Lukku Láki og Hin fjögur frćknu - samanburđur á ţróun gćđa

Eitt eiga bćkurnar um Lukku Láka og Hin fjögur frćknu sameiginlegt, margir telja ađ beztu bćkurnar hafi komiđ fyrst, gćđum svo fariđ hnignandi. Ein bezta Lukku Láka bókin er "Allt í sóma í Oklahóma", sem gefin var út 1958 í Frakklandi en 1977 á Íslandi. Ţar er mannlegt eđli útskýrt á fyndinn en raunsannan hátt og örlög mannsins í heiminum á međan allir eru ofurseldir syndinni og löstunum.

"Rangláti dómarinn", sem einnig kom út 1958 á frönsku en svo 1979 á íslenzku er einnig ein albezta bókin í flokknum, en segja má ađ Evrópusambandiđ, Bandaríkin, Rússland og flestar eđa allar valdasamsteypur noti ađferđir Hróa baunadómara í Villta Westrinu ađ einhverju leyti, ţađ er ađ segja óheiđarleika af einhverju tagi. Bókin er hinsvegar mun fyndnari en veruleikinn, ţví Hrói í bókinni svífst einskis og er holdgervingur lasta og synda, alveg ţar til hann gerist góđmenni og hlýđir Lukku Láka undir lok bókarinnar.

"Karlarígur í Kveinabćli" kom út 1961 á frönsku en 1978 á íslenzku. Einnig hún er mjög góđ. Ţar er mannlegu eđli lýst sérlega vel og tilgangsleysi stríđa, hversu sorgleg sóun ţau eru á mannslífum, auđćfum, tíma og hverju sem er.

Bókin "Fúlspít á Fúlalćk" er ókomin út á íslenzku, en kom út 1959 á frönsku. Hún er frekar umdeild vegna ţess ađ hún er raunsönn lýsing á lífinu í Mississippi á kúrekatímanum en ekki fegruđ lýsing, grimmilegir bardagar uppá líf og dauđa og háđiđ lendir á fólk af margvíslegum uppruna. Sagan er hinsvegar mjög spennandi og fyndin, og mjög lifandi frá upphafi til enda, vonandi ađ hún verđi gefin út á íslenzku, hún er ein af perlunum í bókaflokknum, ekki miđjumođiđ sem kom síđar og hefur veriđ einkenni bókanna eftir 1965 ađ miklu leyti. Einmitt vegna ţess ađ bókin er umdeild er hún góđ, raunveruleg og spennandi, hrá og grimm, bókmenntaafrek en ekki slepja.

"Bláfótungar koma" frá 1956 er einnig góđ, eđa "Baráttan viđ bláfótunga", sem kom út 1983 á íslenzku, ađeins eftir Morris, en frá 1957 til 1977 ţegar Goscinny lézt voru allar bćkur eftir ţá saman.

Fyrstu bćkurnar eru einnig góđar, í ţeim er ekta ofbeldi ţótt teikningarnar séu frekar frumstćđar og Lukku Láki líkist Stjána bláa heldur mikiđ, en hann mun hafa veriđ einhver fyrirmynd ađ Lukku Láka, telja sumir bókmenntafrćđingar.

"Tuttugasta riddarasveitin" frá 1964, sem kom út 1977 á íslenzku er einnig góđ, ţar sem erfiđum ákvörđunum í stríđi er lýst vel.

"Hin fjögur frćknu og kappaksturinn mikli", sem kom út á frönsku 1969 en á íslenzku 1977 er talin međ beztu bókunum í ţeim flokki. Söguţráđurinn er flókinn, persónugalleríiđ er mjög auđugt, og ţar kemur Jói nćturgali fram, sú stórskemmtilega persóna. Hann er poppstjarna en međ svo gríđarlega margar grúpppíur á hćlunum sem elta hann hvert sem er ađ honum tekst aldrei ađ klára neitt sem hann tekur sér fyrir hendur í kappakstrinum.

Síđustu bćkurnar um Hin fjögur frćknu finnst mér einnig međ ţeim beztu. Bókin "Hin fjögur frćknu og Tasmaníuúlfurinn" frá 2003 var gerđ af François Craenhals einum, og ţar eru gerđar tilraunir međ meira lifandi persónulýsingar, í teikningum, og söguţráđurinn er harkalegri.

Snilldarverkin eru fleiri. Bókin "Hin fjögur frćknu og stóridómur", sem kom út 2004 er gríđarleg ádeila á trúarbrögđin og ţeim lýst sem blekkingaleik. Sú bók kom út sama ár og teiknarinn lézt, 2004, François Craenhals, en hann gerđi handritiđ en Jacques Debruyne teiknađi.

Áriđ 1993 kom út bókin "Hin fjögur frćknu og geimverurnar", en ţar er geimverum vel lýst, og hvernig ţćr taka yfir veruleikann samkvćmt lýsingum, stjórna tímanum og birtast í dulargervum sem einhver sem fólk ţekkir, og allt verđur ađ ofskynjunum, eđa ţannig má túlka bókina, og ţađ er í samrćmi viđ margar sögur sem um ţćr hafa veriđ sagđar. Ţessi bók er sérlega góđ einnig.

Síđasta bókin "Söguljóđiđ um Hin fjögur frćknu", sem kom út 2007, eftir Sergio Salma og Alain Maury ţykir einnig sérlega góđ, raunsönn en ekki eins ćvintýraleg og hinar bćkurnar.

Annars eru veikleikar ţessara bóka augljósir. Ţćr virđast stílađar inná unga lesendur, ţannig ađ ţótt ţćr séu vel teiknađar eru sögurnar yfirleitt mjög léttvćgar, međ ţessum undantekningum, og jafnvel fleiri, ţađ er smekksatriđi.

En ţannig er ţetta međ góđa og vonda list. Ţau fyrirbćri skarast, og gott er ađ ekki eru allir sammála um ţetta.


Bloggfćrslur 8. febrúar 2023

Um bloggiđ

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Fćrsluflokkar

Sept. 2025
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 59
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 656
  • Frá upphafi: 159069

Annađ

  • Innlit í dag: 50
  • Innlit sl. viku: 473
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband