta á sjúkrahús í Úkraínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 22
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 443
  • Frá upphafi: 152251

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 315
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband