Nýju fötin keisarans, ráðstefna Evrópuráðsins

Ég fjallaði um það á mánudaginn að Evrópuráðið sem hingað mætir í næstu viku hefur ekki vald til að tryggja jarðarbúum öryggi, með því að láta stríðandi fylkingar í Úkraínu hætta að berjast í kringum stærsta kjarnorkuver Evrópu, og láta það hafa rafmagn í gegnum fleiri en eina varalínu.

Léleg og nánast engin viðbrögð við greininni, nema frá einum góðum manni sem hefur kristnina til að styrkja sig, þau sýna að þjóðin er á hræðilegum stað kúgunar, og heimsbyggðin öll. Ef allt væri eðlilegt væri almenningur á Vesturlöndum búinn að stöðva þetta stríð með mótmælum, búinn að fella allar ríkisstjórnir sem styðja Úkraínu, því þær ógna öryggi heimsbyggðarinnar með því að stigmagna stríðið.

Hversvegna eru þær fréttir mest áberandi sem fjalla um íþróttir og annað fánýti á meðan mikilvægustu málin eru hunzuð?

Ég er að segja að þótt stríð séu fyrirbæri úr fortíðinni og groddaraleg, þá verða að gilda í þeim leikreglur í samræmi við kjarnorkuöldina sem við lifum á og annað slíkt, bæði Pútín og Selenskí ættu að fara eftir þeim meginreglum að berjast annarsstaðar og tryggja öryggi á þessum svæðum þarsem kjarnorkuver eru. Það er algert forgangsmál, og þótt herforingjar og aðrir valdafíklar séu montnir af því að vera risaeðlur, þurfa risaeðlur stundum að læra og þroskast, verða betri, upp að einhverju marki, vonandi.

Maður spyr sig útaf þessu hversu fánýtt það er hjá Evrópusambandinu og öðrum alþjóðastofnunum að koma á alþjóðalögum sem eru ekki virt nema af sumum.

Yfirborðsmennskan, hræsnin og yfirvaldskúgun þessara þjóða sem hingað koma í næstu viku verður þannig til sýnis bókstaflega þá, eins og "Nýju fötin keisarans", en það er líkingamál yfir það sem opinberlega á að trúa á, en er í raun og veru innihaldslaust rugl, gegnsætt og ekki neitt, og almenningur veit það en viðurkennir ekki.

Þetta er allt orðið svo fáránlegt. Kvartað er yfir því að Donald Trump og hans fólk lifi í blekkingabúbblu og hliðarveruleika sem eigi sér enga stoð í annarra veruleika, og Pútín og hans fólk líka, en það sama á við um Evrópuráðið og þessa vestrænu valdafíkla, sem hingað koma til að hreykja sér hátt, en hafa ekki vald til að tryggja að þetta stríð endi ekki með gjöreyðingu, þetta fáránlega og hryllilega stríð sem Vesturlönd hófu 2014, og demókratar í Bandaríkjunum, Obamastjórnin, og fleiri, með staðgengilsstríðinu í Úkraínu, sem hefur nú stigmagnazt uppí þriðju heimsstyrjöldina, að margra áliti.

Ábyrgð Vesturlanda er slík í þessu að þessir leiðtogar geta ekki hunzað hana.

Hversu geðveikir og veruleikafirrtir verða einstaklingar í okkar heimshluta að vera til að trúa jafnaðarfasistunum sem eru við völd? Er hægt að gera öll Vesturlönd geðveik með stjórnendum eins og nú eru við völd og sem hlýða auðrónum? Já, greinilega, því miður.

Í því ljósi verður allt fáránlegt og öfugt. Í því ljósi verða geðsjúklingar trúverðugir en ekki yfirvöldin sem eru raunveruleikafirrt, og sem krefjast þess að fréttirnar séu þannig.

Hvar er virðuleikinn sem Evrópuráðið heimtar eða trúverðugleiki þess og hvernig getur það heimtað slíkt af okkur eða öðrum?

Hvort eru leiðtogar þess trúðar, fúlmenni eða hetjur?

Það er barnið sem þorir að segja að keisarinn sé nakinn. Allir sjá það, en þeir fullorðnu læra að leika í leikriti lyganna og prjálsins.

Geðsjúkdómar eru ruslakista fyrir það sem erfitt er að flokka. Það sem skilur að snillinga og geðsjúklinga er árangurinn, þeir fyrrnefndu ná árangri með geðveiki sinni en þeir síðarnefndu ekki. Þetta er skilgreining sem ég heyrði í einhverri bíómynd, en þetta er einhver alþýðufrasi sem er sannari og réttari en margt annað, og þetta lifir enn í vitund fólksins sem alþýðuvísindi.

Það var Geir Ágústsson sem skrifaði um það nýlega að þeir sem kusu Hitler hafi ekki verið geðveikir heldur venjulegt fólk. Hvað má þá segja um almenning sem trúir Evrópuráðinu og öðrum alþjóðastofnunum sem verða sífellt fátækari af völdum og trúverðugleika í augum fólks?

Það er eitt sem vantar inní þá umræðu. Heilt þjóðfélag getur vissulega orðið geðveikt. Dr. Helgi Pjeturss skrifaði um að þjóðfélög líktust líkömum, ein hugsun, ein samstilling, og hann líkti stríðum við flensur eða aðrar pestir sem ganga yfir og geta þó dregið sjúklinginn til dauða í einhverjum tilfellum.

Þegar jafnaðarfasistar nútímans missa völdin og trúverðugleikann í einu máli, einsog þessum stríðsrekstri, þá verður almenningur að hugsa önnur mál út til enda, fatta að lygar og blekkingar umvefja aðra málaflokka og opinberar skilgreiningar sennilega og viðurkenndar, bæði í vísindum, menningu og listum, og allskonar greinum.

Þetta er sérlega áberandi í sambandi við launin sem fólk fær eða bæturnar, eða hversu hátt vinna fólks er verðlögð, eða leti fólks og vinnuleysi eða óvinnufærni.

Sagt er að bankastjórar fái ofurlaun því þeir beri svo mikla ábyrgð. En það má aldrei gleymast að þegar sérfræðingar ofurlaunaðir urðu uppvísir að blekkingaáróðri gjörsamlega innantómum fyrir Hrunið 2008, þá létu þeir sig hverfa, fóru til útlanda eða í lítt áberandi störf. Hvar var þá ábyrgð þessara hámenntuðu og virðulegu einstaklinga sem kröfðust virðingar og að trúað væri því sem þeir (og þær) sögðu?

Nei, við megum aldrei gleyma því að launum er ranglega skipt. Það er fullkomin þvæla að sumir beri meiri ábyrgð en aðrir fyrst svona er í pottinn búið. Jú, fólk ber mismunandi mikla ábyrgð, en kannski bera einhverjir meiri ábyrgð sem ekki hafa völd, sem fá ekki nægileg laun, og ættu að vera ríkir í stað arðræningjanna, svo maður noti nú gamla og góða orðalagið sem kommarnir notuðu, á meðan þeir voru sæmilega heiðarlegir og venjulegir, miðað við allt.

Eina afsökunin er sú að við lifum í alþjóðlegu kerfi, og viljum herma eftir því sem gerist á öðrum Vesturlöndum.

Ráðstefna Evrópuráðsins mun snúast um að hylla Danakonung (elítuna í Evrópu og aðra demókrata), svo notað sé orðalag úr fortíðinni, og reyna að skrímslavæða Pútín og aðra Rússa enn meira.

Arnar Loftsson hefur skrifað um fjölpóla heim. Það þýðir í raun að Vesturlönd eru bæði að missa völd og trúverðugleika.

Þessir leiðtogar sem koma í Hörpu í næstu viku eru farnir að minna á skrípakarla og skrípakvendi, eða leikbrúður fyrir drengi og telpur. Þetta er allt eitt stórt leikrit, nema sífellt færri fylgjast með og hafa gaman að því. Vesturlönd eru að skreppa saman og tapa. Mannfækkunin er slík að öllu er haldið gangandi með innfluttu vinnuafli.

Á mannamáli væri það orðað þannig að Vesturlönd séu hrunin, og minni á Rómarveldi þegar það var alveg við það að liðast í sundur, úrkynjað í drasl og á valdi villimanna.

Það þarf nú enga snillinga til að fatta þetta.

Er það ekki bara tímaspursmál hvenær koma fram flokkar á Íslandi og annarsstaðar sem fá feykilegt fylgi og rústa flokkum sem nú eru við völd? Enginn veit hvort þeir verða langt til hægri eða vinstri eða annarsstaðar á stjórnmálalitrófinu.

Ef almenningur á Vesturlöndum vill ekki slíkar byltingar og stendur með þessum jafnaðarhugsjónum sem Rúv er uppfullt af í raun verður að krefjast þess að öryggi kjarnorkuvera á heimsvísu sé tryggt, og að spilltar leppstjórnir eins og í Úkraínu raski ekki heimsfriðinum og öryggi jarðarbúa í framtíðinni, svo nokkuð sé nefnt sem skiptir miklu meira en íþróttir og annað fánýti sem er mest í fréttunum þessa dagana.

Annað sem ekki má gleymast eða týnast í fánýti.

Á þriðjudaginn, 9. maí 2023 birti DV þessa grein á vef sínum: "Lætur "góða fólkið" og innflytjendur heyra það - "Ísland skuldar 0kkur ekkert. Það eru forréttindi en ekki réttur að fá að búa hér".

Vitnað er í grein í Morgunblaðinu eftir Rajan Parrikar, upphaflega frá Goa í Indlandi, en er nú búsettur á Íslandi. Hann lýsir því hvernig vinstriflokkarnir stunda pólitík sem ekki er sjálfbær, nokkuð sem Ásmundur Friðriksson og miklu fleiri hafa fjallað um, en mest lent í mótvindi og deilum við Pírata og fleiri háværa sem fordæma hefðbundin sjónarmið.

En það sem er stórmerkilegt er að 65 hafa komið með athugasemdir við DV greinina og langflestir eru SAMMÁLA Rajan Parrikar en ekki ósammála. Nú mætti spyrja sig hvort tími Íslenzku þjóðfylkingarinnar sé upp runninn og tími Frelsisflokksins?

Er nú almenningur að vakna um þessi mál, þannig að ekki gerist það sama og gerðist í Svíþjóð, allt fullt af gettóum og óeirðum?

Ég hef tekið eftir því að DV reynir að fela fréttina, setur hana mjög neðarlega, en þar er ekki lokað fyrir athugasemdir, en þannig eru viðbrögð þeirra oft þegar almenningur stendur með femínismaforingjunum þeirra.

Ég spyr enn, er tími Íslenzku þjóðfylkingarinnar loksins kominn og tími Frelsisflokksins? Hvað er að gerast í grasrótinni?


mbl.is Óvænt í stóru hlutverki á leiðtogafundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. maí 2023

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 50
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 647
  • Frá upphafi: 159060

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 466
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband