Hvar er María Sigrún Hilmarsdóttir sjónvarpsþula núna? Segir hún ekki fréttir lengur vegna Kveiksþáttarins?

Ég hef ekki séð Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur á skjánum að lesa fréttirnar síðan uppþotið varð nýlega, eftir að hún vék frá pólitískri línu sem fylgt er á RÚV og er til vinstri og þorði að gagnrýna Dag B. Eggertsson.

Þetta styður raunar algerlega það sem ýmsir bloggarar hér hafa ritað um, Páll Vilhjálmsson og Geir Ágústsson, að spilling mikil sé á RÚV og því verði reynt að gera henni lífið leitt og að hún fái síður verkefni á RÚV eftir þetta.

Mjög dapurlegt að þetta sé svona, að samsæriskenningar komi í ljós sem veruleiki.

Hún hefur venjulega verið þula að minnsta kosti einu sinni í viku, en langt er síðan hún hefur verið þula núna, og miklu meira en ein vika.

Það er mjög óréttlátt að fólki sé ekki launað fyrir góða vinnu, gagnrýnin vinnubrögð og að bregða út af vananum hjá stofnun sem fylgir of mikið einni pólitískri línu.

 


Guðir eru oft fjöldamorðingjar, jafnvel Guð almáttugur, ef við tökum því þannig að "Guð gefi og Guð taki", sé bæði valdur að dauðsföllum og fæðingum.

Í bókinni "Ljóshærða villidýrið" eftir Arthúr Björgvin Bollason sem kom út árið 1990 er þess getið að Adolf Hitler hafi verið tekinn í guðatölu af þýzkum sértrúarsöfnuði heiðnum sem beri heitið Gylfungar.

Mér finnst rök hníga til þess að það geti rétt verið. Það vita menn að guðum er þannig lýst að þeir gera ýmislegt sem mönnum leyfist ekki að gera, til dæmis að stunda framhjáhald.

Það er þó fráleitt að taka mann eins og Pútín í guðatölu, hann er enn aðeins stjórnmálamaður.

Nei, það sem gerir það að verkum að Hitler uppfyllir þessi skilyrði er að hann var og er verndari aríska kynstofnsins, og seinni heimsstyrjöldin klauf mannkynssöguna, var úrslitaatburður, aukning helstefnunnar eftir þá styrjöld hefur verið mun hraðari en áður.

Á hitt ber þó að líta að fjöldamorðingjar eru ekki afsakaðir nema rík ástæða sé til þess.

Ef menn líta á Jahve sem Djöfulinn, þá er rökrétt að líta á Hitler sem Frelsarann.

Í fréttunum í gærkvöldi var að á Gaza hafa Ísraelsmenn drepið svo marga að þeir hafa útrýmt ýmsum stórfjölskyldum Palestínumanna. Margir hafa fjallað um það hversu mikið þetta minnir á Helförina, sem gyðingar sjálfir lentu í.

Þannig er nú kenningin í sálfræðinni, um að þolendur ofbeldis verði oft og einatt ofbeldismenn sjálfir.


Fjórða Star-Trek myndin frá 1986.

"Ferðin heim" heitir fjórða Star-Trek myndin frá 1986. Hún er sennilega ein allra áhrifamesta kvikmynd sem gerð hefur verið til að styðja málstað hvalavina. Hún sló í gegn í kvikmyndahúsum og fékk mjög góða dóma gagnrýnenda.

Þessi kvikmynd á enn vel við. Boðskapur hennar er sígildur og tímalaus, boðskapurinn er gegn hroka vestrænnar menningar.

Söguþráðurinn er á þá leið að háþróaðir afkomendur hnúfubaka á öðrum hnöttum ógna tilvist allrar jarðarinnar. Jú, þetta kann að hljóma fjarstæðukennt, en aðeins fyrir fólk sem hefur ekki ímyndunarafl.

Fólk sem telur manninn á jörðinni miðju alheimsins getur ekki ímyndað sér að æðri form lífs finnist, og það er ömurlegur hroki.

Þessi kvikmynd gengur út frá því að hvalir séu vitsmunaverur, eða hefðu getað orðið enn meiri vitsmunaverur en mannkynið. Hvers vegna ekki? Þeir eru jú stærstu spendýr jarðarinnar.

Star-Trek myndirnar eru framtíðarsögur, og í þessari mynd verða Kirk skipherra og félagar að fara til ársins 1986 til að bjarga mannkyni framtíðarinnar, með því að finna hnúfubaki, sem í framtíðinni eru orðnir útdauðir, færa þá í umrædda framtíð til að svara ættingjum sínum sem koma á geimskipi til að athuga hvers vegna þeir eru hættir að svara þeim (orðnir útdauðir). Þeim tekst þetta og bjarga þannig mannkyni framtíðarinnar, jörðinni í framtíðinni.

Þetta er falleg og hjartnæm saga, og kona leikur eitt aðalhlutverkanna, og sú kona er stoltur fánaberi kvenréttinda og femínisma þess tíma, þannig að kvikmyndin tikkaði í öll box pólitískrar rétthugsunar þess tíma sem hún var gerð á, og gerir enn að mjög miklu leyti.

Enn er kvikmyndin mjög áhrifarík. Það er auðvitað hægt að deila um það hversu raunverulegur eða mögulegur söguþráðurinn er, en hann svínvirkar í kvikmyndinni, því hún hreyfir við tilfinningum jafnt sem ómeðvituðum ótta sem allir bera í brjósti sínu, og hreyfir við ævintýraþrá og margskonar slíku sem tilheyrir okkur mannfólkinu.

Ég er aðdáandi Star-Trek myndanna og þessi mynd er enn í uppáhaldi hjá mér. Með því að njóta þessarar myndar skil ég fullkomlega allt það fjölmarga fólk sem vill banna hvalveiðar. Eftir myndina er ég sammála, fer svo að efast.


Bloggfærslur 19. júní 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 68
  • Sl. sólarhring: 108
  • Sl. viku: 883
  • Frá upphafi: 120951

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 682
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 44

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband