13.8.2023 | 10:12
Íslendingar alltaf fremstir í nýjungunum?
Nú hefur maður heyrt og lesið að þetta 5G kerfi skemmi ónæmiskerfið í fólki. Ein frænka mín hefur lengi verið á móti svona þráðlausum kerfum og slíkri tækni. Síðan keypti ég enska bók um geimverur nýlega og þar var stór kafli um þetta 5G kerfi og talið að geimverurnar nýti sér það til að ná stjórn á okkur mönnunum, auk þess sem það sé skaðlegt ónæmiskerfinu í fólki.
Íslendingar eru svo að segja algjörlega trúgjarnir þegar kemur að svona, og það vantar alla umræðu eins og til dæmis er í Bandaríkjunum um kosti og galla.
Talandi um geimverur og að þær séu að ná tökum á mannkyninu, þá finnst manni Íslendingar vera að hverfa af sínu eigin landi. Ég fór á Gaypride gönguna í gær og aldrei hefur yfirbragðið verið alþjóðlegra, enska jafnvel meira töluð en íslenzka í kringum mig af allskonar fólki frá mörgum þjóðernum.
Ekki var heldur hægt að merkja að neitt væri til í því sem vinstrisinnafjölmiðlar reyna að halda fram að bakslag hafi komið í þessi málefni, fjöldinn var slíkur.
![]() |
Fjölga 5G sendum um allt land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 13. ágúst 2023
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Með fækkun bónda og sauðkinda eru íslenzkir (ó)ráðamenn að ge...
- Eru dægurlög úrelt um málefni líðandi stundar sem eru orðin m...
- Til að losna við wókið þarf MJÖG mikla hægriritskoðun. Wókið ...
- Verða þínar vélar farnar? Ljóð frá 20. nóvember 2015.
- Það er nauðsynlegt að líta 30 ár til baka til að skilja breyt...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 106
- Sl. sólarhring: 112
- Sl. viku: 784
- Frá upphafi: 159007
Annað
- Innlit í dag: 61
- Innlit sl. viku: 541
- Gestir í dag: 55
- IP-tölur í dag: 54
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar