Færsluflokkur: Pepsi-deildin
17.10.2021 | 17:00
Íslandsmeistaratitill sem gleður
Leikmaðurinn er sennilega að vitna í átakanlegar fréttir úr KSÍ, að missa forystu sem var elskuð og vel liðin af flestum, og leikmenn, vegna Öfga og Bleika fílsins og þeirrar sögu sem allir þekkja.
Þessi Íslandsmeistaratitill er mjög ljúfur í því mikla umróti sem leikið hefur um Knattspyrnuhreyfinguna útaf kvenréttindabaráttunni margnefndu, sem orðin er eitthvað undarlegt fyrirbæri á stundum.
Þetta er tilfinningaþrungið viðtal við Halldór, sem leikur fyrir Víkinga. Frábær sigur hjá þeim.
Svo vikið sé að annarri merkilegri frétt í sambandi við víkinga almennt í sögulegu samhengi, þá kom stórmerkileg frétt í vikunni á RÚV um að fundizt hefði víkingaskip, þar sem fornmenn úr heiðni voru grafnir. Staðfestir það sögurnar um að þeir hafi viljað sigla inní framlífið og vera grafnir eða brenndir á hafi úti með öllum sínum eigum, og trúðu að allar eigur þeirra færu með þeim í Valhöll. Stórmerkilegt.
En nú er það spurning, mun Vanda Sig vanda sig? Vafalaust. Mun einhver hópur vanda sig í að fella hana og mæðraveldið eins og reynt er að gera við feðraveldið?
Hræðilegasta vika lífs míns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það er greinilegt að vopnin eru farin að snúast gegn femínistunum sjálfum loksins, og þetta er enn eitt dæmið um það hvernig almenningsálitið getur sveiflazt, eða sviptivindar í þjóðfélaginu. Einhver fólska varð þess valdandi að fáir höfðu kjark til að mótmæla Bleika fílnum og Öfgum, eitthvað fáránlegt kúgunarástand í þjóðfélaginu þar sem dómgreind margra hvarf, og víða, hjá alltof mörgum er hún ekki mætt á svæðið ennþá.
Nú segir árásarmaðurinn: "Þetta fólk hefur starfað af heilindum og ósérhlífni fyrir knattspyrnuhreyfinguna, flest í áratugi". Já, tímabært að iðast, en fráleitt að allir femínistar geri það, ef nokkrir.
En árangurinn er augljós, búið er að skemma fyrir árangri strákanna á næstunni, og hver veit hversu lengi sá skaði mun vara.
Sendi fráfarandi stjórn KSÍ afsökunarbeiðni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2021 | 06:37
Þolendur, gerendur?
Litlir sem engir möguleikar að komast á lokakeppni HM 2022 samkvæmt spá Gracenote tölfræðisíðunnar. Svona er hægt að fara með öll svið þjóðfélagsins. Hverjum dettur í hug að hræðast stelpuskjátur sem kalla sig Bleika fílinn eða Öfga? Síðan hvenær eru ungir og óreyndir stjórnmálamenn teknir fram yfir gamla og miðaldra stjórnmálamenn með þekkingu og reynslu?
Síðan hvenær eru stjórnmálin orðin fegurðarsamkeppni? Börn á ráðherrastóli segja sumir, en afrek þessarar ríkistjórnar felast aðallega í því að hafa hlýtt fagmönnum og að Bjarni Benediktsson er mjög fær sem fjármálaráðherra. Aðrir ráðherrar hafa verið gagnrýniverðari í störfum sínum og sumir afleitir algjörlega, og fleiri afleitir en virðist í fyrstu.
Fegurðin og æska eiga að vera þar sem slíkt er til bóta en reynsla og þroski þar sem þörf er á slíkum eiginleikum, í stjórnsýslu, menningu og þar sem útlit er ekki aðalatriðið.
Hafa enga trú á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 24
- Sl. sólarhring: 73
- Sl. viku: 599
- Frá upphafi: 132930
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 435
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar