Rússland er ekki fallið enn, þótt gagnsókn Úkraínuhers hafi gengið í austri

Azov hermennirnir úkraínsku aðhyllast öfgaþjóðernishyggju, nazisma jafnvel og eru ekki venjulegir og værukærir nútímaletihaugar sem vilja frekar horfa á sjónvarp en að berjast. Nazisminn er í raun ósigrandi og það er mikil þjóðsaga að Bandamenn hafi sigrað hann í seinni heimsstyrjöldinni. Kvenréttindi og annað slíkt hefur lagt Vesturlönd í rúst eftir seinna stríð og grafið undan lífi germanskra einstaklinga, og hugmyndafræði "norræna módelsins" sem Jón Baldvin trúir enn á er löngu orðin að sama öskuhaug sögunnar og kommúnisminn.

Vestræn mjúkhyggja, kvenleiki og værukærð hafa grafið innviði Rússlands í sundur og gert hermenn þess lélega.

"Rússar svara gagnsókn Úkraínu með árás á innviði", er fyrirsögn á frétt á Fréttablaðinu frá 16. september síðastliðnum. Einnig leikur grunur á því að Rússar geri árásir nálægt kjarnorkuverum annaðhvort til að valda viljandi stórslysi eða ýta af stað orkukreppu með því að þeim kjarnorkuverum þurfi að loka.

Árangurinn af gríðarlegum vopnasendum til Úkraínumanna eru meðal annars þær að í stað þess að sprengja kjarnorkusprengju með tilheyrandi hryllingi eru Rússar að gera leik að því að kjarnorkuslys verði fyrir slysni, næstum því, með því að gera árásir nærri þessum kjarnorkuverum, ellegar þá að þetta séu falsfréttir og Úkraínumenn geri árásirnar, eins og Rússar halda fram. Hvernig sem það er þá eru þessar árásir nálægt öllum kjarnorkuverum brjálæði og fásinna, fordæmanlegar gjörsamlega og ætti að hafa alþjóðalög yfir slíkt. En í svona styrjöld ná jafnvel ekki alþjóðalög yfir það sem gerist, Rússland er of stórt til þess og voldugt, sem sýnir enn fram á tap hugmyndafræði eftirstríðsáranna í Evrópu, ESB, NATÓ, Sameinuðu þjóðanna, það tókst ekki að forða styrjöld af þessu tagi í Evrópu þótt allt væri gert til þess og ESB stofnað í þeim tilgangi sérstaklega.

Þetta mikla stríð hefur kostað gríðarlega fjármuni og mannslíf. Það hefur gert Selensky Úkraínuforseta, þennan mikla grínleikara, að einni mestu sjónvarpshetju Vesturlanda, andlit hans er stöðugt á skjánum eins og hann sé hinn nýi Winston Churchill. Á bakvið hann falla landar hans stöðugt í þessu blóðuga stríði og flóttamannastraumurinn þyngist til annarra landa.

Það er ekki hægt að segja að Vladimir Pútín hafi rangt fyrir sér þegar hann segir að Selensky sé strengjabrúða Vesturlanda og allt sé þetta staðgengilsstríð. Þetta er blóðugur leikþáttur og raunveruleikasjónvarp til að stýra stjórnmálaskoðunum og skapa samúð og andúð eftir hentugleika.

Hverskonar hræsni er það í vestrænum stjórnmálaskýrendum og fræðimönnum að fordæma nazismann almennt, en standa með Úkraínu sem notast við Azov-herdeildina þar sem þessi hugmyndafræði er drifkrafturinn og styrkleikinn sem er vestræn ríki reiða sig á?

Þetta er aðeins eitt af fjölmörgu sem sýnir að vestræn heimsmynd eftir 1945 byggist á lygi og blekkingum, og söguskoðunin eins og hún leggur sig, enda er sagan alltaf skrifuð af sigurvegurunum.

Jafnvel þótt Úkraína myndi vinna aftur allt sitt land og jafnvel þótt Pútín yrði að segja af sér vegna stjórnarbyltingar í Rússlandi útaf þessu, þá eru Vesturlönd jafn töpuð sem fyrr, og femínisminn jafn eyðileggjandi hugmyndafræði, verri en nazismi, rasismi, fasismi, hvaðeina.

 


mbl.is Skelfileg skipulagning orðið Rússum að falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skírnin

Eins og margir vita merkir orðið skírn hreinsun. Jafnvel enska orðið baptism þýðir skírsla og hreinsun. Það er dregið af gríska orðinu baptismos sem þýðir helgisiðahreinsun, af baptizein, sökkva, dýfa, kaffæra, skíra, og baptizo, dýfa í vökva. Baptizo er talið dregið af indóevrópsku sögninni guabh, dýfa. Gríska orðið getur þýtt að fara í kaf, farast, eyðast, (drukknun manneskju eða sökkvun skips), að vera yfirtekinn af, og upprunalega ekki notað í trúarlegum tilgangi.

Guðfræðingar útskýra skírnina oft sem athöfn til að hreinsa barnið eða þann fullorðna sem skírist frá syndugum og óhreinum anda, heiðnum. Það er svo oft ekki útskýrt nánar hvaða andi það er sem verið er að hreinsa af, eða reyna að gera það.

Skírnin á sér sennilega fyrirmynd og upphaf í heiðnum athöfnum, manndómsvígslum.   Það sem bendir sérstaklega til þess er hversu rótgróin sú hugmynd er í heiðnum trúarbrögðum að með sársaukanum komi gróði eða verðlaun, það sem eftir var sózt.

En það sem mér finnst augljóst er að tilgangurinn með skírninni í öllum tilfellum hlýtur að vera að losa barnið eða þann fullorðna sem skírist við eigingirnina. Þetta er ekki nógu skýrt útskýrt á þennan veg af guðfræðingum, því það er svo innihaldslaus og fordómafullur frasi að segja að skírnin eigi að hreinsa börn eða fullorðna undan heiðnum anda. Þar með er verið að segja að öll börn fæðist heiðin en ekki kristin, og gefið í skyn að skaparinn sé heiðinn frekar en guð kristninnar.

Eina skýringin á skírninni sem virkar er að hún eigi að frelsa undan eigingirninni, nokkuð sem hún gerir aldrei, miðað við að nútíminn er troðfullur og stútfullur af eigingirni sem aldrei fyrr.

Fólk var gott í gamla daga vegna þess að það ólst upp við erfiðar aðstæður. Það er ein af stóru blekkingunum í nútímanum að mótlæti herði hvorki né bæti, heldur eigi að forðast allt mótlæti í uppeldinu.

Það eru aðeins foreldrarnir sem geta beitt réttum aga og tyftun, með hæfilegri ástúð í bland. Áfangaheimi og meðferðarstofnanir sem nú er svo mikið fjallað um í fréttum þar sem ofbeldi var viðvarandi vandamál eru allt saman kommúnískar stofnanir. Þar var kuldi en ekki ástúð, og það var vandamálið. Agi og tyftun verða aðeins til bóta þar sem hvatning og ástúð eru með í uppeldisaðferðunum.

Þakklæti á fullorðinsárum verður til þegar börnum er kennt að lífið er ekki dans á rósum og að nauðsynlegt er að fyllast af þakklæti. Ég þekkti mann sem var mikið karlrembusvín og ég nefni hann ekki á nafn, en hann var reiður útí allt og alla og taldi alla skulda sér eitthvað, og lét reiðina bitna á sínum nánustu, eiginkonunni og fleirum.

Femínistar eru fullir af þessum sama reiðianda í raun, það er þessi tilfinning að vera fullur af sjálfsvorkunn, telja aðra hafa farið illa með sig, sem oft er ýkt skynjun og tilfinning.

Í raun er þetta spurning um að telja sér trú um eitthvað með sjálfsefjun, eða aðrir telja manni trú um eitthvað í pólitískum tilgangi.

Konum var kennt að gera uppreisn gegn feðraveldinu til að kommúnistar og jafnaðarmenn kæmust til valda, hinir sönnu arðræningjar.

Hamingjan er hugarástand og sjálfsefjun.

Ég fer kannski betur útí þetta seinna.

 


Bloggfærslur 20. september 2022

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 33
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 562
  • Frá upphafi: 159102

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 404
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband