Eru virkilega aðilar innan Sameinuðu þjóðanna sekir um aðild að svona árásum? Það virðist vera.

Sameinuðu þjóðirnar eru ekki saklaus engill og flekklaus samkvæmt þessu. Reyndar vissi ég það.

Þessi frétt staðfestir sögusagnir og samsæriskenningar sem eru skotnar niður sem uppspuni af mörgum.

Hér er að vísu talað um grun um tengsl við Hamas, en hann er þó greinilega svo vel rökstuddur að ýmsum starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna hefur verið sagt um vegna hans.

Þetta er stórfrétt, vel að merkja. Þetta sýnir fram á það hvernig heimspressan sem styður Palestínu, Gazabúa jafnvel frekar en Ísrael og Gyðinga, og þó ekki Hamas opinberlega hefur tengsl við öfgasamtök og þetta styður enn frekar samsæriskenningar um rammpólitíska meginstraumsfjölmiðla sem lítið eða ekkert mark sé á takandi.

Nú hafa margir hér á þessu bloggsvæði skrifað mikið um árásirnar 7. október sem hrintu af stað hrottalegum árásum Ísraelsmanna sem heimsbyggðin fordæmir.

Hér eru málin komin í alveg nýtt ljós. Ástæðan fyrir stríðinu kemur frá elítunni kannski, frá háttsettum embættismönnum jafnvel, eins og ástæðan fyrir Úkraínustríðinu, samkvæmt því sem ýmsir halda fram.

Þetta gerir konur og karla sem ráðast á Donald Trump og hans framboð með lögsóknum og haturstali ótrúverðugri, því Donald Trump hefur vissulega verið að gagnrýna svona alþjóðastofnanir sem fara með mikið vald. Er þeim mútað til þess og hver er pólitísk afstaða þeirra? Eru andstæðingar hans allt femínistar og aðrir Satanistar?

Það er kannski of snemmt að vera viss um að þetta sé alveg óvéfengjanlegt, en það má gera ráð fyrir því að þetta hefði verið þaggað niður ef ekki væru heimildirnar fyrir þessu býsna traustar.

Já, spillingin nær inní æðstu stofnanir, og það er mikilvægasta lexían í þessu.

 


mbl.is Starfsmenn SÞ grunaðir um aðild að árás Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. janúar 2024

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 114
  • Sl. viku: 655
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 520
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband