Loka klappa helzt, ljóð, 16. maí 2022.

Valdhygli, sérgæzka, vörn þeirra smáu,

veröldin, mannfólk og þjóðin sem ann.

Stéttir berjast, leyfa lygð,

Loka klappa helzt.

Komast áfram ei þeir háu?

Aðeins svívirt bragð af lágu?

Skárri heima skyldur sáu,

skratti í heim þann velst.

Kemur að þeim stjarfi, styggð,

stundum finnur engan mann.

 

Ranglátir dómar og rökhyggjuskortur,

reynslan ei metin að verðleikum þar.

Öfund, minnimáttarkennd,

mannýg grimmdarnaut.

Ætíð nær á toppinn tortur,

treindur burtu sérhver þortur.

Áður varð af ást hver snortur,

allt hið bezta þraut.

Ókind sú var ekki tennd,

aldrei finnur réttlátt svar.

 

Önnur er vitundin, eigendur manna

upp þeir nú líta ei stjarnanna til.

Femínistum fjarstýrt enn,

fæstir skilja það.

Þurfa gæði og gæzku að banna,

guðdóm ekki lengur kanna,

hverfur loks í fáleik fanna,

finnur engan stað.

Falla í villur maðkar, menn?

Mengun flónsku varla skil.

 

Orðskýringar: Tortur, eitthvað stutt, lítið, eða lítilsigld mannvera. Þortur: Kjarkur, þor, áræðni. Snortur: Sá sem verður fyrir áhrifum. Hrifnæmur einstaklingur.

 


Mannkynið flýtur ekki lengur sofandi að feigðarósi, það útrýmir sér á fullri ferð.

Flestu fólki er alveg skítsama þótt það mengi jörðina í hel. Málamyndaaðgerðir vinstrimanna virðast ekki ætla að duga, því plastframleiðslan eykst, meðalhitinn heldur áfram að hækka, og þannig mætti lengi telja. Þessvegna ER ALLT MANNÚÐARTAL OG MANNRÉTTINDATAL HRÆSNI, UPPGERÐ OG EKKERT ANNAÐ. Aðeins fífl viðurkenna þetta ekki.

Viðbrögð fólks við umhverfisvánni sannar að fólk er gjörsamlega samvizkulaust. Sama hegðun og að ofsækja gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni, sama hegðun og að byggja kjarnorkuver, menga jörðina með útblæstri og skella ábyrgðinni á komandi kynslóðir.

Það hversu máttlausar aðgerðir jafnaðarmanna og vinstrimanna eru sýnir og sannar að fyrir þeim vakir einungis dyggðaflöggun. Því er ekki hægt að taka svonefnda samúð þeirra alvarlega í mannréttindaefnum.

Mannúðarhræsnarar eru í grunninn sama manntegund og ofsótti gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni. Það var nefnilega í tízku að telja aríska kynstofninn æðstan um það leyti, og réttlæta ofsóknir á öðrum, einsog mengun er nú réttlætt af mörgum, alveg eins og það er í tízku nú að vera á öndverðum meiði við Hitler í þeim efnum og vilja kalla aðra hægriöfgamenn.

Hvort haglél af þessu tagi flokkast undir að spádómar rætist, það kann vel að vera, en mörg eru teiknin sem segja að hamfarahlýnun verði að taka alvarlega.

Núna þegar hamfarahlýnunin verður barni að bana fara kannski sumir að taka þetta meira alvarlega, vonandi. Slæmt er að slíka atburði þurfi til þess, og þeir duga þó varla til, enn heldur mengunin áfram að aukast.


mbl.is Risavaxið hagl varð ungbarni að bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. september 2022

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 33
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 562
  • Frá upphafi: 159102

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 404
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband