Færsluflokkur: Bloggar

Þar sem námið þrengir víddir, ljóð frá 8. september 1991.

Þar sem námið þrengir víddir

þykir mér svo létt að gleyma.

Auðvelt það ei,

önnur finnst mey.

Frímínútur, fann loks nýja,

finnst sem birtan heiminn lagi.

Ertu alltaf heima?

Einhver loks mér sinnir?

Fríðleiks fantasíddir...

frá þér kemur hlýja.

Eins og upp það dagi,

ertu að skilja? - Góðir vinur músum brynnir!

 

Elska ég nú aðra píu?

Ekki gleymi minni réttu.

Hefurðu hal

heima í sal?

Veit um þrjár sem heilla hugann,

Herdís gleymist, vil þær líka...

Farga mér í fléttu?

Ferðu að skilja dama?

Elska enn að nýju?

ekki virkar smugan...

Þarf ég þessa, ríka?

þörfin gerir stúlku í eigin sálum grama.

 

Hún er skrokkur skyldu minnar,

skaltu trúa fjármagnslygum?

Finndu það fljóð,

fer hún ei góð.

Eins og systur áfram tala,

einhver líkist götuvita.

Dansinn stúlka stigum,

stjörf og brúðarkjóllinn...

Þarfir óskar þinnar,

þörf er nú að gala...

Bara tekur bita,

blómstrar ekki fyrr en kemur rétti hóllinn.


Sahra Wagenknecht og aðrir vinstrimenn sem taka upp stefnumál AfD og fleiri "hægriöfgaflokka". Þróun í allri Evrópu, á Íslandi líka, eins og sjá má á Samfylkingunni.

Ef skoðuð eru stefnumál og aðgerðir þess flokks sem kallaður er neikvæðum nöfnum á RÚV, AfD og þýzka nazistflokksins frá síðustu öld þá sést fljótlega að alrangt er að kalla þetta sömu flokkana eða náskylda. AfD er eins og lapþunnt soð af því eldheita kryddi sem skók Þýzkaland undir stjórn Foringjans.

Hræðsluáróðurinn er þó alltaf samur við sig, enda óttinn við að missa völd alltaf næg átylla til að vera með hatur, lygar og blekkingar í garð andstæðingsins.

Það þykir mér þó tíðindum sæta þegar Þjóðverjar eru farnir að sætta sig við fortíð sína í æ meira mæli eins og loksins maður fer að trúa.

Tekið var viðtal við konur sem töluðu í Þýzkalandi, og fréttin kom á RÚV, og ég held að þær styðji AfD, en þær voru mjög ákveðnar í því að Þjóðverjum hefði verið gert rangt til í heiminum eftir seinni heimsstyrjöldina, og minnir þetta á Versalasamninginn á sínum tíma.

Sannleikurinn er sá að Þjóðverjar hafa verið kúgaðir og ofsóttir eftir seinni heimsstyrjöldina, af sömu pólitík og ræður innan ESB, og má því segja að þeir hafi alið skrímslið í sínum eigin garði.

Það eru stórtíðindi þegar kona eins og Sahra Wagenknecht glæðir sinn pólitíska feril lífi með svo afgerandi hætti að flokkur sem ber hennar eigið nafn skuli vera spáð allt að 20% fylgi, og á hann margt sameiginlegt með AfD, sem spáð er um 30% fylgi.

Þar með eru frelsandi sjálfstæðishugmyndir komnar með 50% fylgi í Þýzkalandi, en ekki þjóðernisrembingur eða kynþáttaofstopi neinn, þótt andstæðingarnir segi það. Auðvitað er þannig fólk líka með, en í minnihluta.

Það eru líka merkileg tíðindi þegar kona, sem ábyggilega á bakgrunn í femínískum hreyfingum, skuli sjá gróða og framtíð í nákvæmlega þessu, sem hefur verið svo hatað og ofsótt lengi í menningunni, eitthvað sem tengist þjóðernishyggju!

Já og Sahra Wagenknecht efast um þennan gífurlega stuðning við Úkraínu!

Þjóðverjar hlusta og láta heillast af stefnu hennar og málflutningi!

Já, kona sem eitt sinn var mikill vinstrisinni hefur svona snúizt á réttan veg! Þjóðverjum til gæfu!

Já, Sahra Wagenknecht var eitt sinn harður kommúnisti eins og lesa má um á Netinu!

Það er dálítið merkilegt að stofna flokk utan um sjálfa(n) sig og vera spáð þetta góðu fylgi!

Greinilegt er að þetta er það sem fólk vill!


mbl.is Nýr sáttmáli á milli Bretlands og Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um myndasögurnar um Konna kokk eftir mig

Gorró og félagar var fyrsti teiknimyndasöguflokkurinn sem ég bjó til. Fæstar hef ég lokið við, þó samt fáeinar.

Jói og félagar er sá teiknimyndasöguflokkur sem ég vann mest að sem unglingur, eða frá 1984 til 1989.

Forsíða, Konni kokkurKonni kokkur er einnig persóna eftir mig, sem var samsett úr mörgum fyrirmyndum.

Maggi spæjarameistari er svo enn eiTitilblaðn sería sem ég kláraði ekki, en ein bók hefur lengi verið í smíðum, sú fyrsta.

Annars langar mig að lýsa Konna kokk.

Hann er sambland úr Viggó viðutan og persónu sem Þorsteinn Eggertsson bjó til í laginu Konni kokkur sem Þorgeir Ástvaldsson og Magnús Ólafsson sungu árið 1983. Minn Konni kokkur er samsettur úr fleiri persónum. Nafnið á persónunni fékk ég þó úr laginu sem þeir félagarnir sungu.

"Ég er kokkur á kútter frá Sandi" söng Ragnar Bjarnason eitt sinn, "og fæ kjaftshögg hvern einasta dag." Minn Konni kokkur er þannig.

Auk þess verð ég að minnast á Cosper, í myndasögum Moggans. Talsvert af hugmyndafræðinni og myndunum er undir áhrifum frá honum. Ketilríður er í útliti og innræti eins og móðirin skapmikla og breiðleita.

Þær myndasögur eru eftir Danann Siegfried Cornerlius, sem var jazztónlistarmaður og myndskreytir.

Hér áður fyrr á 20. öldinni þótti það fyndið þegar konur voru sýndar ofbeldisfullar, því það þótti stríða gegn raunveruleImage 004ikanum sem var á þá leið að karlar fengju frítt spil að beita konur ofbeldi.

Því miður hef ég ekki lokið við mikið af þessu um Konna kokk. Ein bók var gerð 1988, en vinnubrögðin voru ekki alveg til sóma, ég vann hana of hratt, og var þá ákveðinn að leggja myndasögugerð á hilluna. Engu að síður koma saman í þeirri bók upp á 46 margar meginhugmyndirnar á bak við Konna kokk.

Forsíðu gerði ég að fyrstu bókinni árið 1984. Þá voru allar hugmyndirnar komnar, aðeins eftir að vinna úr þeim, sem ég nennti raunar ekki fyrr en 1988, og þá ekki með eins vönduðum hætti og ég áætlaði í upphafi.

Engu að síður er þetta bráðfyndin persóna.

Konni kokkur er rauðhærður en Viggó viðutan er dökkhærður. Báðir reykja þeir mikið og eru kæruleysislegir í útliti og framkomu. Báðir hafa áhuga á uppfinningum og sprengingar verða af þeim sökum reglulega.

Konni kokkur á ofbeldisfulla eiginkonu sem heitir Ketilrí3ður. Þótt skipstjóri berji hann reglulega vill hann frekar vera á sjónum, því hann hræðist eiginkonuna meira, hún lemur hann meira en skipstjórinn! Þannig að líf hans er ekkert sældarbrauð!

Húmorinn í bókunum um Konna kokk felst í því að hann lætur allt yfir sig ganga, er alltaf brosmildur, lærir aldrei af mistökunum, og þolir eilíft ofbeldi en heldur samt áfram að gera mistök og elda vondan mat og skaprauna fólki á allan annan hátt.

Viggó viðutan er ekki barinn svo mikið sjálfur, heldur lenda aðrir í skrifstofunni í vandræðum út af honum. Þó er það helzt Eyjólfur á skrifstofunni sem lemur Viggó stundum.

Þannig að þótt líkindi séu með Viggó viðutan og Konna kokki þá eru þeir ekki eins.

45Ég væri til í að aðrir gerðu nýjar bækur um þessa persónu mína. Mér finnst hún of góð til að fara til spillis, en ég nenni ekki lengur að sinna þessu, og aðrir teikna betur og gætu búið til brandara, fyllt bækur með þessum húmor.

Engu að síður er ég sá sem bjó til persónuna og aukapersónurnar, skeytti þessu saman úr allskonar áttum sem ég hef tiltekið hér.


Tónlistarmenn sem smækka aðdáendahópa sína með hjálp slaufunarmenningarinnar. Fífl aldarinnar.

Ég hef rekizt á bækur þar sem sagt er að popptónlist nútímans sé öll verk Satans. Allavega eina slíka bók á ég, fleiri jafnvel.

Mér er nóg að segja að fíflin í Abba, Bruce Springsteen og Neil Young eða álíka trúðar hafa stimplað sig út úr menningu og listum á sama hátt og þeir sem framleiða last en ekki list í dag og njóta hylli fjöldans sataníska.

Þetta er gott, þá gefst pláss til að endurvinna. Öll list hættir að vera höfundaréttavarin eftir 100 ár eða svo. Það mætti þó gerast fyrr, ef slaufunarmenningin nær að ráða og fá á sig nýjar myndir.

Tímarnir kalla á lagabreytingar, að tónlist og önnur list hætti að vera höfundaréttavarin þegar höfundar og flytjendur gera sig að trúðum með því að styðja sataníska menningu sem er í sjálfsmorðsleiðangri.

Þá er hægt að koma fram með nýja listamenn sem hafa fullt leyfi til að stela lögum og textum og gera að sínum, í þágu málstaðar sem ekki er óverjanlegur og satanískur.

Enda nennir enginn að hlusta á sömu tónlistina í 100 ár.

Slaufunarmenningin sýnir og sannar þetta. Hún er aðferð til að gera það hallærislegt og ógjaldgengt sem áður var dýrkað.

Ég er nú ekki lengur í nokkrum vafa um það að list fortíðarinnar verður grafin niður á sextugt dýpi.

Eitt sinn hélt ég að Bítlarnir væru sígildir, en ég held það ekki lengur, ekki eftir að slaufunarmenningin kom til sögunnar. Það skiptir ekki máli hvað listamenn hafa gert af sér eða ekki gert af sér. Það er aukaatriði.

Ungt fólk þarf frítt borð, autt borð, og leyfi.

Það eru gömul sannindi og ný að þótt hægt sé að búa til allskonar laglínur, þá er búið að semja allar laglínur sem eru melódískastar.

Þetta eitt og sér gerir það að verkum að ungt fólk þarf aðferðir til að ýta því til hliðar sem var gert áður.

Bubbi Morthens reið á vaðið, eða var með þeim fyrstu, með því að banna Útvarpi Sögu að spila lögin sín, á þeim forsendum að rasistar stjórnuðu þeirri stöð, að hans mati.

Nei, ungar kynslóðir sitja ekki fastar í fótsporum mömmu og pabba. Þannig var þetta kannski fyrir langa löngu, en við lifum á tímum kynslóðabilanna. Það þýðir úrelding á eldri gildum.

Ein slík gildi eru þau sem Abba, Celine Dion, Bruce Springsteen, Bubbi Morthens og Neil Young standa fyrir, ranghugmyndir jafnaðarstefnunnar, að vilja ekki sjá galla hennar.


mbl.is Skilaboð ABBA til Trumps: Ekki spila okkar tónlist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefðir eru heilagar. Venjur eru heilagar. Óskrifuð lög eru heilög.

Trúarbrögðin héldu fólki saman. Nú þegar trúarbrögðin eru á útleið þá eykst sundrungin í samfélaginu, sundurlyndið, ósamstillingin, og það veldur mörgum vandamálum.

Líforkan dvín eftir því sem sundrungin eykst. Ástin, kærleikurinn, jafnvel kynhvötin, þetta kallar allt á ákveðna samstillingu einstaklinganna sem myndar þjóðina.

Hegðun margra kvenna og femínisminn er sönnun fyrir því að geimverur hafi gert árás á jörðina og yfirtekið huga næstum allra á þessari jörð. Biblían segir til um undirgefni konunnar og önnur atriði sem hjálpa til við að skapa friðsamlegt samfélag, sem ekki er lengur til staðar á jörðinni.

Fólk sem hegðar sér þannig að það vinnur gegn sínum eigin hagsmunum, það er andsett samkvæmt því að hegðun hverrar tegundar og einstaklings ætti að stuðla að viðgangi og fjölgunar þeirra einstaklinga og tegundarinnar sem hann tilheyrir.

Þegar menn taka trúarbrögðin sem sönnun um landaafsöl eða pólitík í nútímanum er fólk farið að misskilja trúarritin. Hinsvegar er fullt af leiðbeiningum um mannlega hegðun sem eru gagnlegar í trúarritum, til dæmis Biblíunni.

Í DV er merkileg grein sem heitir:"Talibanar banna konum að lesa og syngja á almannafæri - "Siðgæðisforvarnir".

Þar undir eru athugasemdir þar sem fólk opinberar heimsku sína, fáfræði, fordóma gagnvart eingyðistrúarbrögðunum sem spruttu upp af trú gyðinga, Abrahamstrúarbrögðunum, og hefðum sem þeim hafa fylgt og mannkyninu eins langt aftur og hægt er að ímynda sér.

Ég ætla að hrekja sumt af því sem fólk segir þarna í athugasemdum. Ég gæti sett inn athugasemdir á DV, en leggst ekki svo lágt, þetta fólk er á of lágu stigi til þess, og það myndi hvort sem er aldrei læra neitt jákvætt af slíkum athugasemdum eða taka mark á þeim. Það er of langt gengið inní formyrkvun eigin huga, það er of langt í sjálfu sér og því víti sem er femínisminn.

Ein kona sem heitir Ragnhildur talar um Talibana sem fordekraða, og að þetta sé feðraveldi hjá þeim. Já, feðraveldi vissulega er Talibanastjórnin, en fordekraðir? Það er ekki svo víst.

Hún hefur ekki búið í Afganistan sjálf, geri ég ráð fyrir. Hún hefur enga samúð með fólkinu þarna eftir athugasemd hennar að dæma. Hún veit ekki að fátækt er þarna mikil og lífið erfitt.

Þess vegna finnst mér orð hennar "fordekraða feðraveldisafkvæma..." (hvað sem það þýðir, framhaldið er ekki rökrétt), ekki passa.

Almennt má segja þetta: Fólk er yfirleitt að lýsa sjálfu sér þegar það lýsir öðrum á þennan hátt.

Fyrsta athugasemdin er góð, enda fæstir henni sammála.

En ein algeng vitleysa sem ég hef oft heyrt kemur frá Margréti Sig:

"Eru ekki trúarbrögð heldur ofríki og heimska karla".

Þetta er að minnsta kosti rétt skrifuð setning, svo þessi kona kann íslenzku, en það verður sízt um alla sagt sem þarna skrifa athugasemdir, og Íslendingar ekki síður illa máli farnir en þeir sem bera útlend nöfn þarna.

Þvert á móti eru Talibanar þeir einu sem iðka trúna almennilega, ásamt fáeinum öðrum á þessari jarðarkringlu.

Heimskar eru allar þær konur sem aðhyllast femínisma, og allir karlar líka. Femínismi er bæði heimska og djöfuldómur, og ein versta uppfinning mannkynsins, ef hann kemur ekki beint frá Helvíti, sem mér finnst líklegra. Að berjast gegn femínisma með öllum ráðum er eitt það göfugasta sem maður getur tekið sér fyrir hendur, og það er konum fyrir beztu, og þannig sýnir maður ást á þeim, en ekki með meðvirkni með femínisma, aldrei þannig.

Gríp aftur niður í athugasemd Ragnhildar sem þarna skrifar.

Hún talar um þetta sem viðbjóð og að "grípa eigi inn"(í), og "stöðva þetta fordekraða feðraveldisafkvæma sumsé karla".

Setningin er brengluð hjá henni og þó ber hún alveg íslenzkt nafn.

En nú er rétt að brjóta hugsunina niður í búta hjá henni sem birtist í setningunni og skoða hvað sé raunhæft í því sem hún skrifar um.

Með því að "grípa inn í" á hún sennilega við hernaðaríhlutun, árás frá Bandaríkjunum eða eitthvað slíkt. Það var reynt, og svo fór Bandaríkjaher.

En að ráðast inn í fátækt ríki með yfirgangi, það lýsir svo sem ekki mikilli mannúð.

Enda er mannúðin yfirleitt tengd því að um sé að ræða börn eða bjargarlaust fólk sem ekki hefur svo mjög andstæða skoðun við "góða fólkið".

Steini Ö. Sigurdsson skrifar góða athugasemd:

"Enda eiga konur ekkert að vera að syngja né lesa... vera heima og þrífa, elda og hugsa um börnin og heimilið."

Íslendingar eiga varla nein heimili lengur. Heimilin eru fangelsi. Reglur umlykja líf okkar, þöggun, boð og bönn á alla vegu. Á Vesturlöndum eru líka börn að hverfa. Ekkert er lengur náttúrulegt við líf á Vesturlöndum, eða þannig fer þetta.

Það er svolítið skemmtileg athugasemdin frá Ágústu Ísleifsdóttur, og ég kann vel við þá athugasemd:

"Sem sagt konur eiga að taka ábyrgð á greddu karlmanna í Írak."

Hún er leiðrétt og sagt að um sé að ræða Afganistan, en það skiptir ekki öllu þótt hún ruglist á löndum.

Athugasemd hennar eru mótmæli við "góða fólkið" sem hneykslast á Talibönum.

Greddan er að hverfa á Vesturlöndum og sjúkdómar komnir í staðinn, enda allt fullt af bælingu og sjálfseyðingu. Í Afganistan er þó ennþá gredda til, eitthvað heilbrigt og eðlilegt, það er meira en sagt verður um Vesturlönd, heiminn sem elur af sér athugasemdir flestra þarna og víða annarsstaðar.

Sönnun þess að vinstrimenn eru andsetnir og jafnaðarfasistar felst í stríðinu í Úkraínu. Sönnun þess að geimverur hafa ráðizt á jörðina felst í því stríði einnig.

Eftirfarandi er sönnun þess:

Vestrænt fólk sem styður Úkraínumenn og hættir á kjarnorkuslys með því að vera með árásir nálægt kjarnorkuverum, það fólk hugsar ekki að mannslífum. Raunar má einnig segja það sama um Rússa sem auka hættu á kjarnorkustyrjöld eða kjarnorkuslysi, þeir Rússar eru geimverur eins og femínistar Vesturlanda sem styðja Úkraínu.

Samnefnarinn er einn: Kristin trú, eingyðistrúarbrögðin, Abrahamstrúarbrögðin.

Guð Biblíunnar hatar mannkynið, hann elskar það ekki, af þessu má sjá það og sanna.

Jahve, guð Biblíunnar lætur Ísraelsmenn og Palestínumenn berjast og drepa hverjir aðra. Er það kærleiksríkur guð? Nei.

Menn skilja ekki þessi stríð sem eru í gangi.

Ég á bók sem kom upphaflega út fyrir alllöngu, og þar er spáð heimsendi árið 2022.

Fæst fólk telur að hann hafi komið. En er það svo víst?

Er heimsendir tengdur við eitt ártal eða árin í kring?

Hættan á kjarnorkuslysi eða kjarnorkustyrjöld sýnir að HEIMSENDIR hefur sjaldan eða aldrei verið eins nærri mannkyninu og nú!!! Sem sagt, spádómur þessarar bókar hefur næstum því ræzt!!! Þetta eru hættutímar!

Þegar ég segi að slíkt fólk sé geimverur sem hegðar sér eins og það sé andsett, þá á ég við þetta, að því virðist ekki sjálfrátt, eins og framandi afl tali í gegnum það og láti það hegða sér þvert á það sem því er fyrir beztu, og tala þvert á það sem er skynsamlegt, öðrum eða því sjálfu fyrir beztu.

Hversu mikið sjáum við af sjálfskaðandi hegðun í nútímanum og allt undir merki frjálshyggju eða frelsis?

Sjálfskaði, það er hugtak sem þarf að víkka út og kanna hvað veldur. Hugtakið á við um miklu fleira en í fyrstu virðist.

Eiturlyf? Ofneyzla á hinu og þessu? Sjálfsmorð? Hatur á milli kynjanna? Umbreytingar á líkömum?

Þetta er of flókið og viðamikið til að það þjóni tilgangi að halda áfram. Ef lesendur eru sammála einhverju sem hér kemur fram geta þeir spunnið áfram í sínum eigin pistlum eða í sínum hugrenningum, eða reynt að lesa sér til um eitthvað af því sem hér kemur fram og mynda sér skoðanir í einhverja átt.

 


Breyttar aðstæður, dýrt fyrir þjóðarbúið að of margt fólk búi þar sem gýs og skelfur mikið, og hættusamt

Almennt séð má segja að forsjálni sé ekki ráðandi á þessu landi. Nú eru þessar breyttu aðstæður hvað varðar skjálftavirkni og gosvirkni á suðvesturhorninu. Málið er það að Reykjavíkursvæðið var byggt upp fullkomlega án þess að taka eitthvað svona með í reikninginn, það er að segja virknitímabili sem getur staðið í 200 ár eða meira. Hús eru hér byggð sterk, en þó má auðveldlega sjá fyrir að lagnir geti farið í sundur inni í húsum og í götum ýmsum, bæði raflagnir og vatnslagnir, og margt af þessu mjög komið til ára sinna og þarf viðhald.

Ég held að það sé alveg öruggt að manntjón verður, við vitum bara ekki hversu mikið. Það skynsamlegasta væri að færa höfuðborgina og þetta þéttbýli annaðhvort norðvestur eða þá austur á land. Það segir sig sjálft að sama hvernig reynt er að tjasla við þetta, fyrst allt er komið á hreyfingu verður þetta eilíf barátta við náttúruöflin á þessu svæði. Jafnvel þótt hægt sé að forða manntjóni að mestu leyti, þá mun slík barátta við náttúruöflin kosta þjóðarbúið mjög mikið, og það er heldur ekki skynsamlegt.

Ekki er hægt að breyta um stefnu í svona búsetumálum nema á löngum tíma. En það þarf að ræða alvarlega um þetta og taka stefnumótandi ákvarðanir um dreifingu byggðarinnar, og að byggja upp dreifbýlli svæði á landinu kerfisbundið, og styðja dreifbyggðina miklu meira.


mbl.is Skjálftinn reyndist stærri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágætt Silfur, Bjarni formaður Sjálfstæðisflokksins telur bogann spenntan of hátt hjá fólki, finnur enga sök hjá stjórnvöldum

Mér fannst Silfrið gott að þessu sinni. Viðtal Sigríðar Hagalín frænku minnar við Bjarna lét hann opinbera sig og margt sem framundan er.

Silfrið var að mörgu leyti prýðilegt. Halla Gunnarsdóttir og Jón Ólafsson fordæmdu bæði stríðin í Úkraínu og á Gaza. Lokaorðin sem Jón Ólafsson sagði voru eins og töluð út úr mínum munni, að Úkraínustríðið eyddi framtíðarmöguleikum Úkraínu og Rússlands, og heimsins alls.

Mér finnst það gaman þegar ég get bæði verið sammála vinstrimönnum og hægrimönnum í sama Silfursþættinum.

Vigdís Häsler var ættleidd frá Indónesíu eins og lesa má um í Morgunblaðinu og Netinu og því af asískum ættum en hún þekkir íslenzka menningu eins vel og við sem eigum ættir að rekja til norrænu víkinganna. Mér finnst það alltaf jafn rasískt þegar dökkt fólk er spurt beint eða óbeint um popúlisma eða rasisma á Íslandi ef það kvartar ekki undan honum sjálft, eins og sama lífsreynsla eigi við um alla sem hafa dekkri húðlit en fjöldinn.

Enda reyndi hún að eyða slíku tali og talaði eins og aðrir um það sem lýtur að öllum öðrum, það er að segja dýrtíðin, verðbólgan, dýr matur og dýrt húsnæði.

Það sem Halla Gunnarsdóttir sagði strax eftir viðtalið við Bjarna Benediktsson hitti alveg í mark hjá mér, og ég var henni hjartanlega sammála um að Bjarni væri ekki að tala frið inní samfélagið og stjórnmálin heldur ófrið, og að hann væri frekar að tala inní kjósendahóp Sjálfstæðisflokksins.

Sérstaklega fannst mér áhugavert þetta sem Halla Gunnarsdóttir sagði um það hvernig Bjarni væri að kenna alþýðunni um það sem stjórnmálamenn hefðu gert og seðlabankastjóri, með háum vöxtum og þenslu í hagkerfinu.

Þetta er einmitt málið og ein af stóru ástæðunum fyrir því að fylgi Sjálfstæðisflokksins er á niðurleið.

Rétt er það að bæði Vinstri grænir og Sjálfstæðismenn hafa yfirgefið sín stefnumál, en svo er hin aðalástæðan fyrir æ minni fylgi þessara flokka, það er verðbólgan, dýrtíðin og versnandi kjör allra í landinu, nema elítunnar, sem pólitíkusarnir jú tilheyra sjálfir og vilja því ekki vita af því!!!

Halla Gunnarsdóttir er aftur gengin í Vinstri græna. Það ásamt því að Steingrímur J. Sigfússon, kempan sú arna, er aftur kominn til verka í uppvaskið þar og tiltektina eftir sukkið með íhaldinu sannfærir mig um það að eitthvað líf er aftur að færast í Vinstri græna eftir brotthvarf Katrínar hinnar síglottandi, eða flissandi eins og annar bloggari hefur orðað það. Það kæmi mér ekki á óvart þótt Vinstri grænir fengju 5% eða meira þegar næst verður kosið, og nái því inná þing, kannski með naumindum, en ég er ekki svo viss um að fylgi þess flokks verði mikið á næstunni.

Í þessum Silfursþætti kom svo vel í ljós hvers vegna þessi stjórn er á fallanda fæti og hversvegna lífskjörin fara versnandi. Pólitíkusarnir eru arfalélegir, og Bjarni Benediktsson engin undantekning á því, og þó vil ég enn hrósa honum fyrir að hafa stjórnað fjármálaráðuneytinu eins og einhver sem kann til verka.

Aldrei í öðrum Silfursþætti finnst mér Bjarni hafa komið upp um vantkanta sína eins mikið.

Þá kem ég einmitt að því sem hann talaði talsvert um, samgöngusáttmálann, Borgarlínuna.

Það sem einmitt vakti mesta athygli mína við þetta langa drottningarviðtal sem hann fékk í upphafi Silfursins var að hann talaði eins og Dagur B. Eggertsson endurholdgaður, um dásemdir og mikilvægi samgöngusáttmálans, borgarlínunnar þar með! Þetta kom mér á óvart.

Eitt sinn lýsti hann ákveðnum efasemdum um það allt, og ég fór með vini mínum á fund í sjálfstæðishúsinu Valhöll í fyrra, og þar var samgöngusáttmálinn til umræðu, og Bjarni sat fyrir svörum. Voru langflestir þar inni með efasemdir um samgöngusáttmálann og borgarlínuna, ef ekki alfarið á móti hvoru tveggja. Voru þar gamlir og góðir sjálfstæðismenn sem maður kannaðist við úr fjölmiðlum, og þeir lýstu ekki hrifningu á þessum framkvæmdum, en af kurteisi fékk Bjarni ekki mikinn mótbyr þó, nema frá fáeinum.

En í Silfrinu virtist Bjarni Benediktsson vera orðinn Dagur B. Eggertsson endurholdgaður. Hann talaði um að ljúka þessum áætlunum og að þetta væri mikil og merkileg framtíðarsýn, og að komandi kynslóðir myndu bara borga og eitthvert félag sem hefði verið stofnað, og að eignir yrðu seldar fyrir þessu öllu, en almenningur ekki látinn borga brúsann samt. Ákveðin þversögn var í því.

Hann virtist sannfærður um að þetta væri svo voðalega góð lausn fyrir samgöngur í Reykjavík og á öllu svæðinu.

Það er ekki nóg með það að Einar Þorsteinsson núverandi borgarstjóri sé orðinn Dagur B. Eggertsson endurholdgaður, heldur einnig Bjarni! Það er fullmikið!

Hvar eru efasemdaraddirnar núna innan Sjálfstæðisflokksins, borgarinnar og ríkisstjórnarinnar???? Þessi borgarlínuframkvæmd er jafn mikið helvítis rugl og í upphafi þótt fæstir segi það lengur!!!!!!

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sem sagt stundað málamiðlunarpólitík, og er farinn að reka erindi Samfylkingarinnar!!! Kannski það sé einnig ástæða fyrir minnkandi fylgi!!!

Síðan eru það þessi orð Bjarna um að fólk hafi spennt bogann of hátt, og verðbólgan sé vandamál þessvegna.

Bjarni Benediktsson lýsti sökinni hjá almenningi á versnandi kjörum almennings. Slíkt viðhorf þurrkar út fylgi flokkanna.

Það þyrfti annan pistil til að fjalla um efnahagsmál, en til dæmis hefur Magnús Sigurðsson bloggari fjallað vel um það að vaxtastefna Seðlabankans sé gagnrýniverð, og að stjórnvöld beri einnig ábyrgð á þessari kjaraskerðingu hjá fólkinu í landinu.

Af þessu Silfri er það ljóst að það er mikil gjá á milli stjórnvalda og almennings. Það kæmi mér ekki á óvart þótt önnur búsáhaldabylting gæti byrjað í vetur!!!


mbl.is Borgarlína: Hundruð þúsunda á hverja fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Are we nothing more than a bait?, ljóð frá 15. marz 2022.

Peace is better, pride is hurting,

princess here will make the others die.

She is seeking

servants only, rich.

Now they fight to lose their life,

like there's nothing better still.

Evil sin and Eve is doing this.

oh so mighty, still the bitch!

 

So they wanna say it's better,

soldier bleeding for the women's cause?

World it waiting,

war for power, land?

Now they fight just for their own

fall and can't see what is wrong.

Does it matter whom you serve, if saved?

Souls will lend a better hand.

 

Evil many as they wage it,

we can't find who's side is better now.

Secrets surely,

say it, bluffed like us.

Now they fight just for the loss,

full of lies that we've been told.

Don't you know in West you Satan serve?

Someone fighting might be wuss.

 

Women fear that we are changing,

wars to stabilize their Satan's might.

Females frightening,

full of lust and hate.

Not so obvious, never was,

now we have this bogey man.

Alien women always hurt and rule,

are we nothing more than a bait?


Hughrif um að hægriöfgamaður væri sekur breyttust í raunveruleika á RÚV

Ekki er rétt að kalla það skondið en sorglegt frekar, þegar í fyrstu var það látið líta svo út að mögulega væri hægriöfgamaður á ferðinni út af þessari hnífaárás í Þýzkalandi, þar til fréttamaður RÚV sagði undir lok fréttatímans í gær:"Þær fréttir voru að berast að Islamska ríkið lýsti ábyrgð á ódæðinu", eða eitthvað á þá leið. Spennufall.

Í upphafi fréttatímans var fjallað um þetta og vitnað í þýzkan lögreglumann, að ekki væri hægt að útiloka hryðjuverk vegna kringumstæðnanna. Í þeim orðum fólst um leið ákveðin sakbending án orða, látið liggja í loftinu og áhorfandinn látinn bölva rasistum í hljóði, því við vitum hvernig pólitíkin er á RÚV, að fjölmenningin sé góð og fólk saklaust sem aðhyllist hana, en sekt það fólk sem mótmælir henni, eða til allra voðaverka víst.

Ekki kemur það hér fram skýrt í þessum veffréttum á Morgunblaðinu, en í RÚV var hinsvegar mikið gert úr því að hnífaárásin hafi verið gerð þegar "fjölbreytileikanum var fagnað", og þá dettur manni fyrst í hug eitthvað tengt Gleðigöngunni og hinseginfólki, en RÚV leggur mikið uppúr því að mikið sé til af vondu fólki sem vilji gera árásir á hinseginfólk eða í tengslum við þeirra viðburði, og þá eru annaðhvort kristnir öfgamenn taldir sekir eða hægriöfgamenn, eða eins og þarna, islamskir ofstækismenn.

Ég fór að velta fyrir mér, getur það verið að Vesturlönd séu orðin dofin fyrir hættunni sem berst frá framandi menningu? Getur það verið að þeir sem stjórna fjölmiðlunum séu svo uppteknir af því að klína sök á pólitíska andstæðinga að almenningur verði dofinn og telji það eðlilegt að ofbeldisstigið hækki hérlendis og annarsstaðar?

 


mbl.is Ríki íslams lýsir ábyrgð á hendur sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirgefning þar sem er hver fjarstýrð dama, ljóð frá 12. febrúar 2022.

Í þessu nýlega ljóði sem er rúmlega tveggja ára gamalt er ég að gera ákveðnar stílæfingar og reyni á þanþol kveðskaparreglnanna, sérstaklega lengd að næsta stuðli, eins og í fyrstu línunni. Hákveðan er til staðar, en lengd á milli stuðla er brot á kveðskaparreglum. Þó ekki alveg, því viðurkennt er að þar sem langar ljóðlínur eru í kvæðum þar gefst skáldum svigrúm og frelsi til að prófa eitthvað nýtt, eins og Megas hefur gert, einnig til dæmis Einar Benediktsson.

Nenni ekki að fjölyrða um efni og innihald. Kvæði gera oft þær kröfur til lesanda að þeir velti fyrir sér, túlki, opni leyndar dyr, fái innblástur, hughrif.

 

Fyrirgefning þar sem er hver fjarstýrð dama?

Fjarri sálum er hver dýrmæt bygging rústuð.

Sólartáknið, femínisminn, fjarri þessu rétta,

finnst mér hún af röngum mæðrum pústuð?

Kröfur gerðar kvenna til,

kannski ekki af réttum stofni?

Falla þær í Fjönduhlýðni...

Finnst þér skrýtið þótt allt rofni?

Rolan varð svo reið,

réttu táknin máttar hædd og smáð.

Ekki er þetta ævi minnar leið,

aðrir höfðu svartan galdur þennan skráð.

 

Mundu að ég vil fara úr fjandans bænum gamla...

Féskort hata, möguleika hef ei næga...

Ljóskum nauðgað meður djöfla mæðraveldi kvenna,

mér finnst ekki létt að finna dræga...

Finnst mér ekki fjarstýrð þjóð

fýsileg að nokkrum kosti...

Skröttur þær er skelfdu bjána

skildu eitt að minnsta kosti.

Heilagt pláss var hætt,

hefndar krefst nú barða landið þitt.

Trauðla verður fyrir bölið bætt,

bara álfar ráða, stjórna, greyið mitt.

 

Ekkert lengur heilagt þar sem púkar pína

píur stöðugt, varla séðir, þokuskrokkar.

Þýzkir kunnu að nota táknin, trúlaus flokkur rýrnar,

tíkin femínismans megrast, skokkar...

Yfirborðið er svo rangt...

ekki bara pæli í frama...

Ef ég skyldi elska þessa

ekki skilur margt sú dama.

Hlýðni hennar tóm?

Heldur vélræn, samt það gerði af lyst...

Peðin fá þann sama syndadóm,

sjáðu hvernig þrengist okkar bjánavist.

 

Orðaskýringar: Fjanda: Djöfla, Kölski kvengerður, eins og hefð er fyrir.

Skratta, kvk: Kvenpúki.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 5
  • 4
  • 3
  • Image 004
  • Titilblað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 63
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 436
  • Frá upphafi: 148724

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 314
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Nýjustu myndböndin

Heilbrigðisráðherrann, helbrigðaráðherfan

Í hópnum finn ég hlýja barnatrú

Aldrei fellur auðmagnskerfið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband