9.6.2024 | 01:14
Það er ekki eðlilegt hvað ungar stjörnur deyja margar síðan Covid byrjaði. (Ó) menningin er mannskæð.
Þegar talað er um offitutengd andlát er verið að fela raunverulega orsök. Fitufordómar leiða þéttholda fólk sem er frægt til að taka inn allskyns óþverra og hálfdrepa sig eða steindrepa með því.
Hér kemur ekki fram hvaða offitudóp hún innbyrti, en slíkt mun vera mjög í tízku hjá frægu fólki, faraldur raunar. Auk þess er verið að innbyrða allskyns önnur efni líka.
Sífellt koma nýjar fréttir um hættulegar aukaverkanir af því sem fólk innbyrðir til að breyta útliti sínu. Það stöðvar ekki fólk, því hégómleikinn er í hæstu hæðum.
Sumir halda því fram að það sé hraði nútímans og stressið sem valdi offitunni. Einnig eru til fræðingar sem segja að það sé lygi og bull að offita drepi.
Það er merkilegt með gosdrykkina. Sprite er varla fáanlegt lengur nema með sætuefnum eða Fanta. Bragðið er ógeðslegt af þessu verksmiðjuskólpi. Það er verið að neyða fólk með góðu eða illu til að innbyrða sætuefnin tilbúnu, sem sumar rannsóknir hafa leitt í ljós að eru stórskaðleg.
Hversvegna eru kynþáttafordómar bannaðir en ekki fitufordómar?
Talandi um forræðishyggju kommúnista!
![]() |
Lést af völdum offitutengdra vandamála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég held að þegar dópisti í vímu slær til ráðherra sé bezt að láta málið niður falla. Allt bendir til að hann hafi ekki ætlað að skaða hana.
Miðað við alla þá óvinsemd sem svona áhrifafólk mætir þá verður þetta að teljast sakleysislegt atvik án þess að hægt sé að telja öfgastefnur sem ástæðu.
En ráðherrar í fjölmennum ríkjum gætu þurft að vera með lífverði. Líka á Norðurlöndum, víðar en í Svíþjóð er sakleysið að hverfa.
Norrænu löndin eru að færast í átt að bandaríska módelinu og sænska, þar sem átökin eru hörð og hroðalegir atburðir gerast.
Svíþjóð er fyrir mér ekki lengur Norðurland, heldur útibú frá Bandaríkjunum, eða Sádí Arabíu.
![]() |
Árásin líklega ekki vegna pólitískra hvata |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 9. júní 2024
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.7.): 2
- Sl. sólarhring: 89
- Sl. viku: 410
- Frá upphafi: 152358
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 291
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar