Það hvernig fólk í háum stöðum svarar á staðlaðan hátt hljómar nú aðeins eins og trúarjátningin á Bill Gates - fráleitt sem vísindi

Eins og flestir vita er Guðrún Aspelund verðandi sóttvarnalæknir landsins. Hún var í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í vikunni. Hún var spurð um apabóluna og hvort þörf væri á hörðum aðgerðum innanlands. Ekki taldi hún vera svo enn að minnsta kosti, en að vel væri fylgzt með þróuninni.

En það sem mér fannst athygliverðast í viðtalinu var þegar sjónvarpskonan spurði hana hversvegna heimsfarsóttir væru orðnar svona tíðar, að apabólan skuli fylgja í kjölfar Covid-19, og Tedros hjá WHO lýsir yfir hæsta viðbúnaðarstigi útaf báðum sóttunum.

Svarið hjá henni var að það væri vegna hamfarahlýnunar og af mannavöldum, að hækkandi hitastig ylli því, ásamt nánari snertingu við dýr, loftslagsbreytingar, eyðingu skóga og svo framvegis.

Eitthvað fannst mér þetta svar staðlað, lært og ótrúverðugt, og ákvað að skrifa um þetta til að vekja upp spurningar hjá fólki.

Af hverju núna á örfáum árum frá 2020 ættu þessir þættir skyndilega að breyta öllu, þegar þeir hafa verið til staðar lengi, og breyzt smám saman? Þessir þættir hafa smám saman verið að breytast og versna á 50 - 80 árum, og enn lengri tíma raunar, en ekki á þremur árum eftir 2019, eins og fréttakonan áttaði sig á. Vantar ekki eitthvað inní þessar skýringar?

Frú Aspelund smeygði sér fimlega frá því sem lá í spurningu fréttakonunnar, hvort þessar pestir kæmu frá rannsóknarstofum, brjáluðum vísindamönnum og valdhöfum, sem vilja fækka mannkyninu, en vilja þó fækka hvítu fólki næstum einungis, því apabólan rétt eins og Covid-19 hefur herjað á Vesturlönd og Evrópu næstum aðallega. Nafn Bill Gates og félaga var ekki nefnt, en eins og með uppruna Covid-19 verður hans aðkoma sennilega aldrei sönnuð, þetta fólk er of lúmskt og klókt til þess og kann að fela sporin sín þannig að afbrotin verði aldrei sönnuð, enda sennilega aldrei lagt útí þá herferð að útrýma mannkyninu án þess.

Þannig heldur þetta áfram hjá Guðrúnu Aspelund eins og öðru fólki sem hefur fengið starfsframa sinn frá peningaöflunum og útskrifazt úr skólum. Það viðurkennir ekki nema það sem leyft er að blekkja almenning með.

 


Bloggfærslur 28. júlí 2022

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 436
  • Frá upphafi: 159104

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 299
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband